Tuesday, March 30, 2004

Blitzzzz mar!!!!! VÁ hvað ég er með þessa skítamórals frasa á heilanum ennþá! VÁ! Þetta er eins og að hlusta á fm þar sem þú færð óvart alla frasana á heilan svona óvart. Man þegar Sálin var með þennan ÞOKKALEGA frasa það var þokkalega í öðru hverju orði hjá mér. Frasinn GRÆJA O´GERA er ættaður af fm sem og þegar allt og allir voru að detta inn! Ja maður spyr sig og lögreglumál. Þessi Darkness plata sem ég tilbað um daginn er náttúrulega algjört lögreglumál! Kolólöglegt kvikindi! Get alveg eignað ÁMS þennan með kvikindið. VÁ hvað þetta er ekki að meika neinn sens núna. Ja maður spyr sig til hvers þetta á að meika e-n smá sens? Hver er sá tilgangur! Á ég að fara út í svona heimsspekilegar pælingar eins og Hver er tilgangur lífsins? Nei það meikar ekkisens að pæla í því einu sinni. Gerir mann bara þunglyndann. Ég er reyndar búin að fatta tilgang lífsins. Gerði það í góðu skapi. Tilgangur lífsins er að DJAMMA!!!!!!!!!!!!!!! Sá sem heldur öðru fram þarf að fara til læknis! Sem minnir mig á það að ég er að fara til læknis núna í vikunni. Og það til lýtalæknis. Tek það SKÝRT fram að ég er ekki að fara að láta græða á mig tippi eða að fara í sílilol aðgerð!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

No comments: