Jæja þessi mánudagur allavega ágætur miðað við þann síðasta sem var rétt rúmlega algjör vibbi! Eins og ég minntist á fyrir um sólarhring þá er búið aðfrumflytja eurovision lagið okkar sem DÚLLAN Jónsi syngur. Og það er eins og þessi ágæta þjóð geti ekki sameinast um hvert framlag okkar á að vera á hvaða tungumál við eigum að syngja eða hvort lagið sé hreinlega stolið!!!!!! Þó að eg sé komin á þá skoðun að Open your heart lagið sé mun líkara laginu Ennþá með Skímó heldur en þessu lagi þarna Right waiting með gæjanum sem mátti ballöðuna flottu Hello!!!! Man ekki hvað hann heitir eða reyndar þá kann ég ekki að skrifa nafnið á honum!!!!!!! Eg heyrði árás 2 í dag að e-r vildi leggja fram stjórnsýslukæru og láta annað lag fara. Eg sem aðdáandi keppninar skal viðurkenna það að þetta lag er ekki beint eftir þessari formúlu sem allir eru að tala um með upphækkunn og látum. Samt er þetta fallegt lag ferlega rómó!!!!! Sálin er á bylgjunni og Kung Fú er næst. Fyrst ég er farin aðblogga um tónlist þá mun ég halda því áfram;) Tók eftir því í frumsýningapartýinu hvað Búkollu lagið hans Ladda og Rangur maður með Sólstrandagæjunum eru lík eða bara alveg nákvæmlega eins!!!!! Ætla að lokum að mæla með nokkrum lögum
Heaven-Jónsi
Mad world-Gary Jules
Stjörnuhrap-Kúng Fú
Oh darling-Bítlarnir
No comments:
Post a Comment