Ég vil bæði lifa og vona ég vil brenna upp af ást ég vil lifa með þér svona ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér
Tuesday, March 30, 2004
Sælt veri fólkið!!! Eg hef að undanförnu verið að slást mikið. Já ekki misskilja mig þetta eru engar líkamsárásir. Eg hef ekki verið neitt sérlega ánægð með blýantana mína eða blýpenna. Þannig er mál með vexti að blýin mín eru búin þannig að ég ákvað að nota blýant sem var allt í lagi þangað til ég fór að ydda þá brotnað blýið aftur og aftur og eg skipti þá yfir í blýpenna en nei hann var stíflaður!!!!!!!!!!! OHH bara óheppnasta manneskja í heimi! Allt í lagi ég fór heim eftir skóla í gær og fann þá bara annan blýant sem ég yddaði og var bara sátt! Þangað til í morgunn þegar ég þurfti að ydda aftur og blýið brotnaði og ég varð vond alveg að verða brjáluð þannig að ég skipti yfir í penna sem ÞARF EKKI að ydda. Eg held að ég og blýantanturinn muni ekki ná sáttum allavega ekki í bráð!!! Þetta mun ekki einn einasti maður skilja. Meðan ég man þá mæli ég með lagi með breskri hljómsveit sem heitir Kean (sennilega frá Manchester ekki gott!) en ég mun setja nafnið á laginu inn seinna!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment