Friday, April 30, 2004

Pælið í því ef íslensk fyrirtæki og borð við vífilfell og fleiri færi að búa til smokka og þessum hugmyndasmiðum þeirra sem myndu sýna það og sanna að þeir eru frekar humyndasnauðir. Ætla að pústasmá sýnishorni upp!!!

Nýkaupasmokkar : - Ferskleikinn í fyrirrúmi
Sjóvá-Almennar smokkar : - Þú tryggir ekki eftirá
EJS smokkar : - Ávallt í fararbroddi
Ferðaskriftofu stúdenta smokkar : - Fer alveg með þig
SS smokkar : - Fremstir fyrir bragðið
Lækjarbrekkusmokkar : - Fyrir lífsins ljúfu stundir
Vífilfellssmokkar : - Alveg einstök tilfinning
Freyju Rís smokkar : - Átt þú vini?
10-11 smokkar : - Þegar þér hentar
Moggasmokkar : - Kjarni málsins
Byko smokkar : - Byggir á breiddinni
Atlaskort smokkar : - Vopn í lífsbaráttunni
Jón Bakan smokkar : - Takt´ana heim.
Lambakjötsframleiðendasmokkar : - Lambakjöt á diskinn minn.
Hróa Hattar smokkar : - Hittir beint í mark.
Pizzabæjarsmokkar : - Verðað fá´ana.
HONDA smokkar : - Fyrst kem ég - svo bíllinn
Þetta getur alveg virkað
ég er að hætta e-ð cyber er að reyna að gera árás á mig tegist sennilega umræðuefninu!!!!!!!!!
vAR AÐ SKILA INN STARFSUMSÓKN Í SUNDLAUGINA.Var farið að fljóma solítið eins og e-r sjálfshjálparbók. veit ekki út af hverju
Eg er að segja ykkur það TURTLES STRIKES BACK Í ORÐSINIS FYLLSTU!!!!!!! Það er svoldið súrt að segja það en það verð skjaldbökur hlaupandi út um allt í dag. Nei ég er ekki að verða geðveik þetta er staðreynd!!!! En samt þetta er frekar dúllulegt að sjá þá hlaupandi út um allt syngjandi FSU e-ð nananananana e-ð. Þetta kallast tungumála erfiðleikar á milli mannheima og skjáldbaka á góðri skítamóralísku! Ég sendi Laufey sms á þriðjudaginn sem var einfaldlega BLITZ MAR sem er skítamóralíska og hún þurfti á útskýringu að halda morgunninn eftir!!!!!! Hvort segir það meira um mig eða hana. Sennilega mig;) Lýsi eftir fólki sem er kunnugt um það hvað turtles kallarnir heita en þatta er búið að vera aðal pælingin hjá mér í morgunn! Síðan er hoppari (bein þýðing á jumper!) svo mikill snilli að hann er búin að setja inn comment kerfi af því að ég kann ekki á tölvur!!!!!!!!!!!! Eg kann ekki á e-mailið eftir að tölvan kom úr aðgerð. Hélt að gamla konan væri tölvu snilli og kynni að senda mail en það var reynt en gekk ekki:( :(:(

Thursday, April 29, 2004

Næst síðasti skóladagurinn er runnin upp bjartur og fagur. Nei svona skítamórall! Þetta í þessari snilldar thule auglýsingu er alveg rétt rúmlega satt. If you wanna change the wether wait a minute!!!!!! Ekki það að ég vildi e-a rigningu og vibba:( Afhverju get ég ekki verið að útskrifast núna???:( Þá væri ég með pottþétta ástæðu fyrir því að fara á djammið þó að ég væri að fara að byrja í prófum uhhhhhhhhhhhhhhhhhh mig langar á e-ð gott dansiball e-ð í líkingu við skímó ballið um páskana!!!!!!!!

Wednesday, April 28, 2004

Góða kvöldið!!!! Ég verð að segja það að það er búið að vera alveg gegt gott veður úti í dag!!!!!!!!! Sem er reyndar alveg týpiskt því að eftir helgi þa er ég að byrja í prófum. Meina er engin að kannast við þetta. Svo þegar ég verð að læra undir þýsku próf þá verður veðrið örugglega alveg crazy in the creamhouse eins og snillingarnir í 70 min myndu orða það svo skemmtilega. Talandi um 70 min þá var ég að horfa á það dæmi í dag (líka í dag) og ég get svo svarið það aðþeir eru allir gegt mikil krútt. Það er ekkert skrýtið að Auddi var valin mest sexý gæin e-s staðar því maðurinn er gegt fallegur (kannski svolítið loðinngreyjið!!!). Eg fattaði það þegar ég horfði á 70 min 1 í fyrsta skipti hvað Sveppi er mikið krútt þeð rolluna á fausnumeins og hann orðar svo skemmtilega. Pétur er greinilega gungan í hópnum lítur svolítið út eins og Elton John en er alveg viðbjóðslega fyndin!!!!!!!!!!! Eins og til dæmis á Hlust '04
Vitoið þið það að þegar ég opnaði augun í morgunþá fattaði ég hvaða dagur var í gær af hverju litli bróðir minn gaf mér 70 min (nota bene SNILLD!!!!!!!) af hverju það voru e-r kökur heima í gærkvöldi og allt svona kósý. Eg átti afmæli i gær og ég gleymdi því!!!!!!!!!!! Eg er að spá í að skipta um nafn og fara að kalla mig Gulla gullfisk!!!! Hvaða Gísla Marteins brandarar eru þetta?????????

Tuesday, April 27, 2004

Eg er viss um að ég sé a gleyma e-u. Það er e-ð merkilegt við þennan dag. E-ð sem ég á virkilega að muna en man ekki vegna þess að ég er með mesta gullfiskaminni sem sögur hafa farið af. Sko fyrir utan Gulla gullfisk og vini hans. HAHAHAHA þennan keypti ég af Gísla Marteini enda var hann frekar ódýr þessi!!!
Það er svo skrýtið með mig að alltaf af og til þá fæ ég svona æði fyrir Sálinni hans Jóns míns. Enda ekkert skrýtið við það. OK nú ætla ég að setja fram smá comment sem e-r er ef til vill mjög ósammála mer með og það er bara allt í lagi með það. Sálin er best ahljómsveit íslenskrar tónlistarsögu!!!!!!!!!!!!!! það eru nu nokkrar frekar goðsagnakenndar eins og Greifarnir Stuðmenn ( ég þekki dóttur trommans persónulega!!) SSSól Todmóbíl. Svo eru það sveitir eins og Hljómar og Lúdó og Stefán Brimk(g)ló sm eru frekar ætlaðar gamla settinu ( eins og til dæmis foreldrar mínir!!) en eru samt sem áður að virka á okkur ungu djammarana. Það er farið að styttast all verulega í lokaballiðí skólanum og hef ég það á tilfinningunni að það verði e-ð stórt band á ferðinni þó ekki Sálin því að þeir eru í fríi sem er óljost hvenær lýkur uhuhuh. Mig langar á Sálar ball!!!!!! Er ekki leiðinlegt að lesa þetta krúttlega blogg mitt af því að ég blogga bar um tónlist????? Mér er alveg sama ég er ekki með comment kerfi!!!!!!!

Friday, April 23, 2004

Gleymdi að segja ykkur að setja á bylgjuna STRAX!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 80´S I LIKE ITT!!!!!!!!!!
Komin í helgarfrí!!!!!!!!! Veit reyndar ekki hvort þetta verður e-r snilldar helgi vegna þess að það er AÐEINS vika í próf þannig að það er pínu mikið að gera. Það eru heitar umræður um myndina Kill Bill á síðunni hjá jumper vin mínum hvort hún sé góð eða ekki. Áður en ég fer að mynda mer skoðun þarf ég að sjá fyrri myndina. Það þarf að fara að vinna í þvi. Hvað á maður að gera í kvöld? Mæli ekki með því að fólk horfi á yngfrú rvk ekki nema til þess að hlægja að gelgjubandinu Nylon (stytting á Neil Yong). Þessar
gel(gjur)lur eru að misþyrma gamla góða Ununar laginu Lög unga fólksins sem kom út árið '94 og er eftir poppfræðing Íslands dr. Gunna. Nokkur lög sem vert er að tékka á
Somewhere only we know-Kean
Nótt-Greifarnir
Draumur -Ardís Ólöf (varð í 4ða sæti í idol)
Jesus to a child-George Micael

Thursday, April 22, 2004

Hvað er að helv. greifa síðunni ég get ekki hlustað á lagið Nótt sem er gegt fallegt!!!! Textinn saminn af Vidda og Felix. Þetta lag er eins og Draumadrottningin. SNILLD!!!!!!!!! Vissuð þið það að Greifarnir sigriðu músík tilraunir árið '86 eða árið sem ég fæddist. Þið vissuð þetta að sjálfsögðu!!!!!!!!
Nú er ég gegt hamingjusöm!!!!!!! Talvan er komin úr fríi og hefur aldrei verið betri og jafn öflug!!!!!!!!! En það besta við þetta allt saman er Windows Media Player og er það helsta ástæðan fyrir hamingju minni!!!!! Sit hér fyrir framan tölvuna og er að hlusta á það besta frá göðsögnunum í Greifunum. Búin að heyra Eurovision lagið. Já gleðilegt sumar elskurnar mínar!!!!! Eg er núna að ég er að hlusta á Felix Bergsson dyngja um draumadrottninguna. SNILLD!!!!!!!!!! Kíkti á kvöldvökuna hjá nfsu þar sem kom í ljós að næstu 2 annirnar mun Hildur vera formaður nemendafélagsins.Til hamingju Hildur!!!!!! Annars þá kiktí ég inn á alla "helstu" skemmtistaðina hér í bæ og þetta var vægast sagt sorglegt. Inn á nýja sportstaðnum voru busar að spila pool (snóker) inn á Pakkaranum var liðið frekar sorglegt og á HM hitti ég meistara Magnús Kjartan sem var að skipuleggja meik hljómsveitarinnar Oxford ásamt Hadda Már (skemmtanastjóra HM) en á HM var Plast að spila staðurinn var tómur og allt frekar sorglegt!!!!!!!!!

Tuesday, April 20, 2004

Smá skúbb hérna Jón Ólafsson (góði) er að senda frá ser sína fyrstu sólóplötu (hann er sennilega búin að vera í bransanum í góð 20 ár en það segir ekki allt!) og mun hún koma í verslanir þann 4ða maí nk. Sem er reyndar merkilegur vegna þess að þann dag verður móðir mín ástkær komin á frekar virðulegan aldur sem er e-s staðar mitt á milli fimmtugs og fertugs. Eða var það öfugt. En þá aftur að Jóni góða vini mínum það er komið lag með honum inn á jon.is en það vill svo skemmtilega til að það er linkur inn á hana á síðunni. Gaus hér upp svona líka myndarleg skítafíla og ég er saklaus!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Kíkt í sund í gær sem ég sá pínulítið eftir þegar ég kom upp úr vegna þess að ég var svo rauð í andlitinu. Samt held ég a þetta sleppi alveg allavega er engin farin að tala um að ég líti út eins og grasker!!
Ef þið viljið fá Paul macartney til Íslands þá mæli ég með að þið farið inn á síðuna paulisland.tk og skráið ykkur þar því Paul mun fá listann ef það munu nást nokkur ÞÚSUND manns til að fara inn á þessa síðu og skrá sig. Afhverju ekki að fá Paul til að koma fyrst gömlu kallanir Deep Purple og Metallica eru að fara að mæta á klakkann! Jah maður spyr sig!
Ef þið viljið fá Paul macartney til Íslands þá mæli ég með að þið farið inn á síðuna paulisland.tk og skráið ykkur þar því Paul mun fá listann ef það munu nást nokkur ÞÚSUND manns til að fara inn á þessa síðu og skrá sig. Afhverju ekki að fá Paul til að koma fyrst gömlu kallanir Deep Purple og Metallica eru að fara að mæta á klakkann! Jah maður spyr sig!

Monday, April 19, 2004

Jæja það er komin mánudagur sem þýðir að þessi vika er öll framundan svona að mestu fyrir utan fimmtudaginn sem fara mun í frí og læti vegna þessa að það er sumardagurinn fyrsti!!!! Bíddu var ekki annars e-r snjór og e-ð á laugardaginn eða var þetta bara ég???????? Segi það enn og aftur að það vantar svona öfug (gay!) spurningamerki hérna inn svona eins og í sms. Smá hugmyndalisti yfir það sem er vel hægt ap gera í sumar
1. DJAMMA
2. DJAMMA
3. DJAMMA
4. DJAMMA
5. DJAMMA
Sko ef að þið hafið e-ð við þennan lista að athuga þá verðið þið að kenna mér að setja upp smá comment-kerfi hérna. Síðan er ekki hálf tilgangslaust að vera að blogga ef engin er svo að lesa það. En allaveganna er svo kúl að segja að maður eigi sína EIGIN heimasíðu. þetta er búið að vera svona bylgja hérna í fsu eða svona trend.
En mæli samt með því að allir fari og djammi all svaðalega núna í sumar svo að það megi kalla þetta sumar THE djammsumar

Friday, April 16, 2004

Jæja komin föstudagur þó það hafi verið mánudagur í fyrradag!

Wednesday, April 14, 2004

Jæja ykkur varð ekki að ósk ykkar ég er ekki hætt að blogga ég var bara í yndislegu páskafríi!!!! Ég hefði sko bloggað ef talvan okkar væri ekki svona mikið drasl því hún þoldi ekki ADSL-ið!! Týpiskt! Það var sko legið í leti dauðans skrapp í bíó á myndina The Ten Whole Yards sem er gegt fyndin fékk að hafa bílinn í aveg 4 tíma á skírdag til að ég gæti nú alveg örugglega komist á ballið. Já má svo ekki gleyma snilldar balli með skímó sem var reyndar algjört lögreglumál. Ekki það að það hafi verið e-ð ves bara var GAMAN!!!! Biggi Nilssen lögga á fm var á svæðinu sem og Sævar Þór boltagúru sem er kannski svona arftaki Love gúru. Ekki þaðað Love gæuru geri mig e-ð heita sem hann gerir mig alls EKKI!!!!! Það var einn þarna njög flottur sem ég mun ekki nafngreina hér.Bara ekki lata Illuga vita því annars verður nafnið á frontinum á dabbanum á morgunn. Skímó voru algjört lögreglimál drengirnir eru í hrikalega flottu formiog ég held að að væri ráð hjá Bigga og Þresti 3000 (dúlla!) lagið Take Me Down To Paradise (held eg) til rannsóknar

Wednesday, April 07, 2004

Ég ákvað að taka smá viðtal við sjálfa mig eða gera smá prófíl af mer fyrir ykkur sem haldið að þið þekkið mig en þekkið mig ekki!!!!

NAFN Ágústa
ANNAÐ NAFN Arna
SÍÐASTA NAFN Sigurdórsdóttir
AFMÆLISDAGUR Seint í þessum mánuði
HÆÐ dvergvaxi
ÞYNGD HVAÐA HELVÍTIS SPURNINGAR ERU ÞETTA (er þetta ekki trúverðugt)
HJÚSKAPASTAÐA Karlmaður óskast fyrir fimmtugt
BÚSETA Selfoss nafla alheimsins
ÁHUGAMÁL Tónlist leiklist (nýtt) karlmenn(how surprise) íþróttir(er vaxin eins og ég veit ekki hvað) djammið(Bilie Jean is not my lover......!)
Helsta afrek Bílprófið

Friday, April 02, 2004

ÞAÐ Á AFMÆLI Í DAG! ÞAÐ Á AFMÆLI Í DAG! ÞAÐ Á AFMÆLI Í DAG BLOGGIÐ! ÞAÐ Á AFMÆLI I DAG!
Já nú erum við eiginlega að tala um merkisdag í lífi mínu og líifi bloggssins?!! Hvernig getur blogg verið lifandi!! Þetta annars ágæta blogg mitt er 1 mánaða í dag (hlutlaus????) og því eru broskallarnir vinir mínir í frekar góðu skapi:):):):):):):):):):)!!!!!!!!! Hvað segir jumper vinur minn núna??!! Hann missti sig yfir því hvað ég notaði mikið af upphrópunarmerkjum einu sinn. Og hann setti það inn á síðuna hjá sér!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Og var þetta apríl gabb hjá mer að ég og George Michael værum að fara að vekja Wham! upp frá dauðum. Hljómar jafn trúverðugt og það að Bruce Springsteen væi á landinu eða þetta með þetta Idol kjaftæði!!! Bíddu er fólk fífl???? Jah maður spyr sig

Thursday, April 01, 2004

Í tilefni að því að 20 ár eru liðin frá því að stórhittarinn Wake Me Up Before You Go Go kom út þá hefur mér verið boðið að vera annar hluti dúetsins Wham! í staðin fyrir þann sen var þarna með George Michael (man ekki hvað hann heitir!)!!!! Túin okkar Gogga mun hefjast 13. ágúst á Ólumpíuleikvanginum í Aþenu þegar ólumpíuleikanir verða seittir með pompi og prakt. Munum við Goggi þar flytja þar öll bestu lög dúetsins. Síðan er það bara big time world tour þar sem eru meðal annars viðræður um að fara til Japans Kína Íraks Jórdaníu og sennilega verður hápunkturinn á Gay Pride í San Fransisco í lok þessa árs. Og þar er líklegt að við munum performera með Scooter Soft Cell og Pet Shop Boys. Hvað ísland varðar þá mun það bara koma í ljós því að ég hef verið einnig í samningaviðræðum einnig við að breika á concert Duran Duran í Madison Squere Garden á nýárskvöld 2005 ásamt Red Hot Chilli Peppers Maddonu og einnig er líklegt að Billy Joel muni koma þar fram + Will Young og Eagles. Sem sagt spennandi ár framundan hjá mér!!