Eg er viss um að ég sé a gleyma e-u. Það er e-ð merkilegt við þennan dag. E-ð sem ég á virkilega að muna en man ekki vegna þess að ég er með mesta gullfiskaminni sem sögur hafa farið af. Sko fyrir utan Gulla gullfisk og vini hans. HAHAHAHA þennan keypti ég af Gísla Marteini enda var hann frekar ódýr þessi!!!
Það er svo skrýtið með mig að alltaf af og til þá fæ ég svona æði fyrir Sálinni hans Jóns míns. Enda ekkert skrýtið við það. OK nú ætla ég að setja fram smá comment sem e-r er ef til vill mjög ósammála mer með og það er bara allt í lagi með það. Sálin er best ahljómsveit íslenskrar tónlistarsögu!!!!!!!!!!!!!! það eru nu nokkrar frekar goðsagnakenndar eins og Greifarnir Stuðmenn ( ég þekki dóttur trommans persónulega!!) SSSól Todmóbíl. Svo eru það sveitir eins og Hljómar og Lúdó og Stefán Brimk(g)ló sm eru frekar ætlaðar gamla settinu ( eins og til dæmis foreldrar mínir!!) en eru samt sem áður að virka á okkur ungu djammarana. Það er farið að styttast all verulega í lokaballiðí skólanum og hef ég það á tilfinningunni að það verði e-ð stórt band á ferðinni þó ekki Sálin því að þeir eru í fríi sem er óljost hvenær lýkur uhuhuh. Mig langar á Sálar ball!!!!!! Er ekki leiðinlegt að lesa þetta krúttlega blogg mitt af því að ég blogga bar um tónlist????? Mér er alveg sama ég er ekki með comment kerfi!!!!!!!
No comments:
Post a Comment