Komin í helgarfrí!!!!!!!!! Veit reyndar ekki hvort þetta verður e-r snilldar helgi vegna þess að það er AÐEINS vika í próf þannig að það er pínu mikið að gera. Það eru heitar umræður um myndina Kill Bill á síðunni hjá jumper vin mínum hvort hún sé góð eða ekki. Áður en ég fer að mynda mer skoðun þarf ég að sjá fyrri myndina. Það þarf að fara að vinna í þvi. Hvað á maður að gera í kvöld? Mæli ekki með því að fólk horfi á yngfrú rvk ekki nema til þess að hlægja að gelgjubandinu Nylon (stytting á Neil Yong). Þessar
gel(gjur)lur eru að misþyrma gamla góða Ununar laginu Lög unga fólksins sem kom út árið '94 og er eftir poppfræðing Íslands dr. Gunna. Nokkur lög sem vert er að tékka á
Somewhere only we know-Kean
Nótt-Greifarnir
Draumur -Ardís Ólöf (varð í 4ða sæti í idol)
Jesus to a child-George Micael
No comments:
Post a Comment