Tuesday, April 20, 2004

Smá skúbb hérna Jón Ólafsson (góði) er að senda frá ser sína fyrstu sólóplötu (hann er sennilega búin að vera í bransanum í góð 20 ár en það segir ekki allt!) og mun hún koma í verslanir þann 4ða maí nk. Sem er reyndar merkilegur vegna þess að þann dag verður móðir mín ástkær komin á frekar virðulegan aldur sem er e-s staðar mitt á milli fimmtugs og fertugs. Eða var það öfugt. En þá aftur að Jóni góða vini mínum það er komið lag með honum inn á jon.is en það vill svo skemmtilega til að það er linkur inn á hana á síðunni. Gaus hér upp svona líka myndarleg skítafíla og ég er saklaus!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Kíkt í sund í gær sem ég sá pínulítið eftir þegar ég kom upp úr vegna þess að ég var svo rauð í andlitinu. Samt held ég a þetta sleppi alveg allavega er engin farin að tala um að ég líti út eins og grasker!!

No comments: