Wednesday, September 22, 2004

Það eru 9 dagar í það að ég fari að sjá Hárið. Ég er að fara að sjá Hilmi Snæ nakinn það er ekki ljótur maður á ferð. GRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR Ég veit að það er ljótt að segja þetta en ég væri alveg til a í að vera í verkfalli núna. Ég fór aðeins heim í morgunn og brynjar var heima í veerkfalli og hann vaknaði um hálf 11 sem mér finnst á engan hátt sanngjarnt!!!! En ég verð að minna ykkur á að Dura Duran er að fara að gefa út nýja plötu þann 12. næsta mánaðar og það er komin nýr singull sem heitir Reach out for the sunrise sem er alveg óhugnalega flott og gefur góð fyrirheit um það sem kemur núna í okt. Lagalista plötunnar má finna hér . Þið finnið það undir fréttum og alles. Fann þetta á netinu núna aðan

Kvikmyndahús opnar á Selfossi í desember, í bíósölum sem eru undir veitingastaðnum við Árbakkann í Hótel Selfoss. Félagið 800 Selfoss sem er í eigu Magnúsar Ninna Reykdalssonar og Einars Rúnars Einarssonar hefur komist að samkomulagi við eigendur Hótelbyggingarinnar að salirnir verði tilbúnir í nóvember og hafa þeir félagar tryggt sér sýningarétt kvikmynda frá bæði Skífunni og Sambíóum.

Ef þetta er satt þá er að koma bíó á self sem átti að koma ´86 en þá voru bara allir með sítt að aftan þannig að það vrað ekkert úr því!!!! Eiginlega bara hanidjusöm. Fór reyndar í bío um daginn á myndina Girl next door með þremur strákum og það var ekki beint gaman þegar tvær gellur kysstust því maður veit að strákum finnst það æsandi!!!!! Samt var mjög gaman með þessum vitleysingum Heimi og Magnúsi og Kolbeini bróður hans

Var að fjárfesta í dvd og video saman í pakka um daginn. Þetta er bara endalaus hamingja þessa dagana. Keypti mér einnig Monster sem er bara snilldar ræma og Queen Live At Wemplay

No comments: