53 dagar til jóla sem er bara málið. Það þýðir að nú þurfa menn að fara að pæla í því hvað það ætlar að gefa fólkinu sem það elskar í jólagjöf fara að baka skreyta taka til þrífa klósettið...by the way ég komst að því um helgina að ég Ágústa Arna Sigurdórsdóttir er hetja. Ég tók til+i herberginu mínu og við erum að tala um að það er afrek útaf fyrir sig. Bara því miður þá get ég ekki sýnt ykkur mynd af því eins og það var það var allavega ekki mjög glæsilegt en núna er hægt að fara að skreyta það er svo fínt!!! Allavega þá missti ég mig algjörlega í jóladótinu í Hagkaup um daginn og ég held að ég hafi verið búin að segja ykkur frá því ef mig ms minnir ekki en ég er svona eins og fiskurinn í Finding Nemo hún Dóra sem man ekki neitt en finding Nemo er algjör snilld maður samt ekki betri en Shek 2 sem ég ER að fara að eignast á fimmtudaginn því þá kemur hún í allar betri verslanir eins og BT sem er snilldar búð. HAHAHAHAHAHA
Ef þið vissuð það ekki þá er Sálin að fara að taka nokkur gigg og verða hér á Self núna 11 des og þá verður ekki e-ð jumma jumma jei e-ð heldur verpur tekið á því og menn missa rödddina alveg í gríð og erg. Ég er einmitt að hlusta á Sálin núna og í spilun akkúrat núna er lagið Auður sem er ekki kannski besta lagið með þeim en mjög flott samt. Var að setja á lag 11 sem er Sódóma sem er sennilega partý lag íslands. Og allir saman nú SÓDÓMA OOOOÓÓÓÓ SÓDÓMA JE JEJE og við erum að tala um það að það er fokking manudagur og ég er svona svaðalega high e-ð. Þetta er algjörlega úr samhengi en það er bara hið besta málþ Jæja það eru menn í hvítum sloppum sem eru komnir hingað að ná í nig enda er e-ð að fólki sem er í góðu skapi á mánudögum og það e-ð mikið
No comments:
Post a Comment