Wednesday, December 08, 2004

Ég er komin í jólafrí og ég er að segja ykkur það að það er ekkert leiðinlegt!!!!!

Eiríkur Vernharðsson er algjör hetja. Hann var í Kastljósinu í gærkvöldi og á sunnudagskvöldið verða haldnir tónleikar til styrktar honum og sonum hans. Síðustu 12 ár hefur hann barist við MS sjúkdóminn og er nú farrin að missa að miklu leyti allan þrótt og langar til að geta gert e-ð með sonum sínum. Yndislegur maður sem er fullur af húmor fyrir sjálfum sér. Og í desember á maður að gera góðverk og ef þetta er ekki gott málefni þá veit ég ekki hvað

Svona í jólafríinu þá á maður að kíkja á gamlar íslenska myndir og þaðer ég að gera. Er að tjékka á myndinni Veggfóðri þar sem Steinn ármann leikur ógeðslegan pervert (Kemur e-ð komment þú átt ekkert að vera að segja mikið þú ert sjálf pervert en hey ég er kannski pervert en ég er í því að meiða fólk!) ásamt þeim Baltasar Kormáki(GRRRRRRRRRRR!!) og Ingibjörgu Stefánsdóttir sem lék í hárinu . Það er ein snilldar setning í þessari mynd sem allir kannst við en er jólagetraun en hvað þýðir Rbb.Í verlaun verður ferð til tunglsins árið 2072. En ef þið nennið ekki að sofa í jólafrinu þá tjékkið á þessari ræmu hún er algjör snilld eða það finnst mer alla vega

Traustur vinur getur gert kraftaverk!!!!!!!!

No comments: