Gleðileg jól farsælt komandi ár og allt það kæru endur!!!! Það var ekki hægt að borða ykkur þannig að ég verð bara að óska ykkur glædeligra jóla!!! VÁ hvað maður er búin að borða mikið og mikið af súkkulaði og fá pakka og liggja í leti og bara sleppt öllu jammi!! HVAÐ?? Ég verð að fara að taka mig aðeins á í jamminu og kannski að maður fari á ball með bjórbandinu á gamlárs þegar maður er búin að skjóta upp öllum raketunum mínum eða stjörnuljósunum mínu. Get ekki séð hvernig ég á að fara að því að skjóta upp rakettum þegar maður heldur um prikið. Mæli með að menn kíki á Magnús sem er með nýja verðlauna hátíð sem heitir Magnúsinn e-ð í ætt við Óskarinn eða golden globe og ég er tilnefnd!!!!!! Kom mer meira að segja að vera ekki tilnefnd fyrir afmælisveislu ársins og ég get bara sagt að ég er gapandi hissa á því að vera talin fyndin. Það er e-ð nýtt! Þannig allir á fara í comment kerfið og kjósa!
No comments:
Post a Comment