Monday, January 31, 2005

Jæja manudagur og maður er ekkert svaðalega happy!! Mánudagar eru fyrirbæri sem má alveg þurrka út að dagatalinu hef ekkert ofsalega mikið á móti því sko!!

24 byrjaði aftur á stöð 2 eftir langa bið. Þessir þættir eru eiginkega ólöglegir vegna óbærilegrar spennuog þið þarna þetta má ekki. Gott að vita til þess að Jack Bauer er komin með konu +i þáttunum þó það sé ekki að byrja neitt svaðalega vel. Say no more!!

Thursday, January 27, 2005

E-r flottasti karlmaður landsins er Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari seme r svaðalega fallegur. Úff!!
Vissi ekki að það væri íslensk windows í tölvunum hérna í skólanum. Eiginlega alveg ógeðslega fyndið e-ð! Þegar maður kemur inn í tölvuna þá kemur alltaf svona saving your settings e-ð en nú kom e-ð geymi allar þínar skrár!! Svona r2d2 effect. Allt svona geimverulegt. Mér líður vna eins og e-m star wars kalli. Geimveru á geimskipinu Íslenska Windosið!!! Múúúúhahahaha(Núna heyrðust svona heavy hryllinsmyndasound) Og konan í sturtunni er alveg að flippa því hún sá geimveruna Start nei nei sorry geimveruna Ræsa átti ég við þetta er að sjálfsögðu allt íslenkar geimverur:/ Er hægt að finna furðulegari mannekjur en mig?? Nah það er frekar erfitt:)

Ísland vann sinn fyrsta leik á HM í handbolta í gær. Þetta var reyndar leikur sem við áttum alveg að klára. Þetta voru Kúveitar sem eru ekkert svona spes í handbolta engnir svíar. En það sem truflar mig mest að í leikslok þá unnum "við" bara með 9 mörkum. Þegar við hefðum eiginlega átt að vinna þá með svona 20-30 mörkum! Rússar unnu þá með 28 mörkum og við erum að spla við þá á morgun og við verðum að vina þan leik til að eiga e-a raunhæfa möguleka á því að komast upp úr riðlinum. En ef það er engin leikgleði í liðinu þá gengur þetta á engan hátt upp. Leikurinní gær var heinlega leiðinlegur og "strákarnir okkar" voru ekki að sýna það sem þeir raunverulega geta að mér fannst. Og ef leikir eru ekkert skemmtilegir þá nennir maður ekki að horfa á þá og fer að horfa á Sirrý tala um fullnægingar og svo eftir það á Exstream make over! Þó að það séu nokkrir sætir í landsliðinu;) Svona eins og Guðjón Valur!!! Slurk! Viggó (ekki sætur reyndar) þarf að reyna að virkja leikgleðina há "strákunum okkar" til að við eigum raunhæfa möguleika á að vinna Rússana sem við by the way verðum að vinna til að komast áfram. Þannig að elsku "dúllurnar okkar" hafið bara gaman að þessu á morgunn og komið með sömu gleðina inn í leikinn og var í Svíþjóð 2002!

Magnus var að skora a mig að fara að fá mér teljara þvi ég held þvi fram að það er aðeins einn maður sem er nógu vitlaus til að lesa þetta crap hjá mér. Það er spurning hvort maður láti verða að því að fá sér smá svona teljara?? Veit ekki
Hvað er uppi?? Ég skal segja ykkur það að ég veit það ekki:/
Sá Fólk með Sirrý í gær þar sem hún var að reyna að hjálpa fólki að fá betri fullnæingu og kræst hvað hefði maður gert ef mamma manns hefði hringt inn og borið upp e-a fáránlega spurningu eins og Maðurinn minn á við ris vandamál að stríða og það hefur verið alveg síðan við byrjuðum saman fyrir svona 30 árum hvað eigum við að gera?? Hann hefur þrisvar náð 'onum upp og það var þegar litlu sólargeislarnir okkar komu undir ekki segja að viðeigum að koma í meðferð við þorum það ekki að vera að tala við ókunna manneskju um kynlíf okkar!!! Ef þetta case hefði verið svo mikið sem skillt mér þá hefði ég skráð mig á al-Qaeda strax í gærkvöldi og þá stæði heimili mitt örugglega ekki upprétt. Mundi alla vega ekki fara út úr húsi í ár til að sleppa við komment á borð við Mamma þín og pabbi eiga í erfiðleikum í kynlífinu hehehehe!! Svo yrði bara hlegið. Og mann langar til að hverfa af yfirborði jarðar!! Svona til að fyrirbyggja allan misskilning þá held ég að foreldrar mínir hafi ekki séð þáttinn í gærkvöldi.
Hjúkk mar en tek það fram það er ekki hjúkka. Ok ok vondur brandari ég veit það:( Ég ´'a bráðum afmæli endilega gefið mér brandara handbók!!

Tuesday, January 25, 2005

Sssssss Ísland tapaði fyrir Slóvenum á loka sekóndum leiksins!!! Sssss!! Spurning hvort maður tippi ekki á það að kúveitar vinni okkur á morgunn. Þetta er ekki hægt!!

Veit ekki hvort mig langi til að horfa á Fólk með Sirrý ananð kvöld það sem verður rætt við fólk sem á í mesta basli við að fá það!! O mæ god
Hversu heimsspekilegar geta spurningar orðið: Hvort fæðast börn sem óskrifað blað eða spillast þau af umhverfinu?? Jah humm umm ihh nahh svona 150 kannski!!! Hvað er hægt að ætlast til mikils af nemendum sem eru ekki almenni lega vaknaðir fyrr en í fyrsta lagi í fyrsta tíma eftir hádegi?? Maður spyr sig óneitanlega að því eftir sálfræði núna áðan þar sem ég fékk einmitt þessa spurningu. Þetta er svona álíka heimskuleg spurning og hver er tilgangur lífsins!!
Þ+o eg viti alveg hver sé tilgangur lífsins!!! DJAMMA!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Þó svo að það hafi ekki verið gama á föstudaginn. huh

Sunday, January 23, 2005

Jæja Folks! Sunnudagur og hvað stendur eftir?? Kannski það að ég ætlaði út að jamma á föstudaginn sem ég reyndar gerði en það var bara ekkert gaman:( Disapointment helgarinnar á ég !! Loksins þegar ég ætla virkilega að skemmta mér er bara ekkert gaman:( Og ég er að taka eftir öðru að þegar ég er virkilega þreytt þá verð ég gegt geðvond og neikvæð og hundleiðinleg!! Hana nú

Friday, January 21, 2005

HALLÓ ÞAÐ ER FÖSTUDAGUR EF ÞIÐ HAFIÐ EKKI TEKIÐ EFTIR ÞVÍ!!Allt í lagi að vera svoldið skrýtinn svona á föstudögum. Ihh hvað á ég við með því að það sé allt í lagi að vera skrýtinn á föstudögum þegar ég er virkilega skrýtinn alla daga vikunnar allan ársins hring?? Skiptir ekki öllu máli kannski;)

Til hamingju með það strákar að bóndadagurinn er í dag sem þýðir að nú fara menn að borða hrútspunga hákarl og annan almennan viðbjóð. Og þið lukklegu konur sem eigir bónda þá verðið þið að fara í korsilett svona í tilefni dagsins og vera sætar og huggulegar við bóndann og gefa honum skemmdan og ónýtan mat. Veit ekki hversu mikinn vott það ber um ást á ykkar heittelskaða?? Skiptir kannski ekki höufð máli heldur.

Wednesday, January 19, 2005

Ég fékk áfall áðan þegar ég sá smáþrautina í landafræði áðan. Já ok ég er í landafræði. Smáþraut á að vera e-ð létt í öllum tilfellum nema í þessu. Þá voru alveg hellingur af sspurningum sem voru ekkert séttar eins og hver er söngvarinn í Duran Duran?? Uhh Simon Le Bonn!!! That's correct!!! Nei þettavoru spurningar eins og á hvaða breiddargráðu er Miðbaugs Genía?? Ok ég veit að Miðbaugs Genía er í Afríku en ekki mikið meira! Hver er tilgangurinn með þessu og hverjum langar að vita á hvaða breiddargráðu Miðbaugs Genía er?? Ekki mér!!

Það er eyja til sölu á ebay!!! Common folks heil fokking eyja!!! Hver hefur fokking efni á að kaupa heila eyju?? Eða miklu fremur hvað á maður að gera við eina helvítis eyju?? Jú kannski búa á henni halda útihátíðir um verslunarmannahelgina sem slær út þjóðhátíð!! Bíddu bíddu er hægt að slá út þjóðhátíð í Eyjum?? Nei!!! ÖSS!!

Komst að því í gær að lengsti geisladiskurinn í mínu safni er 6 mín og 13 sek og er 2 laga smáskífa með Pearl Jam including Last Kiss og Soldier of love. 2 æðisleg sem koma manni always í svona nettan partý fíling

Músikk
Mónakó-Ég veit þú skilur mig
Europe-Final countdown
Madonna-Like a prayer
Pearl Jam-Soldier of love


Fönn fönn fönn fönn íslensk fönn:) eða kannski :( Það er snjór gjörsamlega út um allt og ég verð að segja að þetta er ekkert sérstaklega skemmtilegt svona til lengda. En flott lag samt. Fyrsti dagur í skóla eftir veikindi er bara búin að vera allt í lagi ekkert búin að sofna en ég átti nú reyndar alveg von á því. Árni Blandon var að ég held býsna hress í morgunn þó var ég voða lítið að spá í því. Eða nennti því ekki. Hmmm

Tuesday, January 18, 2005

Sælt verið ó þið heilbrigða fólk!! Það er svo langt síðan að ég fór út síðast að ég man ekki hvernig snjórinn er á litinn:/Kannski ekki alveg en svona e-ð í þá áttina. Ég er búin að vera veik síðan á laugardaginn og það er ömurlegt að verða veik á laugardegi því þá kemst maður ekki út að jamma sem segir sig alveg sjáft. þú fer ekki á Pakkhúsið höstlar e-n gaur og hóstar yfir hann vona þegar þú er fust about að fara að skiptast á munnvatni við hann. HÓST!! Nei það ferir maður ekki það er svona ávísun á það að maður verði barinn eða eins og Tvíhöfði orðaði það ÞÚ HEFUR VERIÐ KÝLDUR Í MAGANN!!! Nei og þess vegna ÆTLA ég að fara og jamma um næstu helgi. Hef ekki jammað síðan á nýrskvöld á Pakkaranum. Það var stuð. Veðurguðirnir og svona.

Mæli með að fólk vakni klukkan 7 á morgnana til að hlusta á ZÚÚBER á FM sem er e-r hressasti útvarpsþáttur svona á morgnana til að vakna við. Þau Gassi Svali Jóhanna og Bjarni fara hreinlega á ostum. Bjarni minnir mig á e-n svona mafíósa frá Rússlandi en samt er hann ógeðslega fyndinn. Um hvað tala þau ekki?? Um daginn voru þau að pæla í því að hvort unglingsstrákar myndu horfa saman á klámmyndir og fitla við sig sem sagt í sama sófa. E-ð ógeðfelt að pæla í þessu. Hvort bekkjabræður manns hafi verið saman heima að horfa á Jennu Jameson og þið vitið...! Eg ætla ekkert að fara að lýsa þessu neitt enda langar mig ekki til þess!!

Smá músikk svona fyrir ykkur sem eru að bora í nefið akkúrat þessa stundina!

For none sblondies-What's going on
J.Z&Linkin park-Numb Encore
Ísvörtum fötum-Þrá
Toto-Africa

Smá pæling Brimkló er skrifað með k-i en samt er borið fram g. Ég veit það ekki

Friday, January 14, 2005

Hjalló elsku litlu sætu kettlingarnir mínir:) Það er gordeous föstudagur í dag hellingur af slabbi og veseni sem allir eru að elska og þá sérstaklega ég!!!! Eru gúmmistígvél ekki málið?? Og síhærðar nærbuxur. Nei það heitir síðar nærbuxur! Að vera í síðhærðum nærbuxum er að vera geðveikt loðinn á löppunum. Ihh nú er ég að koma sjálfri mér í vandræði vegna þess að ég man ekki hvenær ég rakaði a mér leggina enda eru þeir alveg...hvernig á ég að orða þetta snyrtilega...kafloðinn á löppunum!!! Hvar í andsk. fékk ég öll þessi líkamshár?? Sko ég er meira að segja með sportrönd!!! Sexý..ehh nein (Hey vá þýska mar!) Það mætti alveg að ég hefði verið í partýi í Austur Þýskalandi og ekki farið í háreyðingu heldur látið strá alveg helling af hárum út um allt á mér! Dísus! Annrs voru partyin í A-Þýskalandi ekki beint glæsileg ef marka má Kleifarvatn Arnaldar Indriðasonar(sem er nota bene snilld!). Alir að fylgjast með hvaða skoðanir menn höfðu og svona. Bara stunduðu persónunjósir dauðans og síðan var liðinu hent úr skólanum ef það hafði aðrar skoðnir en kommarnir! Síðan var ekkert um svona partýpinna enda hjá íslendingunum í Leipzig bara sviðakjammar og ónýtur íslenskur matur, Sem minnir mig á það að þorrinn er að byrja á föstudaginn með öllum sínum viðbjóðslega mat. VÁ hvað þetta er íslenskt e-ð að fíla hákarl og drekka ísenskt brennivín!! VÁ hvað það er íslenskt e-ð! Ekki fíla ég þaðenda vil ég frekar sushi eða kínverskan mat og svona. Af hverju eru íslendingar með svona geðveikt fríkaða matarmennigu en ekki svona eins og frakkar eða ítalir eða kínverskur matur. Af hverju þarf okkar gamla matarmenning að vera svona ógeðsleg e-ð?? huh ekki sátt!! En hvað er ég búin að vera bulla hérna eg ætlaði bara að kongurinn er að koma í næstu viku(og þeir sem misskilja þetta með kónginn þurfa special treatment hjá sálfræðingi!) og það er ekki elvis. VÁ hvað er sorglegt að sjá þessar elvis eftirhermur sem eru spikfeitir og ógeðslegir i gallanum hans elvis(kannski ekki í gallanum en þið skiljið hvað ég er að meina huh!) Það er eins og þessir gæjar skilji ekki að það var BARA einn elvis!! VÁ hvð ég er bara að bulla hérna! huh

Thursday, January 13, 2005

Ihh síðast þegar eg bloggaði þá fór allt i error e-ð sem er ekki sniðugt. En eins og Alyjah heitin söng hér um árið þá bara try again!

Merkilegt hvað kennararn geta talað alveg ógeðslega mikið. Ég er í miku af svona kjaftaföum núna eins sögu(sem er bara gaman) og þá eru kennararnir að deila út af sínum viskubrunni og eru bara með munnræpu. Sumt er voðalega gagnlegt að vita annað ekki og sumt langar manni ekkert að vita. Og allt sem manni langar ekki að vita þæa þekkingu ær maður í sálfræðitímum. Og hað gerir maður til að reyna að vaka í tímum hjá kennurum sem hafaekkert betra að gera annað en að tala ío klukkutíma annað en að spá hvort þeir séu ekki að verða þurrir í kjaftinum??
Jú tekur upp á e-u sérdeilis prýðilega einhverfu e-ð. Svona eins og það sem ég gerði í salfræði í morgunn. Settist með stílabókina mína og byrjaði að skrifa HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!! Og á klukkutíma náði ég að skrifa rúma hálfa blaðsíðu af HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!! (Hey we're medical hands twins!!!) Síðan for ég í sögu og hélt áfram þar og er n+u komin með eina og hálfa blaðsíðu af HAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!! Og ég mun halda áfrm með þetta HAHAHAHAHAHA dæmi mitt klukkan 8 á mánudagsmorgunninn til að reyna að halda mér vakandi. Þið sem skiljið ekki þessa einhverfu mína þá er setta ekki spurningin um survival of the fittest heldur bara að halda sér vakandi í tímum hjá kennurum með munnræpu!! ÖSS!!!

Monday, January 03, 2005

Mín stærsta martröð allavega í dag er að skólinn byrjar e-n tíma núna í vikunni og þá þarf maður að fara að vakna klukkan 7 á morgnana þegar maður er algjörlega búinað snúa sólarhringnum við. Kræst hvað maður er búin að hafa þa alltof gott núna um jólin!!!!!!

Sunday, January 02, 2005

Jæja! Míns var að tapa fyrir litla bróður í partý og co og ég er alls ekki sátt. Hvað er í gangi?? Jah maður spyr sig óneitanlega . Eg hélt að skýringin hafði verið allir sætu strákarnir hjá Laufeyju um daginn en ég veit að ekki kannski er maður vitlausari en maður heldur.

Sá Stuðmannamyndina Í takt við tímann í dag. Gamla fólkið splæsti. Ekki leiðinlegt. Og ég meina þið þarna húmorslausu kvikmyndagagnrýnendur lærið bara að meta ennan húmor. Mér fammst þetta geðveiktfyndið. Tek smá brot sem mér fannst algjör SNILLD

"Votta þér samúð" "Nei nei ég fæ mér bara aðra sneið!!"

HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHA

Og ég verð örugglega skömmuð af fólki sem hefur ekki séð myndinaen ég sleit þetta algjörlega úr samhengi þannig þið verðið að sjá myndia til að fatta brandarann. En ég var að fatta geðveikt fallegan karmann sem er Hössi í Quarashi. GRRRRRRRRRRRRRRRRR!!!! Segi ekki annað.

Saturday, January 01, 2005

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla kæru (leg)hálsar! Nýársdagur er bara einn allra mesti letidagur ársins sem er ekkert skrýtið enda allir þunnir og ógeðslegir og á leiðinni á jammið á nýárskböld. Og spruning hvort maður verði öskrandi e-ð á Pakkaranum í kvöld eins og KODDU AFTUR TIL MÍN DÍSA-DÍSA MÍN (ÞETTA Á AÐ VERA Í FALSETTU!) og so videre! Meina ég verð að fagna nýju ári og góðu gengi í Trivial Persuit í nótt. Já okkur famelíunni var boðið í kaffi hjá nágrannafólki okkar og lenti þar í að spila Trevial Persuit og var þar með 4 kökur. Og við erum eiginlega að tala um að þetta var fullorðinsútgáfan. Og þ.að er eiginlega að bæta upp fyrir allt of slakan árangur í Partý og co í jólaboðinu hjá Laufeyju og það er ég ekki sátt við sérstaklega þegar Party og co er til hér á heimilinu. En ég held að ég hafi staðaið mig ágætlega í popppunkti hjá Lalla frænda á aðfangadagskvöld. Og það get ég þakkað óhóflegri hlustun á Bylgjuna enda veit ég á Þorgeir Ástvaldsson var í Tempó sem hituðu upp fyrir e-r heavy bönd á þeim tíma

Skaupið var í gærkvöldi og það var bara andsk. gott!! Saxi læknir er vonandi að fara að detta inn aftur. Örn Árnason er frábær leikari og þá sérstaklega í hlutverki Kristjans Jóhannssonar sem fékk sinn skammt og var búin að vinna sér inn fyrir honum! ÖSS þetta var dýrt!

Horfði á N+oa Albinóa og þetta er spes mynd get ekki sagt annað en staðfestir samt a' maður fær 0,5 á prófi fyrir að skrifa nafnið sitt. Veit það þegar eg fer í þýsku prófið í vor. ÉG fæ hroll bara við tilhugsunina

Allir út að jamma á árinu 2005 það er það eina sem ég mæli með í dag! Gerum þetta ár að djammárinu 2005!!!