Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla kæru (leg)hálsar! Nýársdagur er bara einn allra mesti letidagur ársins sem er ekkert skrýtið enda allir þunnir og ógeðslegir og á leiðinni á jammið á nýárskböld. Og spruning hvort maður verði öskrandi e-ð á Pakkaranum í kvöld eins og KODDU AFTUR TIL MÍN DÍSA-DÍSA MÍN (ÞETTA Á AÐ VERA Í FALSETTU!) og so videre! Meina ég verð að fagna nýju ári og góðu gengi í Trivial Persuit í nótt. Já okkur famelíunni var boðið í kaffi hjá nágrannafólki okkar og lenti þar í að spila Trevial Persuit og var þar með 4 kökur. Og við erum eiginlega að tala um að þetta var fullorðinsútgáfan. Og þ.að er eiginlega að bæta upp fyrir allt of slakan árangur í Partý og co í jólaboðinu hjá Laufeyju og það er ég ekki sátt við sérstaklega þegar Party og co er til hér á heimilinu. En ég held að ég hafi staðaið mig ágætlega í popppunkti hjá Lalla frænda á aðfangadagskvöld. Og það get ég þakkað óhóflegri hlustun á Bylgjuna enda veit ég á Þorgeir Ástvaldsson var í Tempó sem hituðu upp fyrir e-r heavy bönd á þeim tíma
Skaupið var í gærkvöldi og það var bara andsk. gott!! Saxi læknir er vonandi að fara að detta inn aftur. Örn Árnason er frábær leikari og þá sérstaklega í hlutverki Kristjans Jóhannssonar sem fékk sinn skammt og var búin að vinna sér inn fyrir honum! ÖSS þetta var dýrt!
Horfði á N+oa Albinóa og þetta er spes mynd get ekki sagt annað en staðfestir samt a' maður fær 0,5 á prófi fyrir að skrifa nafnið sitt. Veit það þegar eg fer í þýsku prófið í vor. ÉG fæ hroll bara við tilhugsunina
Allir út að jamma á árinu 2005 það er það eina sem ég mæli með í dag! Gerum þetta ár að djammárinu 2005!!!
No comments:
Post a Comment