Hjalló elsku litlu sætu kettlingarnir mínir:) Það er gordeous föstudagur í dag hellingur af slabbi og veseni sem allir eru að elska og þá sérstaklega ég!!!! Eru gúmmistígvél ekki málið?? Og síhærðar nærbuxur. Nei það heitir síðar nærbuxur! Að vera í síðhærðum nærbuxum er að vera geðveikt loðinn á löppunum. Ihh nú er ég að koma sjálfri mér í vandræði vegna þess að ég man ekki hvenær ég rakaði a mér leggina enda eru þeir alveg...hvernig á ég að orða þetta snyrtilega...kafloðinn á löppunum!!! Hvar í andsk. fékk ég öll þessi líkamshár?? Sko ég er meira að segja með sportrönd!!! Sexý..ehh nein (Hey vá þýska mar!) Það mætti alveg að ég hefði verið í partýi í Austur Þýskalandi og ekki farið í háreyðingu heldur látið strá alveg helling af hárum út um allt á mér! Dísus! Annrs voru partyin í A-Þýskalandi ekki beint glæsileg ef marka má Kleifarvatn Arnaldar Indriðasonar(sem er nota bene snilld!). Alir að fylgjast með hvaða skoðanir menn höfðu og svona. Bara stunduðu persónunjósir dauðans og síðan var liðinu hent úr skólanum ef það hafði aðrar skoðnir en kommarnir! Síðan var ekkert um svona partýpinna enda hjá íslendingunum í Leipzig bara sviðakjammar og ónýtur íslenskur matur, Sem minnir mig á það að þorrinn er að byrja á föstudaginn með öllum sínum viðbjóðslega mat. VÁ hvað þetta er íslenskt e-ð að fíla hákarl og drekka ísenskt brennivín!! VÁ hvað það er íslenskt e-ð! Ekki fíla ég þaðenda vil ég frekar sushi eða kínverskan mat og svona. Af hverju eru íslendingar með svona geðveikt fríkaða matarmennigu en ekki svona eins og frakkar eða ítalir eða kínverskur matur. Af hverju þarf okkar gamla matarmenning að vera svona ógeðsleg e-ð?? huh ekki sátt!! En hvað er ég búin að vera bulla hérna eg ætlaði bara að kongurinn er að koma í næstu viku(og þeir sem misskilja þetta með kónginn þurfa special treatment hjá sálfræðingi!) og það er ekki elvis. VÁ hvað er sorglegt að sjá þessar elvis eftirhermur sem eru spikfeitir og ógeðslegir i gallanum hans elvis(kannski ekki í gallanum en þið skiljið hvað ég er að meina huh!) Það er eins og þessir gæjar skilji ekki að það var BARA einn elvis!! VÁ hvð ég er bara að bulla hérna! huh
No comments:
Post a Comment