Thursday, January 27, 2005

Hvað er uppi?? Ég skal segja ykkur það að ég veit það ekki:/
Sá Fólk með Sirrý í gær þar sem hún var að reyna að hjálpa fólki að fá betri fullnæingu og kræst hvað hefði maður gert ef mamma manns hefði hringt inn og borið upp e-a fáránlega spurningu eins og Maðurinn minn á við ris vandamál að stríða og það hefur verið alveg síðan við byrjuðum saman fyrir svona 30 árum hvað eigum við að gera?? Hann hefur þrisvar náð 'onum upp og það var þegar litlu sólargeislarnir okkar komu undir ekki segja að viðeigum að koma í meðferð við þorum það ekki að vera að tala við ókunna manneskju um kynlíf okkar!!! Ef þetta case hefði verið svo mikið sem skillt mér þá hefði ég skráð mig á al-Qaeda strax í gærkvöldi og þá stæði heimili mitt örugglega ekki upprétt. Mundi alla vega ekki fara út úr húsi í ár til að sleppa við komment á borð við Mamma þín og pabbi eiga í erfiðleikum í kynlífinu hehehehe!! Svo yrði bara hlegið. Og mann langar til að hverfa af yfirborði jarðar!! Svona til að fyrirbyggja allan misskilning þá held ég að foreldrar mínir hafi ekki séð þáttinn í gærkvöldi.
Hjúkk mar en tek það fram það er ekki hjúkka. Ok ok vondur brandari ég veit það:( Ég ´'a bráðum afmæli endilega gefið mér brandara handbók!!

No comments: