Thursday, January 27, 2005

Vissi ekki að það væri íslensk windows í tölvunum hérna í skólanum. Eiginlega alveg ógeðslega fyndið e-ð! Þegar maður kemur inn í tölvuna þá kemur alltaf svona saving your settings e-ð en nú kom e-ð geymi allar þínar skrár!! Svona r2d2 effect. Allt svona geimverulegt. Mér líður vna eins og e-m star wars kalli. Geimveru á geimskipinu Íslenska Windosið!!! Múúúúhahahaha(Núna heyrðust svona heavy hryllinsmyndasound) Og konan í sturtunni er alveg að flippa því hún sá geimveruna Start nei nei sorry geimveruna Ræsa átti ég við þetta er að sjálfsögðu allt íslenkar geimverur:/ Er hægt að finna furðulegari mannekjur en mig?? Nah það er frekar erfitt:)

Ísland vann sinn fyrsta leik á HM í handbolta í gær. Þetta var reyndar leikur sem við áttum alveg að klára. Þetta voru Kúveitar sem eru ekkert svona spes í handbolta engnir svíar. En það sem truflar mig mest að í leikslok þá unnum "við" bara með 9 mörkum. Þegar við hefðum eiginlega átt að vinna þá með svona 20-30 mörkum! Rússar unnu þá með 28 mörkum og við erum að spla við þá á morgun og við verðum að vina þan leik til að eiga e-a raunhæfa möguleka á því að komast upp úr riðlinum. En ef það er engin leikgleði í liðinu þá gengur þetta á engan hátt upp. Leikurinní gær var heinlega leiðinlegur og "strákarnir okkar" voru ekki að sýna það sem þeir raunverulega geta að mér fannst. Og ef leikir eru ekkert skemmtilegir þá nennir maður ekki að horfa á þá og fer að horfa á Sirrý tala um fullnægingar og svo eftir það á Exstream make over! Þó að það séu nokkrir sætir í landsliðinu;) Svona eins og Guðjón Valur!!! Slurk! Viggó (ekki sætur reyndar) þarf að reyna að virkja leikgleðina há "strákunum okkar" til að við eigum raunhæfa möguleika á að vinna Rússana sem við by the way verðum að vinna til að komast áfram. Þannig að elsku "dúllurnar okkar" hafið bara gaman að þessu á morgunn og komið með sömu gleðina inn í leikinn og var í Svíþjóð 2002!

Magnus var að skora a mig að fara að fá mér teljara þvi ég held þvi fram að það er aðeins einn maður sem er nógu vitlaus til að lesa þetta crap hjá mér. Það er spurning hvort maður láti verða að því að fá sér smá svona teljara?? Veit ekki

No comments: