Wednesday, February 09, 2005

GEISP!!! Ég er þreytt!! Kannski mar eigi að fara og eyna að syngja fyrir nammi e-s staðar þó að ég eigi ekki góða minningar frá því að hafa verið að syngja svona í búðum hérna í gamla daga. Mér var oftast hent út og góð hjartaðir kaupsýlumenn vildu alveg gefa mér nammi það var ekki vandamálið. Vandamálið var að ég er ekki terk á söngsviðinu og er almennt talin bara fölsk og er það ein af ástæðunum fyrir því að ég fékk ekki að syngja í Hey þú í fyrra!!! Var svo sem alveg sátt við það að vera bara dyravörður og var miklu flottari en Már verður nokkurn tíma. En hins vegar skammast ég mig fyrir hitt hlutverkið þar sem danshæfileikar mínir komu ekki í ljós!! Og ég hugaði einu sinni rétt áður en ég fór inn á sviðið skyldi fólk stoppa mig út á götu og spyrja mig hvort ég hafi ekki verið snarklikkaða hjúkkan í Hey þú!!! Og ég er ekki að djóka með þetta. Og hvað þá þegar ég sá atriðið á dvd (pælið í því hvað mar er celeb mar er á dvd!!) þá langaði mér að búa í Síberíu (það er ógeðslega kalt þar!!).

Til a geffa ykkur hint um hvar ég er staðsett þá er hér stúlkukind við hliðina á mér að lesa Grafarþögn eftir Arnald Indriðason. Og ég á hana!!! Flottar bækur hjá kappanum sem allir eiga að lesa. Kleifarvatn er til í mínum bókaskáp og hún er bara brilli eins og allar hans bækur! Ok eg er inn á bókasafni af því að það er frí í sálfræði og ég er að segja ykkur það að ég er ekki að gráta það neitt specially að það sé frí hjá Árna Blandon. Nei það er ljúft. Þá getur mar bloggað eins og ég er reyndar að gera nuna.

takiði 19 og 21 maí frá núna vegna þes að þá er eurovision eða partý út um allt. Æ-i þetta hljómaaði aðeins of mikið eins og Love gúru

No comments: