Jahá það er mánudagur. Og það eru allir að rifna úr hamingjusemi yfir að helfin sé búin og menn geta farið að gera algebru á ný. Eða er það ekki?? Nah kannski var þetta nú svona óþarfa bjartsýni hjá mér að allir væru happy svona á mánudegi! Svo er e-ð að liði á bömmer með að hafa hringt í sinn/sína fyrrverandi blindfull/ur og sagt einfaldlega Þú ert ömurleg/ur í túminu!!
En sem betur fer er ég ekki að kannast við neitt að þessu enda í gær...já í gær mátti hreinlega halda að ég væri fjölskyldumanneskja eins og eg fengi bara borgað fyrir það ! Ég var búin að klæða mig OG búin að búa um rúmið mitt rétt eftir klukkan hálf 10!!!!! HALLÓ! Ég er ekki að skilja þetta. Svo til að toppa þetta þá var ég komin í sund um eitt leytið. Og þaðgerir þetta eiginlega enþá verra. Bara vantaði kallinn krakkana og station bílinn!!! Jah hvað er í gangi?? Og ég ætla að heita sjálfri mér því að ég fer út að skemmta mér um næstu helgi hvað sem tautar og raular!!!
No comments:
Post a Comment