Monday, February 28, 2005

Laufey er stödd í húsmæðraskóla e-s staðar á Langanesi held ég.Ég er samt nokkuð viss að hún nái ekki FM þar og þar eru sennilega engir ljósabekkir heldur (eftir að ég sá allar busa síðurnar í gær þá komst ég af hverju þessi blessaða hnakka mynd er föst á self!! Þetta lið hugsar ekki um annað en ljósabekki og um að blása á sér hárið all day long. huh!). En eins og ég greindi frá e-n tíma er ég að fara á matreiðslunámskeið af því að ég kann ekki að elda en nei nú er Laufey bara orðin zúúber húsmóðir og kann að elda ( ég get alveg vitnað um það eftir að ég smakkaði dorítos réttinn hennar í jólaboðinu en nei ég koma bara með snakk!!) á meðan ég þarf að eyða heilum eftir miðdegi hjá Villa naglbít að læra að elda kjúkling eða e-ð!! Hey ég er að fatta svoldið pabbi Laufeyjar hann Lárus er kokkur þannig að hún á nú ekki langt að sækja hæfileikana stúlku kindin!!! Hún fór meira að segja á papaball um daginn og var ekki að bjóða mér með. huh!! Sem er svoldið fúlt vegna þess að á Kátu daga ballinu '03 (vá hvað mar er orðin gamall!) voru þa þeir að splia og það var alveg ógeðslega gaman!! Þeir voru reyndar líka á Kátu daga ballinu í fyrra en þá átti ég ekki pening en er ekki jamm á Pakkhúsinu á fimmtudaginn bara eins og var í fyrra kvöldið fyrir Flóafár þar sem Þorláksbakki united (veit um eina manneskju í liðinu sem heldur með Manchester united þannig að ég er ekki sátt við nafnið. Ég held sko með Liverpool enda koma þeir frá Bítla borginni og eru bara BESTIR!!!!!!) ætlar sér að sjálfsögðu sigurinn!! ÁFRAM Þ.B.UTD.!!!!

No comments: