Ég vil bæði lifa og vona ég vil brenna upp af ást ég vil lifa með þér svona ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér
Wednesday, February 16, 2005
Michael Jackson fékk flensu og það lá við að RÚV hætti að sína Leiðindaljós sem er reyndar sér kafli út af fyrir sig. Það átti að hætta að sýna þessa þætti í e-n tíma en það varð allt crazy í aðdáendaklúbbnum sem hittist alltaf og poppar saman og hefur það kózý yfir Guading Light. En þetta er fólk sem á sér ekkrt líf. Ég hef reyndar verið atvinnulaus og dottið inn í Glæstar vonir og það er auðveldara en fólk heldur!! Ég vissi allt um brúðkaup Amber og Rick og hvað Amber var mikil tík og þetta var eiginlega spennandi!! Þannig að heilt sumar átti maður sér ekkrt líf var bara atvinnulaus og horfði á glæstar. Þannig að það e-ð mikið að fólki sem fílar glæstar og ég er í þeirra hópi!! Segir kannski bara allt um mig.Ihh á maður að stroka þetta út af því að maður verður hreinlega fyrir aðkasti út á götu. En allavega þá var sennilega allar helstu fréttastofur með beinar útsendingar frá því þegar Michael Jackson var fluttur á spítala í gær. Þetta er nákvæmlega það sem ég var að tala um að gjörsamlega allt í kringum þennan mann er svo öfgakennt að það er nóg að hann fái flensu til að menn hætti að sýna beint frá Írak og skipti beint yfir á sjúkrahús í Santa Maria því þar er poppkongurinn með flensu. Pælið í þessu!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment