Friday, February 25, 2005

Mikið var gott að sjá að það eru fleiri en Björgvin sem eru lengi að tala þegar ég kom úr umsjón áðan. Hann er svoldið lengi að tala grey kallinn. En samt með húmor sem bjargar þessu en engin Petur Jóhann samt sem er snillingur. Ef þið sáuð ekki Strákana og eigið ekki vídeo þa vitið þiðekki um hcað ég er að tala. Meina maðurinn tók köttinn fyrir Evu Mendez. Sá ekki svipinn á henni því ég var að hella Lightara í glös fyrir okkur systinin því það var bara munaður og pöntuð pizza og brauðstangir á liðið. En ég á hann (svipinn sko) á vídeói og horfi á þetta aftur við tækifæri. En Sugababes gellurnar urðu bara hræddar þegar Pétur tók köttin enda vart komnar af gelgjunni. Eru þær ekki svona 16-17 ára eða e-ð?? Það var ógeðslega fyndið. Og Pétur Jóhann er snillingur þótt að hann geti ekki hlaupið hvað þá hoppað!! Enda var hann bara að gera annað hjóla á BMX og tala við skvísur og svona. Já já ég er búin að horfa nokkrum sinnum á commentteríið með 70 mín 3 sem er snilld!! Eins og allt annað!! Ég bíð bara eftir að það verði sýnt frá blaðamannafundinum með Will Smith þar sem þeir hleyptu öllu upp og Pétur tók köttin að sjálfsögðu!!! Það verður allt sýnt í næstu viku. Svo talandi um snillinga. Ég ætla að telja upp 10 lög með Nýdönsk sem öll eru góð bara til að sanna að þeir eru snillingar. Ok þá byrja ég. Fram á nótt. Hjálpaðu mér upp. Frelsið. Nostradamus. Þá kemur þú. Konur ilma. Holmfríður Júlíusdóttir. Horfðu til himins. Kirsuberið. Flugvélar. Sko ekki erfitt!!! Þetta er svona band sem kann að gera góða hitara. Haustið 2001 voru allir með Lærðu að ljúga á heilanum en það var ógeðslega vinsælt þá um haustið. Æ-i hvað þetta minnti e-ð á dr. Gunna sem er reyndar gott enda er hann snillingur og höfundur Biblíunar. Það er einn og sami maðurinn!!! Það fer svoldið vel saman.

Magni er reiður ungur maður auk þess að vera söngvari Á móti sól

No comments: