Ég vil bæði lifa og vona ég vil brenna upp af ást ég vil lifa með þér svona ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér
Monday, February 28, 2005
Míns tókst að væla út fartölvu hjá Úlfi landafræði kennara. Hann er að tala núna um e-ð sem heitir lýðfræði og er bara algjört rugl eða bara til að vera nákvæm þá er hann að tala um lýðfræði Íslands. Vildi að ég gæti sagt að þetta væri áhugavert en ok þetta sleppur-allavega núna. Jæja nú er það orðið opinbert (var gert í morgunn þó svo að ég hafi vitað en ég hef bara góða heimildarmenn!) að Á móti sól munu sjá um að fólk muni missa sig á dansgólfinu á Kátu dga ballinuá föstudaginn og ég bara treysti því að það verði ógeðslega gaman í Hvíta húsinu á föstudaginn. Það er nátturulega alltaf gaman þar en bara mismunandi gaman. Smá flash back hérna. Halloween ballið 2002 (jájá ég er í alvöru farin að spá að gá að plássi á elliheimilinu Grund!!) var haldið í Inghóli. Svona 500 manns í kofanum og alveg ógeðeslega gaman. Land og synir að spila og ég hafði 2 vikur til að pæla í því hvað ég gæti verið á ballinu og það iena sem mér datt í hug var PIZZASENDILL!!! Ég er að segja ykkur það að míns þjáist af hugmyndaskorti og það sannaðist þarna. Reyndar datt mér í hug að klæaða mig upp í latex búning og vera með svipu en ég var svo ung að mér var ekki hleypt inn í búðir með dót fyrir fullorðið fólk!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment