Hey bjórinn á víst afmæli í dag!!!! Til hamingju með daginn þið bræður þarna Carlsberg Tuborg Grolls Heineken og Budweiser. Í tilefni ætla ég að fá mér Lightara!!!! Af því að ég er AA manneskja. Þó er dagurinn eftir djamm alltaf ógeðslega erfiður hjá mér!!! Það eru allir að segja að ef mapur er edrú á djamminu þá verður dagurinn eftir djamm bara eintóm hamingja og eilíf gleði veistu ég er bara ekki samála þessu!!! Af hverju verð ég alltaf svona syfjuð geðvond og bara yfir höfuð frekar ógeðsleg?? Jah maður spyr sig óneitanlega að því þegar maður pælir í því!!! En ég er náttúrukega öðruvísi en allir aðrirþannig að það er ekkert að marka það. Talandi um djamm þá var ég að fatta svolítið skelfilegt ég hef aðeins djammað 3 helgar á þessu herrans ári 2005!!!!! Díses Kræst!!! Ég verað fara að bæta við mig. Og var míns ekki a tala um það að gera árið að 2005 að djammárinu mikla?? Ef míns misminnir ekki þá sagði ég það. En nú er komin mars allir að fá útborgað (jah þeir sem eru í heiðarlegri vinnu!) og það er páskafrí coming up eins og menn segja í Survivor þannig að mar verður að fara að bæta sig e-ð. En álið er að það fara allir svo seint út ekki fyrr en um eitt leytið þannig að tíminn á milli 10-00 er ógeðslega erfiður og fyrir mann eskjur eins og míns sem finnst alveg ógeðslega gott að lúlla (sofa) á það á hættu að sofna bara og þetta á sér stoð í raunveruleikanum!! Varð alveg ógeðslega fúl
Fór í Húsið áðan og mikið vildi ég að ég gæti sagt að mér hafi þótt þetta gaman. Hefði Erlingur verið að guida okkur í gegnum Húsið þá hefði þetta sennilega verið meira spennandi!! Það skiptir máli hvernig hlutirnir eru sagðir og helst á lifandi hátt þannig að mar sofni hreinlega ekki. Og þsð var líka ógeðslega kalt. BRR!!!
No comments:
Post a Comment