Hey mér finnst vera alveg heavy pressa á því að þetta blogg sem ég skrifa núna verði alveg svaðalega fyndið og skemmtilegt vegna þess að ég skráði þetta krútt mitt í bloggkeppni sem er hluti af Kátum dögum í fsu sem eru að byrja núna um eitt í dag. Sem minnir mig á það að ég er að fara á matreiðslunámskeið í dag!! Það verður e-ð svaðalegt. Ég meira að segja held að Meistari Magnús kunni ekki að elda og er þess vegna líka á leið á matreiðslunámskeið hjá Villa naglbít. Einhver var búin að leggja saman 2 og 2 og fá út átæðuna fyrir því að ég væri að fara á þetta námskeið og það væri vegna þess að ég hefði e-ð fallegt til að horfa á (Villi naglbítur!!) en þá reyndi ég að koma með þessa klassísku ég kann ekki að elda afsökun. En nei það var ekki að virka því þá kom bara Hey ég kann ekki heldur að elda!!!! huh!! Kannski er ég að fara þarna bara út af Villa kannski út af því að meirihlutinn þarna verður að ég held karlmenn (hvað segir það um mig??) eða að það sé út af því að það eigi að elda kjúkling?? Jah maður spyr sig.
Fyrir einu ári nákvæmlega í dag þá bloggaði ég í fyrsta skipti á ævi minniþannig að nú er djammstrumpurinn 1 árs í dag. Þá sat ég uppi á 2. hæð og Laufey hjálpaði mér að skrá mig inn á bloggerinn (ég kann ekki á tölvur!). Í minni fyrstu færslu þá skrifaði ég svona um það að sveitastrákar ættu ekki að vera að hafa fyrir því að reyna við mig og ég var á leið í félagsfræði 203. Fyrir ári síðan var allt crazy í mínu lífi út af þessu Hey þú dæmi það var stutt í frumsýningarpartýið sem var eiginlega ekkert gaman og eurovision var að detta inn (Jonsi var að far til Tyrklands!) og ég missti mig á takkanum með langa nafninu!!! Kannski ekki allt á sama deginum en í þessum mars mánuði var þetta allt í gangi!
Mikið ofsalega er ég farin að efast um skemmtanagildi þessara færslu minnar enda veit ég ekki hvað er í verðlaun en það kemur bara í ljós. En eitt af því sem ég fór að pæla í þegar ég var að horfa áStrákana í gærkvöldi (Sveppi var að gera tilraun. Reyndi að hoppa ofan í ruslafötu af trambolíninu hjá Gerplu. Ég segi bara Don´t try this at home!!) Hvað í andskotanum er naflakusk?? Ég held að ég hafi ekki fengið þennan tiltekna sjúkdóm en hvað í andskotanum er þetta?? Meira að segja að þá hafa vísindamenn sem hafa ekkert að gera (flestir þeirra hafa ekkert að gera en það er annað mál!!) eytt örugglega svona 10 árum í að rannsaka þetta fyrirbæri og ég verð að viðurkenna það að ég hef aldei fengið þetta svonefnda naflakusk. Og ég bara spyr aftur hvað er naflakusk?? Svör óskast í commentin!! + það þá er nemendaráð æðislegt á fá ÁMS á ballið á fös. Ég hef ekki farið á ball með þeim síðan í Njálsbúð 2003 og VÁ hvð var gaman!!
No comments:
Post a Comment