Okei tilraun 2 hin fór completly í vaskinn. Míns er happy og allt það enda í páskafríi!!
Djamm á síðasta lau. Pakkhúsið er einfaldlega málið þegar mar vill far aog hitta annað fólk skemmta sér vera fyrir og láta hella yfir sig áfengi. Sem er galli en var ekki að skemma kvöldið. En var samt alveg óþarfi. Þetta var e-r svona viðbjóður vond lykt af þessu og mar varð blautur. Og þú þarna sem tímdir að hella yfir mig rándýrum söngvökva sem kostaði sennilega sitt (óáfengir kokkteilar eru á hátt í 1000 kell tala af reynslu!) þú ert alls ekki velkomin íafmælið mitt nema til að taka til. Ég á það inni hjá þér elskan. Mér var meria að segja boðið skot sem var e-r kveldúlfur eða e-ð en ég neitaði vegna þess að glasið innihélt ekki gos þannig. Ég held að ég sé frekar ódýr þegar kemur að því að bjóða mér í glas. Einn lætari og málið er dautt. 250 kell! Það er ekki neitt miðað við það hvað menn geta verið að eyða á svona búllum. Tala nú ekki umm á svona súlustöðum. Það getur farið svona einn fokking bíll á einu kvöldi!!!! VÁ það er svoldið sem ég myndi aldrei tíma! 500000 kell kannski! Ég myndi hiklaust velja bílinn!! Sá eynda Valla Reynis á svona blæjubíl áðan. Audi e-ð. Míns vill fá svoleiðis í afmælisgjöf!!!
Gísli Marteinn sleppti því alveg að reyna vera fyndin og sætur (Logi Bergmann sá alveg um það!) og frumsýndi myndbandið við eurovision lagið okkar Íslendinga (huh??) If I had your love sem hún Selma okkar eða bara Selmitz syngur (hún fékk alla sönghæfileikana sem ég átti að fá!) og er eftir þá Þorvald Bjarna Idol dómara og Todmobil gúru og Viggi í Írafár sem má alveg fara í klippingu áður en hann skellir sér út til Úkraínu. Svavar Örn verður með þannig að ég trysti því að hann geri e-ð róttækt í málunum!! Eins og maðurinn er sætur en með allt þetta hár...ihh nei! En lagið. Já lagið er alveg drullu flott það er hægt að dansa við það sem skiptir miklu máli það er grípandi og með upphækkun!! Svona eins og vel flest lögin í þessri keppni!! En það var svoldið mikill gleðibankafílingur í fólki ( enda allir í bjór ) þarna og menn bara búnrir að panta Egilshöllina og keppnin verður hérna á ári og so viðere. Passa þetta íslendingar mar man eftir stigagjöfinni í fyrra þar sem þjóðirnar á Balkanskaganum gáfu hvor annari stig alveg hægri vinstri og við erum í undankeppnini í ár og það þarf að komast upp úr henni en ef það gerist þá getur verið partý í Rvk á næsta ári. Það væri ekki leiðinlegt!!!
No comments:
Post a Comment