Bubbi er algjör snillingur fyrir ykkur sem ekki vissuð það! Í sumar eru 2 plötur væntanlegar með meistaranum (eða var það Megas??) sem koma út þann 6. júni þegar meistarinn verður 49 ára. Já Bubbi er að ég held eða samkvæmt öllum skemmtana fréttum í París að klára plötuna með honum Barða í Bang Gang og þaðer komin ný smáskífa sem heitir Þú og er svona framhald af laginu Fallegur dagur sem kom í fyrra sumar og er með allra flottari Bubba lögum. Og meistarinn á víst að vera í alveg svaðalegu formi þessa dagana og er búin að vera að semja eins og ég veit ekki hvað. Þannig að ég er bara að bíða eftir Bubba plötunum og þetta er ekkert gamalt. Nei nei þetta er allt splunku nýtt og þetta er bara sitthvor platan. Þannig að það verður bara gaman hjá Bubba aðdáendum í sumar!! Og bara tonlistasumarið hérna á Íslandi er að lofa alveg ógeðslega góðu ef marka má Moggan í morgunn þar sem kom fram að Davíð Smári kemur með ballöðu plötu í sumar og títt nefndur Bubbi sagði að hann væri með bestu ballöðu söngvari á landinu á efti Palla Rós og Bo Hall og það er ekki leiðinlegt að fá það frá Bubba!! Svei mér þá!!
Og Hildur Vala er að koma með plötu í byrjun maí og ef míns misminnir ekki þá kemur platan hennar út á afmælisdaginn hennar mömmu sem er 4 maí! Síðan er Sena að endur útgefa alveg heilan helling að plötum vegna þess að á þessu ágæta ári þá eiga nokkrar plötur sem fylla klassíska flokkinn afmæli. Skal gefa ykkur dæmi:
Geislavirkir-Utangarðsmenn-25 ára
Ísbjaranablús-Bubbi- 25 ára
Kona-Bubbi-20 ára
Sumar á Sýrlandi-Stuðmenn-30 ára
No comments:
Post a Comment