Tuesday, April 05, 2005

Halló! Það var snjór úti í morgunn akkúrat þegar ég hélt að núna færi að koma svon ekta Íbiza veður allir berir að ofan á Pakhúsinu um næstu helgi. Bíddu það er þriðjudagur og míns bara farin að láta sig dreyma um næstu helgi!!! Það var bara gaman á lau á Pakkhúsinu aðég nennti ekki með gamla settinu og litla bróður í rvk. Lá bara heima á mínu græna og hafði það kózý marr! Fór í sund snemma á sun og ég hef sennilega aldrei verið svona syfjuð á ævi minni eins og þessar 45 mín sem ég var þarna oní. Ég var gersamlega að deyja ég var svo syfjuð. VÁ hvað þetta er farið að líkjast svona busa bloggum þar sem allt sem blessðir busarnir gera þann daginn er tíundað. Ég get svo svarið það! Það liggur við að busarnir taki það fram að það fyrsta sem þeir gera á morgnana er að opna augun. Svo nákvæmt er það!Eða er að ekki það fyrsta sem mar gerir á morgnana að opna fokking augun?? Herld það. Samt held ég að sumir að þessum busum byrji á því að seta vaxið í hausinn. Og fara í ljós! Vá hvað busar eru spes!! Sér dýra tegund bara!!

Styttist í eurovision og sá á smá net trippi í gær (svona 2 tíma!) að á íslensku síðunni er búið að koma in öllum myndböndunum og öllum atriðunum okkar þannig að ef þið hafið verið búin að drekka of mikið og munið ekki eftir atriðinu hennar Selmu þá getiði séð þá þar inni. Bara sniðugt!
Og hérna eru allir textarnir úr eurovision frá upphafi. Ég er nörd ég veit það!!

No comments: