Gvööð hvað mína langar á fokking þjóðhátíð!!!!!! Shit hvað maður á ekki að fara á þessa síðu þegar manni langar á þjóðhátíð til að hlusta á gömul og góð þjóðhátíðarlög eins og Lífið er yndislegt því þá fer manni að langa alveg svaðalega á þjóðhátíð!!! Ohh ég verð vonandi ekki heima að bora í nefið heldur vonandi e-s staðar með skemmtilegu fólki eins og ég verð reyndar á fös því þá er the óvissuferð!!! Og það er ekki laust við það að ég hlakki svoldið til!!! Biggi og Kristjana fóru í ríkið í dag ekki kannski til að kaupa kókómjólk heldur e-ð að eins áfengara en það, En það á samt ekki að gefa mér enda er mér tjáð að ég eigi að vera á bíl! Sem er allt í lagi fyrir aa manneskjur eins og mig! en alla vega þá verður maður að kaupa myndavéltil að festa allan pakkann á filmu svona Kodak móment e-ð! En hvað verður gert eiginlega?? Mig langar mest til að fara að sjá tónleikinn Bítl en svona...ég efast samt um það! Því er nú ver og miður!!!! Ég óttast það mest að það veri endað í e-u helvítis hópkynlífi upp í e-m helvítis sumarbústað in the middle of nowhere! En ég held að það gerist ekki. Enda er hópkynlíf ekkert spennandi! Það er meira spennandi að syngja Bítalög eins O darling All my loving Eight days a week og fleiri góð. Bítlarnir eigaheilan bunka af lögum sem gaman er að taka í útilegunni um versló! Kannski að menn hafi það í huga!
Smá svona tónlist svona!
Sálin-Þú færð bros
Trabant-Nasty boy
UB40-Kiss and say goodbye
Rod Thomas-Lonly Nomore
Helgi Valur-Death