Nu er klokken elv du má komme hjem til mig! Oh vá hvað ég er mikið dönsku sjéní mar! Núna um jólin verða 2 ár síðan ég verða 2 ár síðan ég varð stúdent í dönsu. Samt get ég ekki talað dönsku. Jú kannski með kartöflu í hálsinum. En þá er það stóra spurninginn myndi hálsinn á manni rúma eitt stykki kartöflu?? Samt efast ég alveg stórlega um það!!
Ég er búin að fara í einn tíma í dag sem var þýska. En það sem kom mér samt mér mest á óvart var að tíminn í morgunn var ekki eins erfiður og ég átti von á. Miðað við tímann í síðustu viku sem var algjört ógeð. En sem sagt var komin hingað heim um 10 leytið og þarf sem sagt ekki að mæta aftur í tíma fyrr en klukkann 14:35. Og það í sálfræði. Veeeii...nei ég get ekki sagt að það verði gaman! Ekki í tíma hjá Árna Blandon!
En samt er það algjör snilld að það eru mánaðrmót á morgunn! How long have i waited??! Síðasta útborgunin og á morgunn mun ég líta út eins og manneskja en ekki eins og Wham! aðdáandi frá Færeyjum. Til að toppa þetta allt saman ætlar kjellingin að splæsa í stípur. Meina hey ég bý í Hnakkville (Selfossi) og maður verður að lítta út eins og er sagt að allir líti út í Hnakkville. En ég hlusta ekki á FM nema þá kannski Zúúber. Og ég á ekki Subaro Impreza. Ég á Yaris! Mikið flottari líka! En vandamálið er samt að vegna þess að skírteinið mitt er útrunnið þá get ég ekki keyrt:( Ég hef ekki keyrt elskuna mína alveg síðan á lau! Sem þýðir að ég hef ekki keyrt í alveg 4 daga!!! Alveg eins og ef e-r hefur ekki stundað kynlíf i 4 daga! Ég lít svoldið á það að keyra eins og að stunda kynlíf. Maður verður hálfpartinn háður því. En það eru bara 5 dagar eftir! I will survive!!
Ég vil bæði lifa og vona ég vil brenna upp af ást ég vil lifa með þér svona ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér
Wednesday, August 31, 2005
Monday, August 29, 2005
Dancing with tears in my eyes! Já það er alveg óhætt að segja það að ég dansi með tárin í augunum og er ástæðan voða einföld: Það var frí í fyrsta í tíma! URRR! Og ef þið eruð ekki að átta ykkur á því hvaða dagur er í dag þá er mánudagur og það væri ekkert leiðinlegt en að fá kannski að lúlla aðeins lengur! URR! Ég er búin að vera á smá nettrippi í skólanum og sá að að Grennday voru að vinna 7 verðlaun á MTV hátíð í nótt en þeir áttu möguleika á að vinna 8 en Gwen Stefani sá alveg um að eyðileggja það. En samt er Gwen Stefani samt voða cool e-ð. Eða er það bara af því að hún syngur lagið u know i cool?? Mig langar aðeins til að útskýra texta tilvitnunina hérna að ofan en þetta er tekið úr lagi með hljómsveitinni Ultravox sem var vona 80's band frá helvíti. Eg heyrði þetta lag í brúðkaupinu hjá Ágústu frænku í sumar (sá hana reyndar taka svoldið spes 80's spor en það er allt annað mál!) og ég verð að segja það að þetta er svona lag sem er bara asnalegt en það er samt svo cool af því að það er einmitt asnalegt. En hérna Duran Duran komu til Íslands í sumar og þá sá maður óhóflega mikið af fólki svona eins og gaur sem heitir Böddi og er e-ð svona hairdo gúrú e-ð og Duran Duran fan Íslands eða e-ð og það var hreinlega skelfilegt að sjá aumingja manninn! Það er eiginllega ekki hægt að lýsa lookinu á aumingja manninum! Eins og klipparinn sem kom e-n tíma í Ísland í dag í sumar í svona Duran Duran upphitun var einmitt með svona Ultravox útlit og kræst það eitt og sér var svoldið krípí! En samt þá hérna lít ég eins og 80's e-ð um hausinn. Var að spá að láta ekki taka svona mikið af hárinu eins og ég er vön en eftir turrtu morgunsins þá fer þetta allt af! Ég með sítt hár?? Alls ekki!! Djö hvað ég hlakka til á fimmtudaginn! Þó er ég ekki að fara á busaball!!
Sunday, August 28, 2005
What?? Það er komin stærri frétt en Hildur Vala og Jón Ólafs þó svo að það sé stórt! En FHingar voru bað tapa sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni síðan í maí sko 04. Ekki 05 heldur 04. Það var sko áður en Jón Ólafs og Hildur Vala hittust. Það er kannski ekki skrýtið að FH var að tapa því það var víst standandi gleði í Hafnafirði eftir leikinn gegn Val um síðustu helgi. En hver átti von á því að FH myndi tapa leik á leiktíðinni?? Alla vega ekki ég. Alls ekki ég!! Var svona hálf partinn að vona að þeir myndu fara í sigraðir í gegnum mótið. Það eitt er í sjálfu sér mikið afrek. Spes að byrja svona á því að bulla um fótbolta! En það er annar í idol sem er ef marka má fréttir aðal hjónabandsmiðlunin. Meina af hverju ekki fyrir gaurana sem eru að sjá um veifi eins og einkamál að loka vefnum bara og láta Simma og Jóa bara sjá um þetta??Bara smá hugmynd. Meina heitasta par ársins leyfi ég mér að fullyrða er Jón Ólafs og Hildur Vala og það er allt í gegnum idolið. Kannski maður skrái sig bara og þá nær maður kannski í Simma! Ihh þetta var nú ssvoldið ljótt maðurinn er giftur og ég er ekki í því að skemma hjónabönd!! En æég verð að hætta þarf að koma draslinu í uppþvottav+elina!!
Monday, August 22, 2005
Craazy! Merkilegt hvað það er endalaust mikið ves að byrja í skólanum aftur. Sérstaklega þegar fólk er ekki ánægt með stundatöfluna sína. Var ekkert voða sátt við að lenda í sálfræði hjá Árna nokkrum Blandon eða vera með Óla Bjarna í stæ. Það er ekki ávísun á skemmtilegheit. En hey af hverju ekki að reyna að gera bara gott úr hlutunum og brosa út í annað ef ekki út í bæði?? Jah maður reynir en veit ekki hvort það takist. En alla vega þá er kennara listinn minn svona Árni Blandon í sál Óli Bjarna í stæ Hannes í þýs Pála í ens Jón Özur í ísl Þórunn í fjö og Rakel ´´i íþróttum sem er reyndar sund áfangi. Þetta er fólkið sem ætlar að reyna að gera sitt esta við að gera mann gáfaðari!! Er samt ekki viss um að það takist! En hver veit. Annað eins hefur nú gerst eins og menn hafi farið til tunglsins og að löggan stoppaði mig á fyrsta rúntinum eftir að ég fékk yarisinn. Það var reyndar e-ð sem átti varla að vera hægt en hey þetta er ég! Jæja best að fara að henda draslinu ofan í tösku og koma sér í bælið vegna þess að það er mæting í sál 8:20 í fyrramálið! Sem verður eflaust e-n tíma svoldið spes. En svona by the way menningarnótt var craazzy!!!!
Thursday, August 18, 2005
Menningarnótt er alveg að bresta á eða á lau. Og ég var að skoða dagskrána og vá! Það er hreinlega standandi glði í 12 tíma! En það sem ég er samt mest að horfa á eru Stórtónleikar Rásar 2 á miðbakkanum sem koma til með að verða geðveikir! Hjálmar Í svörtum fötum og Todmobíl! Allt í lagi. Ef maður lætur sjá sig á 101 þá getur draumurinn um að sjá Hjálmar á sviði. Það er e-ð sem ég get á engan hátt skilgreint. Maður fellur hreinlega í trans. Þetta er svo seiðandi og flott á allann hátt. Í fyrra rættist draumurinn um að sjá EGÓ og það var ekki leiðinlegt!! VAAAÁÁÁ!!! Hundrað þúsund manns á hafnarbakkanum og Bubbi klikkaði ekki! Þetta er stórkostlegt fyrirbæri þessi consert. Þeir verða teknir uppp og sýndir á rúv vonandi bara mjög fljótlega. Því eins og í fyrraég sá ekki neitt!!En ég get þó sagt að ég hafi verið á staðnum og mikið ógeðslega voru EGÓ góðir!!! Þannig að vonandi fer Jónsi úr að ofan og maður fær að sjá það í sjónvarpinu!!!! Grrrr!
Tuesday, August 09, 2005
Why does it always rain on me! Jamm ég á bara eftir að vinna í 2 daga og þá tek ég alveg 10 daga sumarfrí. Alveg úúbber dúúbber langt frí eða þannig! Gay Pride var um helgina og allir í svaka stuði 40000 manns að horfa á en ekki ég. Alls engnir fordómar ég bara kann ekki að keyra í Reykjavík. Þó er b+íllinn minn staðsettur í bænum enda á verkstæði! Það var keyrt aftan á mig og helvítis fíflið stakk af. Urrr!! Og löggann gerði ekki neitt og æeg þarf að borga allann pakkann!! Enþá meira urrr! En ég komst að svolitlu um helgina að íbúar Vera Hvergi og Hnakkville (Selfoss!) hafa ekki sama tónlistarsmekkinn! Jamm ég fór í partýið til Laufeyjar og komst að þessu þar. En hún grillaði í okkur og það var auðvitað mjög gott . Við hverju á maður að búast þegar konan er búin að vera á húsó og svo auðvitað er pápi hennar kokkur og hún er fædd inn í kjörísveldið!! En aftur að tónlistinni. Sko Laufey og allar hennar vinkonur fíla svona techno dæmi sem er eftil vill gaman að hlusta á ef maður fíla tecno. Og það voru allir að fíla þetta...nema ég!! Ég segi eins og segir í laginu i tried and i tried and i tried yeah...! En allt kom fyrir ekki og tónlistin gerði ekkert fyrir mig! Allir hafa sennilega séð mig sem sorglegustu manneskju ársins!
Jói hætti í dag. Og af því tilefni skrifaði hann fyrir mig nýjasta Coldplay diskinn X&Y. Cris Martin er geðveikur söngvari. Kannski ekki sá besti. Hann er samt svo öðruvísi e-ð. Get ekki útskýrt þetta. Mæli með laginu Fix You. Snilld!!!
Jói hætti í dag. Og af því tilefni skrifaði hann fyrir mig nýjasta Coldplay diskinn X&Y. Cris Martin er geðveikur söngvari. Kannski ekki sá besti. Hann er samt svo öðruvísi e-ð. Get ekki útskýrt þetta. Mæli með laginu Fix You. Snilld!!!
Saturday, August 06, 2005
We're family I got all my sisters with me! Spes að byrja svona á Sisters Slegde þegar ég er að hlusta á upptöku af Hjálmum úr Popplandi Svoldið spes. En í morgunn þá datt stelpublaðið Orðlaus inn um bréfalúguna ásamt einu stykki af durex getnaðarvörn sem litli bróðir var að reyna að eigna sér en ég hélt nú ekki! Og ég sem er sennilega að fara og sletta úr klaufunum í kvöld! ÖSS! Þetta verður dýrt en vonandi ekki svona 9 mánaða e-ð! Ekki strax alla vega. Er ekki tilbúin í það að vakan til örgandi krakka gríslinga. Ekki strax. En ég skellti mér í Vera Hvergi í gærkveldi og heimsótti og hitti alveg helling af fólki! Byrjaði kvöldið á að fara til Sheilu sem var að bíða eftri Bjartmari kærastanum sínum og hún er að fara til London um næstu helgi! Gaman að því. Mig langar til London! Síðan fór ég til 1. tjaldstæðavarðar í Atlavík eða Laufeyjar. She's doing a good job! Og er einmitt að fara í smá teiti til hennar í kvöld! Hún meira að segja kenndi mér rúntinn í Vera Hvergi sem er e-ð svona framhjá Eden e-ð inn á aðalgötuna og í hringtorgið fyrir framan Lyf og heilsu og aftru á aðalgötuna og að Eden og...!! Ég hafði ekki guðmund um að það væri hringtorg þarna inni í bænum en alltaf er maður að læra e-ð nýtt! Síðan er ég var að yfirgefa nafla alheimsins Vera Hvergi þá hitti ég hana Binnu sem var á sæta opelnum sínum sem er ekki beyglaður að aftan eins og elskan mín (yarisinn!) en ég hef það samt fram yfir hana að ég get bara ýtt á einn takka til að skrúfa bílrúðuna niður! Hahahahaha þvílíkur lúxus! Nei það er alltaf gaman að hitta þær! En ég erð samt að taka það fram að Binna veitti mér andlegan stuðning í sál 203 sem Árni Blandon sá um að kenna. Og það vara bara hræðilegt! Þannig Binna ég mun standa í ævilangri þakkarskuld við þig!
Wednesday, August 03, 2005
Björn og aðrir minna þroskaðir menn! Það á reyndar að vera börn en hvað um það! Þetta er svona brenglun sem hefur sennilega heyrst e-s staðar um versló sem er búin. Og mín var bara í rólegheitunum á Flúðum. Alveg ógðeslega mikið af fólkiog jú jú traktorstorfæran á sínum stað. Jújú.Þetta var bara kózý helgi. En ótrúlegt en satt þá er líf eftir versló! Og frekar mikið í boði. Skímó í Hvíta húsinu Á móti sól í Þorlákshöfn Páll Óskar með Gay Pride dansiball á Nasa Sálin á Players Snjalli Mongólítinn með partý í Vera Hvergi á lau! Já nú þarf ég að anda! AAAAAAANNNNNDDDD!!!!!!! And coming up Töðugjöld Menningarnótt og skólinn síðan í lok ágúst! Og síðan fer Iceland airwaves að detta inn og síðan styyttist í lítið frændsystkini og þar næst jólin og áramótin og míns 20 ára á næsta ári!!! Hmmm og stefnan er tekin á Þjóðhátíð '06! Hehe1 Vona samt að Árni Jónssen verði ekki að leggja hendur á listamenn næsta árs í Eyjum. Er ekki alveg með það á hreinu hverjir spila á Þjóðhátíð á næsta ári! En þið sem kunnið að ráða drauma þá er Laufey e-ð að missa það! Ég og Sylvía Nótt og Laufey saman í partýi!!! Hvað er það???? Mér var reyndar likt við Sylvíu Nótt um daginn! Sagt að ég væri svona álíka flippuð og hún! Hvað er að fólki?? En einn dans við mig!
Subscribe to:
Posts (Atom)