Ég vil bæði lifa og vona ég vil brenna upp af ást ég vil lifa með þér svona ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér
Monday, August 22, 2005
Craazy! Merkilegt hvað það er endalaust mikið ves að byrja í skólanum aftur. Sérstaklega þegar fólk er ekki ánægt með stundatöfluna sína. Var ekkert voða sátt við að lenda í sálfræði hjá Árna nokkrum Blandon eða vera með Óla Bjarna í stæ. Það er ekki ávísun á skemmtilegheit. En hey af hverju ekki að reyna að gera bara gott úr hlutunum og brosa út í annað ef ekki út í bæði?? Jah maður reynir en veit ekki hvort það takist. En alla vega þá er kennara listinn minn svona Árni Blandon í sál Óli Bjarna í stæ Hannes í þýs Pála í ens Jón Özur í ísl Þórunn í fjö og Rakel ´´i íþróttum sem er reyndar sund áfangi. Þetta er fólkið sem ætlar að reyna að gera sitt esta við að gera mann gáfaðari!! Er samt ekki viss um að það takist! En hver veit. Annað eins hefur nú gerst eins og menn hafi farið til tunglsins og að löggan stoppaði mig á fyrsta rúntinum eftir að ég fékk yarisinn. Það var reyndar e-ð sem átti varla að vera hægt en hey þetta er ég! Jæja best að fara að henda draslinu ofan í tösku og koma sér í bælið vegna þess að það er mæting í sál 8:20 í fyrramálið! Sem verður eflaust e-n tíma svoldið spes. En svona by the way menningarnótt var craazzy!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment