Monday, August 29, 2005

Dancing with tears in my eyes! Já það er alveg óhætt að segja það að ég dansi með tárin í augunum og er ástæðan voða einföld: Það var frí í fyrsta í tíma! URRR! Og ef þið eruð ekki að átta ykkur á því hvaða dagur er í dag þá er mánudagur og það væri ekkert leiðinlegt en að fá kannski að lúlla aðeins lengur! URR! Ég er búin að vera á smá nettrippi í skólanum og sá að að Grennday voru að vinna 7 verðlaun á MTV hátíð í nótt en þeir áttu möguleika á að vinna 8 en Gwen Stefani sá alveg um að eyðileggja það. En samt er Gwen Stefani samt voða cool e-ð. Eða er það bara af því að hún syngur lagið u know i cool?? Mig langar aðeins til að útskýra texta tilvitnunina hérna að ofan en þetta er tekið úr lagi með hljómsveitinni Ultravox sem var vona 80's band frá helvíti. Eg heyrði þetta lag í brúðkaupinu hjá Ágústu frænku í sumar (sá hana reyndar taka svoldið spes 80's spor en það er allt annað mál!) og ég verð að segja það að þetta er svona lag sem er bara asnalegt en það er samt svo cool af því að það er einmitt asnalegt. En hérna Duran Duran komu til Íslands í sumar og þá sá maður óhóflega mikið af fólki svona eins og gaur sem heitir Böddi og er e-ð svona hairdo gúrú e-ð og Duran Duran fan Íslands eða e-ð og það var hreinlega skelfilegt að sjá aumingja manninn! Það er eiginllega ekki hægt að lýsa lookinu á aumingja manninum! Eins og klipparinn sem kom e-n tíma í Ísland í dag í sumar í svona Duran Duran upphitun var einmitt með svona Ultravox útlit og kræst það eitt og sér var svoldið krípí! En samt þá hérna lít ég eins og 80's e-ð um hausinn. Var að spá að láta ekki taka svona mikið af hárinu eins og ég er vön en eftir turrtu morgunsins þá fer þetta allt af! Ég með sítt hár?? Alls ekki!! Djö hvað ég hlakka til á fimmtudaginn! Þó er ég ekki að fara á busaball!!

No comments: