Wednesday, August 31, 2005

Nu er klokken elv du má komme hjem til mig! Oh vá hvað ég er mikið dönsku sjéní mar! Núna um jólin verða 2 ár síðan ég verða 2 ár síðan ég varð stúdent í dönsu. Samt get ég ekki talað dönsku. Jú kannski með kartöflu í hálsinum. En þá er það stóra spurninginn myndi hálsinn á manni rúma eitt stykki kartöflu?? Samt efast ég alveg stórlega um það!!

Ég er búin að fara í einn tíma í dag sem var þýska. En það sem kom mér samt mér mest á óvart var að tíminn í morgunn var ekki eins erfiður og ég átti von á. Miðað við tímann í síðustu viku sem var algjört ógeð. En sem sagt var komin hingað heim um 10 leytið og þarf sem sagt ekki að mæta aftur í tíma fyrr en klukkann 14:35. Og það í sálfræði. Veeeii...nei ég get ekki sagt að það verði gaman! Ekki í tíma hjá Árna Blandon!

En samt er það algjör snilld að það eru mánaðrmót á morgunn! How long have i waited??! Síðasta útborgunin og á morgunn mun ég líta út eins og manneskja en ekki eins og Wham! aðdáandi frá Færeyjum. Til að toppa þetta allt saman ætlar kjellingin að splæsa í stípur. Meina hey ég bý í Hnakkville (Selfossi) og maður verður að lítta út eins og er sagt að allir líti út í Hnakkville. En ég hlusta ekki á FM nema þá kannski Zúúber. Og ég á ekki Subaro Impreza. Ég á Yaris! Mikið flottari líka! En vandamálið er samt að vegna þess að skírteinið mitt er útrunnið þá get ég ekki keyrt:( Ég hef ekki keyrt elskuna mína alveg síðan á lau! Sem þýðir að ég hef ekki keyrt í alveg 4 daga!!! Alveg eins og ef e-r hefur ekki stundað kynlíf i 4 daga! Ég lít svoldið á það að keyra eins og að stunda kynlíf. Maður verður hálfpartinn háður því. En það eru bara 5 dagar eftir! I will survive!!

No comments: