Saturday, August 06, 2005

We're family I got all my sisters with me! Spes að byrja svona á Sisters Slegde þegar ég er að hlusta á upptöku af Hjálmum úr Popplandi Svoldið spes. En í morgunn þá datt stelpublaðið Orðlaus inn um bréfalúguna ásamt einu stykki af durex getnaðarvörn sem litli bróðir var að reyna að eigna sér en ég hélt nú ekki! Og ég sem er sennilega að fara og sletta úr klaufunum í kvöld! ÖSS! Þetta verður dýrt en vonandi ekki svona 9 mánaða e-ð! Ekki strax alla vega. Er ekki tilbúin í það að vakan til örgandi krakka gríslinga. Ekki strax. En ég skellti mér í Vera Hvergi í gærkveldi og heimsótti og hitti alveg helling af fólki! Byrjaði kvöldið á að fara til Sheilu sem var að bíða eftri Bjartmari kærastanum sínum og hún er að fara til London um næstu helgi! Gaman að því. Mig langar til London! Síðan fór ég til 1. tjaldstæðavarðar í Atlavík eða Laufeyjar. She's doing a good job! Og er einmitt að fara í smá teiti til hennar í kvöld! Hún meira að segja kenndi mér rúntinn í Vera Hvergi sem er e-ð svona framhjá Eden e-ð inn á aðalgötuna og í hringtorgið fyrir framan Lyf og heilsu og aftru á aðalgötuna og að Eden og...!! Ég hafði ekki guðmund um að það væri hringtorg þarna inni í bænum en alltaf er maður að læra e-ð nýtt! Síðan er ég var að yfirgefa nafla alheimsins Vera Hvergi þá hitti ég hana Binnu sem var á sæta opelnum sínum sem er ekki beyglaður að aftan eins og elskan mín (yarisinn!) en ég hef það samt fram yfir hana að ég get bara ýtt á einn takka til að skrúfa bílrúðuna niður! Hahahahaha þvílíkur lúxus! Nei það er alltaf gaman að hitta þær! En ég erð samt að taka það fram að Binna veitti mér andlegan stuðning í sál 203 sem Árni Blandon sá um að kenna. Og það vara bara hræðilegt! Þannig Binna ég mun standa í ævilangri þakkarskuld við þig!

No comments: