Sunday, August 28, 2005

What?? Það er komin stærri frétt en Hildur Vala og Jón Ólafs þó svo að það sé stórt! En FHingar voru bað tapa sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni síðan í maí sko 04. Ekki 05 heldur 04. Það var sko áður en Jón Ólafs og Hildur Vala hittust. Það er kannski ekki skrýtið að FH var að tapa því það var víst standandi gleði í Hafnafirði eftir leikinn gegn Val um síðustu helgi. En hver átti von á því að FH myndi tapa leik á leiktíðinni?? Alla vega ekki ég. Alls ekki ég!! Var svona hálf partinn að vona að þeir myndu fara í sigraðir í gegnum mótið. Það eitt er í sjálfu sér mikið afrek. Spes að byrja svona á því að bulla um fótbolta! En það er annar í idol sem er ef marka má fréttir aðal hjónabandsmiðlunin. Meina af hverju ekki fyrir gaurana sem eru að sjá um veifi eins og einkamál að loka vefnum bara og láta Simma og Jóa bara sjá um þetta??Bara smá hugmynd. Meina heitasta par ársins leyfi ég mér að fullyrða er Jón Ólafs og Hildur Vala og það er allt í gegnum idolið. Kannski maður skrái sig bara og þá nær maður kannski í Simma! Ihh þetta var nú ssvoldið ljótt maðurinn er giftur og ég er ekki í því að skemma hjónabönd!! En æég verð að hætta þarf að koma draslinu í uppþvottav+elina!!

No comments: