Why does it always rain on me! Jamm ég á bara eftir að vinna í 2 daga og þá tek ég alveg 10 daga sumarfrí. Alveg úúbber dúúbber langt frí eða þannig! Gay Pride var um helgina og allir í svaka stuði 40000 manns að horfa á en ekki ég. Alls engnir fordómar ég bara kann ekki að keyra í Reykjavík. Þó er b+íllinn minn staðsettur í bænum enda á verkstæði! Það var keyrt aftan á mig og helvítis fíflið stakk af. Urrr!! Og löggann gerði ekki neitt og æeg þarf að borga allann pakkann!! Enþá meira urrr! En ég komst að svolitlu um helgina að íbúar Vera Hvergi og Hnakkville (Selfoss!) hafa ekki sama tónlistarsmekkinn! Jamm ég fór í partýið til Laufeyjar og komst að þessu þar. En hún grillaði í okkur og það var auðvitað mjög gott . Við hverju á maður að búast þegar konan er búin að vera á húsó og svo auðvitað er pápi hennar kokkur og hún er fædd inn í kjörísveldið!! En aftur að tónlistinni. Sko Laufey og allar hennar vinkonur fíla svona techno dæmi sem er eftil vill gaman að hlusta á ef maður fíla tecno. Og það voru allir að fíla þetta...nema ég!! Ég segi eins og segir í laginu i tried and i tried and i tried yeah...! En allt kom fyrir ekki og tónlistin gerði ekkert fyrir mig! Allir hafa sennilega séð mig sem sorglegustu manneskju ársins!
Jói hætti í dag. Og af því tilefni skrifaði hann fyrir mig nýjasta Coldplay diskinn X&Y. Cris Martin er geðveikur söngvari. Kannski ekki sá besti. Hann er samt svo öðruvísi e-ð. Get ekki útskýrt þetta. Mæli með laginu Fix You. Snilld!!!
No comments:
Post a Comment