Endalaust vesen með þessa fjölmiðlafræði könnun! Ég er farin að hafa geðveikar áhyggjur. Það eru 2 vikur í að ég eigi að skila helvítis könnunninni og það er e-n vegin ekkert að virka annað en það að ég er búin að pikka allt inn kennarinn að stinga af og það er allt að fokkast upp!!! Enda örugglega sem kvíðasjúklingur eftir um 2 vikur. Og svona ofan á það allt saman þá á að skila með þessu alveg 7 bls ritgerð!!! Þetta er sko ekki alveg í lagi með þetta lið!!
Réttirnar voru vægast sagt stór undaalegar lítið af kindum og mikið af fólki! Það lá við að maður kallaði út björgunarsveitir til að finna allar rollunar. Þær eiginega tíndust í fólki. Síðan var haldið heim til afa og ömmu þar sem stórfjölskyldan kom saman til að éta alveg gommu af kjötsúpu og hella í sig áfengi. Þó fór ittta allt voða fallega fram. En ég ákvað samt að fara heim og horfa á dvd heldur en að vera uppi í sveit um nóttina. Ég var bara ekki að meika það að vera þarna um nóttina. Fór heim og horfði á ankör man eða réttar svaf yfir henni. Myndin var búin um hálf 11 og mín beint upp í rúm að lúlla. Orkan var gjörsamlega búin! Komst reyndar inn í hjólhýsi hjá frænda mínum á fös og vááááá hvað það var ógó flott. Gaman að undirbúa sig fyrir sálarball í svoleiðis græju. Þetta var eiginlega ekki hjólhýsi heldur mera svona höll. Ogeðslega flottur partý staður! Reyni að væla það út fyrir næsta sálrball! Ihh já kannski svoldið bjartsýn en allt í lagi!! Sálarlagið nýja og titillag nýju plötunnar heitir undir þínum áhrifum og er alveg að virka!!! Stalst meira að segja úr partýinu ´afös og út í bíl til að hlusta á Sálina spila á rás 2. Bara eins og Óskar sagði þú ert nú ekki í lagi! Nú er það ekki?? Það er ekki eins og maður hafi ekki vitað að maður væri skrýtinn en það er gott þegar manns nánustu hafa fyrir því að benda manni á það að mapur er alls ekki fullkomin!!! En samt sem áður þá langar mig á sálarball!!!!
Sálin-Undir þínum áhrifum
Sálin-Eitt og eitt
Hildur Vala (ekki segja neitt!!!)-For no one
Bon Jovi-Have a nice day
No comments:
Post a Comment