Settu brennivín í mjólkurglasið kæra vina því að ég er komin heim!! Brennivín í mjólkurglasi er svoldið svona RÉTTIR! Jams mín skellir sér í réttir á morgunn. Það verður alveg hellingur af kindum (no shit!!) rigningu drullu drukknu fólki sennilega Árni Jónsen líka og svo þegar heim er komið eða upp í Götu þá er það kjötsúpa! Svona lítur morgundagurinn út hjá mér! uhumm
Pétur Jóhann Sigfússon er snillingur. Ég hef örugglega sagt þetta áður en eg bara verð að koma þessu að hvað maður er endalaust fyndinn! Sáuði Strákana áðan (ég horfi á þá á hverju kveldi og ef það dugar ekki þá skelli ég best of dvd disknum í!!)?? Pétur var með e-r svaðaleg headfón á sér og dúddi minn þetta var bara fyndið!! Ég hef mikið verið að horfa á strákana og er komin með smá svona lista yfir fyndnustu atriðin að mínu mati
1. Höddi Magg vakin. (O mæ god)
2. Jói idol vakin (Pæliði í því ef hann hefði verið nakinn!)
3. Jón Gnarr stjórnun (okei þú vinnur ég er asninn þinn!!)
4. Eiður Smári sparkar bolta í afturendann (rassinn) á Strákunum (Sveppi var ekki svona mikið hörkutól eftir allt saman!!)
5. Pétur hleypur á G-streng í kringum Litla-Hraun (Halló maðurinn getur ekki hlaupið!)
No comments:
Post a Comment