Friday, December 02, 2005

Það er sennilega svona 5 stiga frost úti eða e-ð! Svo kalt svo kalt. Segi bara eins og Donna Summer sagði I need some hot stuff!!! grrrrrr

Míns er ekki að fara að fara í jólaköttinn! Míns er búin að kaupa jólaföt!! Skellti mér í Lindina þær voru að opna nýja og flotta búð hér á self þannig að ég skellti mér þangað. Okei ég þarf að gera smá svona confession þó ég sé kona þá finnst mér ekkert ofsalega gaman að far og versla mér föt sérstaklega þegar það tekur svona 3-5 tíma. Jájá það getur alveg tekið þennan tíma!!! Það er allt annað að fara í skífuna og fara að kaupa eitt stykki cd því þá veit maður svona nokkurn veginnn hvað maðurt hvað maður er að fara að kaupa!! En svo fer maðaur inn í Hagkaup að versla föt þá þarf maður að fara að leita og bara það getur tekið klukkutíma!! Svo þegar maður er búin að finna e-ð þá þarf að fara að máta tekur með sér kannski 10 flíkur til að máta og kannski ekkert passar!! Og hvað gera bændur þá (eða konur!)?? Jú fara aftru í fatadeildina og byrja aftur að leita sér að fötum! Og það kannski tekur annan klukkutíma í viðbót og eftir þann klukkutíma ferðu aftru inn í mátunarklefa með 10 flíkur og þá kannski passar e-ð!! Og það eftir svona 3 tíma leit ertu með föt sem þú ert að fíla!!!! Þannig var rosa gott að fara inn í Lindina í gær þar sem Gugga var að vinna og segja bara: "ég er lítil og feit og mig vantart jólaföt" Okei Gugga fór með mig smá leit um búðina og sýndi mer pils og svona sem var geðveikt flott og sendi mig svo inn í mátunarklefa með 2 pils 1 bol og eina skyrtu!! Allt í lagi ég fer inn í mátunarklefann máta skyrtuna og annað pilsið og viti menn ég barð ástfanginn! Ég reyndar tóksvo fötin með heim til að sýna mömmu og pabba og þau voru sammála mér um hvaða föt ég átti að taka!! Ég verð ógeðslega fín um jólin og á sálarballinu annann í jólum!

Páll Rósinkranz er að senda frá sér svona djazzaða jólaplötu og miðað við lagalistann á henni verður þessi plata algjör snilld! Þegar Páll Rósinkrnz syngur Christmass song Bing Crospy hvað??

No comments: