Wednesday, December 14, 2005

Fólk með svona tuskuæði er sagt virkilega hættulegt fólk og ég held bara að ég sé að verða pínu hættuleg!! Þreif klósettið vaskinn setti í uppþvottavélina og svona en maður hefur svo sem ekkert mikið betra við tímann að gera maður er í jólafríi! Síðan er fólk í jólaskapi einnig talið hættulegt þannig að ég er í jólaskapi og með tuskuæði! Hvar endar þetta?? Kannski með þvía'ð ég sendi jólakort á alla vini mína!!! Skil samt ekki til hvers því að það sendir mér enginn jólakort! Jújú bara að kidda jólaskapið sagði að það væri hættulegt að vera í jólaskapi. Plús það að éger að fara í strípur á morgunnþannig að maður verður einu skrefi nær því að vera gugga!! Og guggur eiga víst samkvæmt stelpublaðinu orðlaust YARIS ! Tek það samt skírt fram að ég á ekki brúnkukrem!

Bachelorinn er e-ð sem maður neyðist til að horfa á annað kvöld bara til að sjá hvort hin selfisska Jenný muni giftast bachelornum!! En samkvæmt DV í dag þá var hún ekki að kyssa karlmann á Hverfisbarnum um síðustu helgi heldur konu! Spes!

No comments: