Síðustu TVO dagana er ég búin að vera að taka til í herberginu mínu og þá meina ég taka til! Og þá meina ég allt er tekið í gegn eins og skápar og skúffur! Og maður spyr sig óneitanlega eftir þessa reynslu til hvers í ósköpunum eru fataskápar?? Eins og áður en æég tók til í fataskápnum mínum þá kom bara skriðan af fötum á móti manni-mest allt ónothæft-og þegar maður ætlaði að loka helvítis skápnum þurfti maður að halda því sem ekki átti að fara úr skápnum bara til að geta lokað skápnum!! Og mest af því sem var í skápnum var bara drasl!! Okei svo tók ég til í skúffunum í skrifborðinu og ég fékk svona smá sjokk vægt til orða tekið!! Það var heillhellingur af svona gulum miðum ekkert skrifað á þá bara heill hellingur af gulum TÓMUM miðum!! Til hvers??? Síðan voru það skuffurnar í samstæðunni minni. Ég held það svei mér þá að það sé ekkert kjaftæði þegar sagt er að konur séu safnarar!! Meðal annars sem ég fann voru krem síðan 1700 og súrkál gömul yfirlit frá reiknistofu bankana smokkur(??) tómir pokar af ljósgrænu exstra kassakvittanir viðurkenningaskjöl síðan úr 8. bekk og so videre!! Hvað var allt þetta DRASL að gera ofan ískúffu??!! En ég fann myndavélina mína sem var takið eftir var ógeðslega hip og kúl fyrir 5 árum en í dag-ihh það yrði hlegið af mér sæi mig e-r taka myndir á þetta forneskjulega fyrirbæri! Meira að segja á mamma svona diggital. Okei ég fyrirgef henni það alveg hún er að verða amma aftru og þarf þá að geta tekið myndir af barninu til að geta sýnt fólki þetta barn! Kannski til að geta sent barnið á e-mail!! Hljómar itta illa??
Kíkti á einkanirnar mínar áðan. Náði öllu nema ensku 303-var að falla í 3 sinn!!En það var annað sem kom mér á óvart að ég fékk 9 í sálfræði!! Er þetta skilaboð um að ég eigi að fara að tilkynna öllum að Árni Blandon sé uppáhalds kennarinn minn?? Maður spur sig!
No comments:
Post a Comment