Sunday, December 31, 2006

Jæja bar 7 tímar og 38 mínótur eftir af árinu þannig að ég segi gleðilegt ár drífið ykkur í að mála ykkur (stelpur og þið strákar sem fílið það líka!) horfið á skaupið skjótið upp helling af rakkettum eða bara verðið eins og ég haldið á stjörnuljósum og skellið ykkur bara í feitt gamlárspartý. Eða eins og segir í lagini komdu með mér í gamlárspartý gamlárspartý gamlárspartý....!!

Saturday, December 30, 2006

Tara!! Verðlaunin fyrir það að vera ágústa ársisn (verðum bara að skipta honum í tvennt!) er þessi pínulitli jurasik park frostpinni sem svo skemmtilega vill til að ég hef ekki hugmynd um hvar á jörðinni er en það er allt í lagi því að það sem skiptir máli er að klára þennan litla sæta frostpinna áður en hann bráðnar (good luck!). Síðan getum við plastað spýturnar og geymt þær til minningar um að við vorum kosnar rússnenskri kosningu ágústa ársins (af mér!!)!

Litli bróðir fær loksins bílpróf í kvöld og belive it or not þá tókst honum að væla út yarisinn á rúntinn í kvöld í fyrsta sinn. Þannig að í kvöld þá getum við mamma ekkert sofið (tilvitnun í skrám!) það góða við þetta er að bíllinn minn verður þrifinn og svo sett bensín á hann. Og ég aa manneskjan er komin með driver á gamlárzz! Pælið í því!! Þannig ef hann ætlar að fá bílinn lánaðan þá þarf hann að vera extra góður þrífa bílinn og svona!! Og kannski hætta að finna áfmælis og jólagjafirnar sínar svona til tilbreytingar!!!! Hann elsku litli bróðir er snillingur í því!!!

Lag dagsins: Lips of an angel by Hinder

Friday, December 29, 2006

Jæja þá er árið að verða búið og ekki seinna vænna en að fara að gera upp árið 2006 sem sumir segja að hafi verið svoldið keimlíkt frábærasta ári ever 1986 því að Jón páll varð hipp og kúl og Hemmi Gunn meikaði það aftur í sjónvarpi! Og íslendingar skitu á sig í eurovision '86 eins og Sylvía Nótt gerði svo eftirminnilega!

Maður ársisns: Magni-skellti sér til LA tók þátt í þessu rockstar dæmi og rúllaði þessu upp þó að hann vann ekki en samt vann hann samt

Geðveiki ársins: Íslenska þjóðin vakti og vakti og kusu og kusu magna okkar áfram! Við erum bara 300000 en ég veit ekki voru atkvæðin bara frá Íslandi 3 milljónir? Er þetta ekki geðveiki??

Heimkoma ársins hana á magni alveg skuldlaust!!

Lag ársins: Hver einasti dagur með Á móti sól

Sms ársins Dómínos smsið á aðfangadag

Afmæli ársins (fyrir utan mitt sjömanna!) asfmæli heilags Bubba Morthens og það í Laugardagshöll

Tónleikar ársins Get ekki gert upp á milli 060606 tónleikana með Bubba eða tónleika Sálarinnar og Gospelkórsins

Kór ársins Auðvitað Gospelkór reykjavíkur! Þessi kór er ótrúlegur!!

Ökumaður ársins Eyþór Arnalds!!

Stjórnmálamaður ársins Árni Johnsen

Óvæntasta ársins að Guðjón Valur skyldi vera valinn íþróttamaður ársins!!

Skandall ársins Sylvía nótt klúðraði eurovision algjörlega

Flopp ársins Íslenska dómskerfið floppaði algjörlega en eitt árið Þetta dómskerfi er orðið allt of langur brandari það verður að fara að breyta þessu!!

Skúrkur ársins Sylvía Nótt

Vinir ársins allir mínir yndislegu vinir:)

Ágústa ársins ég og hún Miss sverrisdóttir

Tuesday, December 26, 2006

Bara aðláta ykkur vita að það er ofát í gangi hérna búin að slafra í mig hangikjöti og laufabrauði búin að koma myndunum inn í tölvuna mína en samt er e-ð ves í gangi og þar sem gleymdist að gefa mér hæfileika þegar kemur að tölvum í jólagjöf þá þarf ég að fá utanaðkomandi aðstoð. Kannski ég tali bara við minn andlega leiðtoga sem er Magnús Má samkvæmt jólakortinu!Ég er ekkialveg búin að gera það upp við mig hvort andlegi leiðtoginn sé Magnús eða Bubbi. Ætti ég ekki að stelast í laufabrauðið og hugsa út í það á meðan??

Eitt enn: Magni fór út í þetta Rockstar ævintýri í sumar og brilleraði jarí jarí...síðan eru núna tónleikar í Háskólabíói þar sem Ámóti sól kemur fram en það er talað um magna og Á móti sól í auglýsingunni eins og magni hafi bara verið afleysingamaður í bandinu í 7 ár!! Næ þessu ekki

Lag dagsins: Annar í jólum by baggalútur

Monday, December 25, 2006

Gleðileg elskurnar mínar og vonandi hafið þið borðað eins og ég veit ekki hvað! En þetta var annars í jólapökkunum mínum:

Diggital myndavél
Sálin og Gospel-Lifandi í Laugardalshöll
Lay Low-Please don't hate me
Ballaðan um Bubba Morthens (heilagan Bubba Morthens!)
hálsmen
Showergel og e-ð meira bað e-ð
Meira baðdót e-ð
sokka
tösku
ást og hlýju bara....

Heilagur Bubbi messaði á Nasa og ég verð að segja að þetta voru vægast sagt magnaðir tónleikar! Ég var reyndar ekki á staðnum heldur voru þeir live á Bylgjunni. Og ef e-r veit hvaða lag hann tók akkapella (án undirleiks!) eftir uppklappið þá endilega megiði kommenta. Ég verð að fá að vita hvaða lag þetta er!!

Wednesday, December 20, 2006

En undur og stórmerki birtast manni enn:Ég keypti mér Bítlaplötu!Þau ykkar sem þekkja mig vel vita að ég hef aldrei verið mikill aðdáandi The Beatles.
Þetta skrifar gítarleikarinn og snillinguin Gummi Jóns en hann er gítarleikari Sálarinnar og hefur samið margann eðalsmellinn eins og til dæmis hjá þér en svo segir hann:
Ég virði auðvitað hvað þeir hafa gert fyrir tónlistina og dægurmenningu heimsins síðustu áratugi og á hvaða stalli þeir eru í samhengi hlutanna, en ég var bara búinn að fá svo mikinn leiða á katalógnum þeirra að kvartur var nóg.En á þessari plötu uppgötar maður þá félaga svo sannarlega aftur, á svo nýjann og ferskan hátt og í svo skemmtilegu sjónarhorni (...eða segir maður kannski; eyrnafæri
Ég persónulega segi að Bítlanir verða eru og verða alltaf bestir sama hvað á dynur í þessum litla sæta klikkaða heimi. En svo segir hann
Mér varð að ósk minni og var boðið í sextugs afmæli Hemma Gunn um daginn (að vísu var ég fenginn ásamt Sálinni til að spila eitt lag).Ég náði nú ekki að heilsa upp á goðsögnina enda kallinn bissí að taka við hamingjuóskum.En við komum í þáttinn hans Hemma ásamt Gospelkórnum þann 21. des. n.k.Þar munum við flytja “Hjá þér” (sem við virðumst geta breytt til batnaðar endalaust).Þannig að fyrir mig sem sálaraðdáanda og núa bara sem huge fan gospelkórsins þá verð ég að horfa!!

Og það er allt á floti alls staðar og ég er ekki að djóka með það!! Flóð og læti þessa stundina og blee!!!

Tuesday, December 19, 2006

Ég kemst í hátíðarskap þó úti séu snjór og krap...en allur snjór öll hálka allt krap og öll drulla sem fylgir því að snjórinn sé að fara því það er allt er farið og það er bara myrkur og leiðindi.Það rignir bara eins og æeg veit ekki hvað! Og það eru bara 5 dagr til jóla og það á að bara að rigna og rigna rigna og síðan á að bara að rigna meira og síðan aðeins meira og svo pínu ponsu meira...! OHHH" Ef það væri búið að snjóa í gær og í dagþá væri orðið alveg crazy jólalegt en nei nei út að einhverjum loftlags breytingum eða e-u álíka kjaftæði þa´er ekki lengur snjór yfir jólin á íslandi heldur rignir eins og ég veit ekki hvað!! meina það er e-ð mikið sjúkt brengað og afbrigðilegt (kannski einn og sami hluturinn...!) þegar hitamælirinn sýnir 15 stiga hita og það 5 dögum fyrir jól!!! Þétta er ekki hægt!!

Thursday, December 14, 2006

Fékk konfekt í gær. Jólagjöf frá Byko. Þegar ég las kortið sem fylgdi með pakkanum þá kvarflaði að mér að forstjórinn hefði handskrifað á kortin handa öllu starfsfólkinu sem eru örugglega svona nokkur þúsund en komst svo að því mér til mikilla vonbrigða að þetta var bara ljósritað á öll kortin. Bömmer!

300000 heimsóknir í Ikea síðan hún opnaði í október og þá er ég að tala um nýju búðina! Vá hvað vér íslendingar erum geðveikir!!

Jólalag dagsins: nei nei ekki um jólin by HLH flokkurinn

Wednesday, December 13, 2006

Úpsss..! Ég vakti Magnús svona rétt um hálf tvö í dag þega rég rölti á tveimur jafnfljótum að athuga hvort það væri kannski möguleiki að ég fengi sálar diskana mína sem ég er búin að vera á leiðinni að ná í svona í nokkra mánuði: Og vakti hann!! Þannig að ég held að ég hafi verið strokuð af jólakortalistanum hans. Eða með öðrum orðum þá fæ ég sennilega ekki jólakort hjá honum!! talandi um að senda jólakort. Hvernig toppa ég jólakortið sem ég fékk frá Heimi í fyrra þar sem ég var ávörpuð: Elsku Ágústa og börn!! Hvernig toppar maður þetta??!

Síðan þegar ég ætlaði að rölta mér heim þá sá ég að Ágústa sverris á rúntinum og hún tók migg upp í og ég verð bara að segja alveg eins og er þá er Ágústa alveg skrambi góður bílsstjóri!

Og hvað er að fólki sem segir að nýja james Bond lagið sé ekki eftirminnilegt?? Þetta er bara ógðeslega flott lag og ég er búin að sjá myndina! Byrjunaratriðið er bara flott!!

Jólalag dagsins: Happy xmass (the war is over)

Monday, December 11, 2006

Jæja góða kvöldið og gleðileg jól eða svona næstum því kannski!! Mikið að gera þessa dagana próf eða bara læra undir þýsku prófið sem er á morgunn klukkan 1/2 12 nánar til tekið!! já já! Búin að fá 2 einkannir sem sagt fallin í stæ (kemur ekki á óvart kannski!) og náði ensku 303 (og það í fjórða skiptið). Mér var reyndar búið að dreyma aðég hafi náð helvítis stærðfr. þarna en fallið í ensku var með 5 í stæ og 4 í ensku en þetta var eiginlega alveg öfugt. Fékk 4 í stæ og 5 í ensku! Ég vaknaði í sjokki að ég væri búin að falla í ensku í 4 skipti en sem betur fer var það ekki svo.

Jólagjafir. þvílíkur höfuðverkur maður!! Hvað á ég að elsku litla bróður?? Eða elsku stóra bróður litlu frændum mínum og já Hörpu mágkonu. Og já ef maður spyr fólk sem maður veit ekkert hvað maður á að gefa í jólagjöf þá er eiginlega BANNAÐ að segja æ-i ég veit það ekki!! Því þið getið bókað það að ekki veit ég það!! En getur fólk ekki bara gefið mér kærasta í jólagjöf?? Svo ég mæti ekki einu sinni enn án kærasta í jólaboð á jóladag!!

Wednesday, December 06, 2006

Prison break. ARRRRGGG! Ég er að verða brjáluð á þessum þáttum. Og ég er ekki að djóka.Síðan hvenær hefur löggann og mafían verið í companíi??! Þátturinn endaði bara asnalega í gær. All of them will die! Ég get ekki lagt saman 2 og 2 og fengið út 4 í þessu samhengi! Og aumingja Sara (læknirinn)! Og af hverju er ekki búið að drepa helvítið hann T-bag sem by the way er núna með 5 millur! ARRG!

Sönvakeppni sjónvarpsins verður í janúar. Byrjar held ég 20. Og þessi nefnd þarna valdi ekki lagið mitt til að keppa! Sem er skandall!! Búin að gera díl við Megas og Geir Ólafs um að syngja lag í Sigurrósarstíl. Engin uphækkunn! kannski er það bara málið að það vantaði upphækkunnina. En maðurinn sem drullaði hvað mest yfir Sylvú Nót og allt það dæmi Kristján Hreinssson er með texta í keppninni í ár og ég verð að segja þaðað það kom mér svoldið á óvart að hann er með í á r svona í ljósi þess hvað hann drullaði mikið yfir keppnina og Pál magnússon og allt það fólk í fyrra

Dásamleg raunlag og texti: Bergsteinn Björgúlfsson

Allt gottlag og texti: Bergþór Smári

Nýir tímarlag: Bryndís Sunna Valdimarsdóttir og Sigurjón Brink texti: Bryndís Sunna Valdimarsdóttir

Leiðin heimlag: Elvar Gottskálkssontexti: Kristján Hreinsson

Þú ert sem eldurlag: Grétar Örvarsson og Kristján Grétarsson texti: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég og heilinn minnlag og texti: Gunnar Lárus Hjálmarsson og Ragnheiður Eiríksdóttir

Þú tryllir miglag: Hafsteinn Þórólfssontexti: Hafsteinn Þórólfsson og Hannes Páll Pálsson

Ég hef fengið nóglag: Hljómsveitin VON:Ellert H. JóhannssonGunnar I. SigurðssonSigurður BjörnssonSigurpáll AðalsteinssonSorin M. Lazartexi: Magnús Þór Sigmundsson

Villtir skuggarlag: Ingi Gunnar Jóhannssontexti: Kristján Hreinsson

Veturlag og texti: Magnús Guðmann Jónsson

Friðurlag og texti: Magnús Þór Sigmundsson

Júnínóttlag og texti: Ómar Þ. Ragnarsson

Mig dreymdilag: Óskar Guðnasontexti: Ingólfur Steinsson

Ástlag og texti: Roland Hartwell

Ég bjarga þérlag og texti: Roland Hartwell

Örvænting lag og texti: Roland Harwell

Draumurlag: Sveinn Rúnar Sigurðssontexti: Kristján Hreinsson

Ég les í lófa þínumlag: Sveinn Rúnar Sigurðssontexti: Kristján Hreinsson

Ekkert án þínlag: Torfi Ólafssontexti: Þorkell Olgeirsson

Ekki að minni ósklag: Torfi Ólafssontexti: Þorkell Olgeirsson

Fyrir þiglag: Torfi Ólafssontexti: Þorkell Olgeirsson

Blómabörnlag: Trausti Bjarnasontexti: Magnús Þór Sigmundsson

Segðu mérlag: Trausti Bjarnasontexti: Ragnheiður Bjarnadóttir

Húsin hafa augulag: Þormar Ingimarsson texti: Kristján Hreinsson

En dr Gunni er með það er örugglega svoldið spes!

18 dagar til jóla
Jólalag dagsins: Komdu um jólin by Gunni Óla

Friday, December 01, 2006

Dimmiteringin is done ef ég má sletta og ef þið sjáið fólk í svona bleikri múnderingu sem minnir svoldið á fíla eða e-ð þá sjáið þið ekki ofsjónir því þetta er fíllinn nellý í fleirtölu. Reyndar sá ég Gunnar tvíbura með sólgleraugu búin að setja á sig ranann og virtist vera ready í það að ræna eitt stykki banka og það með aðstoð Magnúsar! Hvað myndi maður annars gera ef það kæmi maður í klæddur bleikum fílabúningi og sagðist vera að ræna banka?? Myndi maður ekki bara missa það úr hlátri?? Það væri fyndið ef hann myndi nota ranann sem vopn en ó mæ god ef það væri byssa eða e-ð þá auðvitað fengi maður svona vægt sjokk eða e-ð!!

Sheila vinkona keypti sér sálina og Gospel í gær sem ég vona að leynist í einhverjum af jólapökkunum mínum! En ég er með diskinn í tölvunni en ég ætla ekki að setja hann inn í tölvuna heldur bara að ég fá i hann eftir 23 daga en þá koma blessuð jólin

23 dagar til jóla
jólalag dagsins: Eitt lítið jólalag by Birgittu Haukdal
venjulega lag dagsins: Brostu by Baggalútur

Wednesday, November 29, 2006

25 dagar til jóla og ég er að spá í að stofna samtök fólks sem á eftir að kaupa allar jólagjafirnar í þeim tilgangi einum að fá góðar hugmyndir!! Veit ekkert hvað ég á að gefa öllu gfólkiu sem mér finnst vænt um!

Monday, November 27, 2006

Mannréttindabrot: Að láta mann finn forseta Bandaríkjanna sem voru 8 ár í embætti!! Mæli ekki með því *æl*

Svaf í herberginu mínu í nótt sem var bara næs! nennti ekki fram úr !!

Mánudagur.

Jólin já blessuð jólin eru eftir 27 daga
Jólalag dagsins: mánudagr með mér!!!!

Saturday, November 25, 2006

1. Miðnafnið mitt(easy on):
2. Aldur minn:
3. Er ég Single or Taken:
4. Uppáhalds iðja:
5. Uppáhalds lagið mitt:
6. Hörð eða mjúk:
7. Dirty eða Clean:
8. Er ég með Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu mínu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli*engin pressa*?13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig*auðvitað*?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sef ég?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

En eitt svona hversu vel þekkiru mig en alltaf jafn gaman af því! Síðan þið sem eigið kærasta/kærastu getið prófað að leggja þetta fyrir þau undir yfirskriftinni: hversu vel þekkiru maka þinn??! Sem getur gefið góðar vísbendingar um sambandið. Nú ef hann veit ekki í hverju þú sefur þá er sambandið á rangri leið!
Góða kvöldið! Eða það er alveg að koma kvöld!!

Jæja þá er verið að setja saman fataskápinn minn sem by the way ég keypti mér í maí!! Þetta er orðið frekar langþráð! Og það er hann elsku stóri bróðir sem er að setja skápinn saman reyndar gegn því að hann fái frekar gott að borða!

Benedikt van Hoff þjóðverjinn sem meikaði það í i dolinu í fyrra mætti í x-factor meikaði það komst ekki áfram og missti það. Vægt til orða tekið! Brjálaður út af því að Páll Óskar hleypti honum ekki áfram. Átti palli kannski að hleypa honum áfram vegna þess að hann er hommi (eins og Palli)?? Meina maðurinn er ekki góður singer og hefur ekki að mínu mati þennan x-factor sem þessi þáttur gengur einmitt út á. hmm! Og þessir í sloppunum af hverju í andsk. komust gæjarnir í hvítu sloppunum áfram??

29 til jóla
Jólalag dagsisns: Kósýheit par exelanse by Baggalútur

Friday, November 24, 2006

Þetta er gæinn (hérna við hliðina á) sem var herra Ísland í gær. Og hann er ljóshærðu og tanaður og bara sætur strákur af Akranesi. Þannig að það er kominn annar frægur maður af skaganum en Óli Palli. En svona by the way þá labbaði Óli palli á mig á söngkeppni nfsu um daginn. Og ég er ekki búin að fara í bað núna í 2 vikur. Djók!

Árni Johnsen mætti ekki til að taka við heiðusrverðlaunum ársins á gullkindinni í gær: Hvað er það?? Af hverju er fólk að taka sig svo hátíðlega að það mætir ekki á gullkindina?? Er e-ð merkilegra að fá edduna heldur en gullkindina?? Er það út af því að gullkindin er að verðlauna það versta á árinu en ekki það besta eins og eddan??
meina sjónvarpskona Íslands Sýrri (ég þoli hana ekki!) varð alveg kreisí vegna þess a hún fékk 3 tilnefningar til gullkindarinnar og að sjálfsögðu mætti ekki. hvað er málið??

jóladagatal djammstrumpsins er komið af stað enda ekki seinna vænna því aðeins er mánuður til jóla og ég á eftir að kaupa allar jólagjafirnar!! Og ég hef ekki guðmund um hvað ég á að gefa til dæmis bræðrum mínum eða móður minni. Ekki hjálpaði gjafahandbók Hagkaups mikið!! og af hverju kemur ekki Harry Potter út árlega svona til að redda jólagjöf handa litla bróður??!! Svoldið fyrirsjánlegt en samt...!

30 dagar til jóla
Last Christmass by Wham

Thursday, November 23, 2006

Mikið lítur þú vel út beibí frábært hár!! Það er komið nýtt look (útlit) á líðuna og það var snillingurinn miss (ungfrú) sverrisdóttir sem á allan heiðurinn að því! Og það eru finally (loksins) komnir linkar (tenglar) inn á síðuna. Og elsku litli djammstrumpurinn er orðinn meira en 2 ára! Eigum við að klappa fyrir miss Sverrisóttur?? Klapp Klapp Klapp

Ef þð ætlð að kjósa í herra ísland þá þurfið þið að fara inn á ungfrú Ísland síðuna til að kjósa! Spes. Virkilega spes!!!

Herbergið mitt er orðið gult og það verður hopefully (vonandi) byrjað að parketleggja í kvöld og maybe (kannski) flyt ég inn í það um helgina! geðveikt
31 dagar til jóla eða dagur eða whatever! Það verður kveilt á jólaljósunum hér á self í kvöld! Og allt opið og svona!!

Er í íslensku. og þvílíkar umræður. Það er búið að tala um stúdentspróf og dómskerfið og fangelsi og svona mjög svo heitar umræður!!

Lag dagsins: Nobody knows by Pink

Á morgunn ætla ég að byrja með svona jólaadagatal þar sem ég mæli með hinum ýmsu jólalögum . Og við ykkur sem segið að þetta sé nú heldur snemmt þá segi ég hey það er mánuður til jóla á morgunn!!

Wednesday, November 22, 2006

Ég er að spá í að taka þátt í jólalagakeppni rásar 2 og það bara út af vinningunum!! Kann ekkert á hljóðfæri en mér er alveg sama vegna þess að mig langar í vinningana!!

Vinningar fyrir Jólalag Rásar 2 árið 2006:
Play Station 2 tölva
Út að borða f. 2 á Nings
Flugfar f. 2 innanlands með Flugfélagi Íslands
Bílaleigubíll frá Hertz eina helgiJólaskraut frá Blómavali
Geisladiskar í verðlaun:

Frost:

Margrét Eir - MEir, Andartak & Í djúpum dal (safnbox)
Hera Björk - Hera Björk
Margrét Eir, Eiríkur Hauksson & Páll Óskar - Horfðu til himins
Guðrún Árný - Eilíft augnablik
Helgi Rafn - Personal Belongings
Jóhann Friðgeir - Jóhann Friðgeir og vinir
Frostrósir - Vinsælustu lögin
Brooklyn Fæv - Góð jól

12 tónar:

Ragnheiður Gröndal - Þjóðlög
Pétur Ben - Wine for my Weakness
Elísabet Eyþórsdóttir - Þriðja leiðin
Það vantar spýtur... safn bestu barnalaga Ólafs Hauks Símonarsonar (söngvarar Sigrún Hjálmtýsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Örn Árnason)
Biggi - id
KK - Blús

Smekkleysa:

Björk Surrounded; Dual box 7 cd´s & DVD´s
Bogomil Font & Flís-Bananaveldið
Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur-Majonesjól
Helmus & Dalli-Drunk Is Faster
Skakkamanage-Lab Of Love
Kalli-While The City Sleeps
Tómas R. Einarsson-Romm Tomm Tomm

SENA:

Toggi - Puppy.
Friðrik Karlsson og Þórunn Lár - Álfar og Fjöll.
Regína Ósk - Í djúpum dal.
Bubbi Morthens - 060606 CDBubbi Morthens - 060606 DVD
Bríet Sunna - Bara ef þú kemur með.
Óskar Pétursson - Ástarsól (lög Gunnars Þórðarssonar)
Hildur Vala - Lalala
Friðrik Ómar - Annan dag.
Óskalögin 10
Í svörtum fötum - Orð.
Megas - Pældu í því sem pælandi er í.
Fabúla - Dusk.
Ýmsir - 100 íslensk jólalög 5 cd´s
Brain Police - Beyond the Wasteland
Lay Low - Please Don't Hate Me
Guðrún og Friðrik - Góða skemmtun
Megas - endurútgáfurDrög að upprisu - Upphaflega platan + aukaplata.Þrír blóðdropar - Upphaflega platan + aukaefni.Hættuleg hljómsveit & glæpakvendið Stella - Upphaflega platan + aukaplata.Greinilegur púls - frábærir tónleikar frá Púlsinum 1991, áður óútgefnir. Tvöföld plata.
Selma og Hansa - Sögur af konum
Stóra stundin ykkar CD+DVD
Sálin & Gospel - Lifandi í Laugardalshöll CD+DVD
Ampop - Sail To The Moon
Baggalútur - Jól & blíða
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Elín Ósk Óskarsdóttir
Friðrik Karlsson - Móðir og barn
Björg - Himnarnir opnast : Jólaperlur
Todmobile - Ópus :: 6
Björgvin ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands CD+DVD
Pottþétt 42
Laddi - Hver er sinnar kæfu smiður

Geimsteinn:

Rúnar Júlíusson - Með stuð í hjarta
Rokk og rólegheit
Dulbúin gæfa- í tugatali
Farandskugginn
Blæbrigði lífsins
Það þarf fólk eins og þig
Rúnar og Otis
Á ýmsum aldri
Nostalgia
Trúbrotin 13
Leið yfirReykjanesbrautin
Hjálmar - Hjálmar
Hljóðlega af stað
Alexandra - Soprano
Gammar - Af Niðafjöllum
Koja - Koja
Breiðbandið - Léttir á sér
Ýmsir - Ljósalagið 2006
Æla - Sýnið tillitsemi, ég er frávik
Baggalútur - Aparnir í Eden

RUV:

Útvarpsperlur - Sigurveig Hjaltested 1
Svavar Gests 1
Svavar Gests 2
Jón Sigurbjörnsson
Sigurður Ólafsson
Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar
SöngkvartettarHaukur Morthens og hljómsveit hans
Guðmundur Guðjónsson
Ingibjörg Þorbergs
Tryggvi Tryggvason og félagar 1
Tryggvi Tryggvason og félagar 2
Morgunleikfimi þegar þér hentar.

Gamla fólkið kom heim í gær. En það sem kom mér mest á óvart er að yarisinn fékk að vera inni í bílskúr í nótt. Og ég sem var ready með vatnsblöðrurnar sem ég var tikbæuin til að láta rigna yfir foreldra mína. En mæer til mikillar furðu þá mintus þau ekki einu orði á að setja bílinn inn í bílskúr þannig enn einn morgunninn þá fór ég inn í heitann yarisinn!!

Hefði ekki verið skynsamlegra af Eggerti Magnússyni að kaupa Liverpool?? Mér finnst það!!

Monday, November 20, 2006

34 dagar til jóla

Mánudagur. Þurfti að keyra litla bróður á æfingu fyrir klukkan 7 í morgunn. Veeeeiiiiiiii ! Ég er ekki týpan sem fer á fætur klukkann hálf 5 á morgnana! Ohh! Og svo koma mamma og pabbi heim á morgunn! Og ég er farin að hallast að því að þetta dæmi með að breyta herberginu mínu hafi verið alvarleg mistök og jafnvel tæknileg líka!!(ofnotaður brandanri ég veit það!) en alla vega þá er mín heitelskaða hillusamstæða búin að vera á hanginum heima í nokkrar vikur það er ekkert hægt að taka til svona almennilega og ég er að verða craaaazy á ástandinu. hvar ræður maður svona manneskju til að taka til fyrir sig á meðan maður er bara að læra eða e-ð?? Bíður sig einhver fram?? Magnús Kannski??

Af hverju var Skuggabörn valin besta heimildamyndin en ekki myndin um Jón Pál?? Skuggabörn flokkast ekki undir góðar myndir að mínu mati. En Pétur Jóhann var laaaand bestur

Á föstugadinn verður akkúrat mánuður til jóla og fer djammstrumpurinn því að komast í jólaskapið!! Fyldist með á föstudaginn!!

Atugið þetta blogg lesist með þeim fyrirvara að það er mánudagur!

Sunday, November 19, 2006



Þessi plata með Sálinni og gospel er laaang efst á jólagjafaóskalistanum mínu fyrir þessi jólin sem eru eftir svona 35 daga! Ég er að segja ykkur það að þegar ég heyrði Ekkert sem bretir því í flutningi Sálarinnar og Gospel þá fékk ég svona risastóran kökk á hálsin. Ég veit ekki hvernig á að lýsa þessu þetta er svona konunglegt tignalegt stórfenglegt og já...himnenskt!! Ég segi það bara að gospelkórinn er best geymda leyndarmál í íslenskum tónlistarheimi!! Mæli með þessu og ég mæli líka með öðrum tónæeikum með einmitt Sálinni og gospelkórnum 30. des. Stelpur eruði ekki game í það??

2 dagar í það að mamma og pabbi koma heim og já það hefst stríð. Stríðið um bílskúrinn!! það er að segja hver fær að hafa bílinn inni í bílskúr og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að það verður ekki ég!!

Tuesday, November 14, 2006

Setti henn móður minni eina mikilvæga reglu áður en hún fór út (ásamt föður mínum) að það væri bannað að hringja heim og tilkynna hitastigið!! En það er e-ð sem segir mér að sú regla verður brotin og það fljótlega

virkilega slæmur mánudagur í gær. eiginlega það slæmur að vinir manns voru farnir að hafa áhyggjur af manni.ekki allir át frekar slæma manudaga. Og hefur maður engan rétt til að kvarta lengur??

Schnilld. Ég er að fara að keyra yarisinn inn í heitann bílskúrinn!!

40 dagar til jóla

Monday, November 13, 2006

Kannski komi tími á smá svona blog?? Æ-i ég veit það ekki. Nenni því ekki. Gamla settið er að fara stinga af til fokking kanarí það er spáð fokking 10 stiga frosti á fim sem er bara algjör viðbjóður og já mér er illt í hálsinum mig langar heim að sofa herbergið mitt er enþá í fokki verður hopefully málað um næstu helgi fór að sofa klukkan hálf 2 eða e-ð í nótt. OHHH mig langar bara til að kvarta!

Ljósi punkturinn er 100 íslensk jólalög sem er komin út núna með helling af flottum 80's jólalögum eins og Þú og ég (jólagjöfin mín í ár ekki metin er til fjár...9 og so videre. Inn galli samt. Þegar jólin koma með á móti sól er ekki á disknum sem mér fnnst bara skandall. Og það er ekki út af því að Magni er svo og svo vinsæll eða e-ð heldur er þetta eitt af mínum uppáhaldsjólalögum!!

Ég get sett elsku litla yarisinn minn inn í bílskúr á meðan mamma og pabbi eru úti. Sem er mjög gott þegar er spáð svona viðbjóð (-10 gráður) Sofandi námsstúlka fraus við það að skafa af bílnum sínum. Af hverju?? Hún sofnaði!!

Var að sjá drög að próftöflu í morgunn og samkvæmt henni er stæ prófið 2 des og svo þýs prófið 12 des. HALLÓ ER E-R HEIMA?? Á ég ekki að komast í jólafrí fyrr en 12 des?? Það er ekkert ömulegra en að bíða i heila viku eftir því að komast í síðasta prófið. Maður hættir að nenna að læra maður er alltaf að fara yfir það sama núliðin tíð í þýskuallan daginn í heila viku?? Ó mæ god!! veit ekki hvort ég meiki það. En athugið þetta voru bara drög að próftöfluþannig að þetta getur breyst!!

Lífið væri mun auðveldara ef maður gæti verið með vettlingana á höndunum alltaf!!

41 dagur til jóla

Friday, November 10, 2006

Skóladansleik FS aflýst á Selfossi

Forrráðamenn Fjölbrauta Suðurlands ásamt stjórn nemendaráðs, hafa ákveðið að fella niður skóladansleik, sem fram átti að fara í klukkan 22 í kvöld í Ölfushöllinni, vegna veðurs og óhagstæðrar veðurspár. Að sögn skólayfirvalda gengur á með dimmum éljum og þótti ekki treystandi að halda ballið þess vegna. Nánari upplýsingar fást hjá skólayfirvöldum FS og stjórn nemendaráðs.

Okei. En það sem sá sem skrifar þessa frétt er að átta sig á að FS er fjölbrautaskóli Suðurnesja en ekki Fjölbrautaskóli Suðurland. Enda væri mun styttra fyrir FS-inga að skella sér bara á yellow eða e-ð!!

Wednesday, November 08, 2006

Mig langar til að vitna aðeins í Sigga Storm: "Hér á Ísafirði verða svo hvít snjókorn"! Okei en af hverju var snjórinn á bílnum mínum þá bleikur í morgunn!! Er komin einhver veðurfræðilegur bleikur matarlitur?? E-ð sem gleymdist að kenna manni í náttúrugræði hérns í gamla daga?? Það er svo augljóst að snjórinn sé hvítur! döhh!

Á morgunn fer fram hin árlega söngkeppni nfsu og ég verð útkastari aka í gæslu. Er hlutverk mitt sem dyravörður í Hey þú hérna forðum daga að skila mér þessu hlutverki. Ég er komin í sömu stöðu og hann Már vinur minn. Og ég sem lít ekki út eins og dyravörður!! Eru það fordómar að líta á dyraverði sem frambærilega keppendur í worlds strongest men?? Ef svo er þá er ég ekki að fara í þá ágætu keppni

Það snjóar! Og inní mér er lítið jólabarn sem er staðsett rétt undir rifbeinunum sem gleðst mjög mikið enda ekki nema 46 dagar til jóla!

Lag dagsins: Þú trúir því by Sálin og gospelkór reykjavíkur (Bara flott það er e-ð svo tignalegt við þennan kór og svo blandast þetta tónlist sálarinnar og útkoman verður tær snilld!!)

Tuesday, November 07, 2006

Hér er ein hugmynd af því sem hægt er að gefa mér í jólagjöf!!

Saturday, November 04, 2006

Jæja...! Húsið opnar eftir svona korter en þetta verða ekki svona vonbrigði eins og annar í jólum hérna forðum daga! Ég er mjög svo save inn! En annars búin að fara í sturtu komin í sokkabuxurnar og þær eru heilar. Sem er nýtt. Á það til að rífa sokkabuxur á svona 01 og það fer gífurlega mikill peningur í sokkabuxna kaup á ári. En ég er bara að fara að skella á mig make uði og svo ætlar gamli kallinn að skutla mér en nei ég er ekki að far að taka jómfrúar fyllirýið mitt. Það verður bara að bíða betri tíma!

Upp á palli, inn í tjaldi, út í fljóti,
vonandi skemtið' ykkur
illa drukkin, inn í skógi, hvar er tjaldið?
Vonandi skemtið' ykkur vel!

Leyfi bara greifunum að enda þetta. E#ða okei Duran Duran Íslands! Var bara að leggja saman 2 og 2 um daginn og fékk þetta út!!

DJAAAAAAAAAAAAAAAAMMMMMMMMMM!!:)
Hey þessi er komin í gang aftur!!
Góðan dag!! Það hefur ekki verið svona gott veður síðan æeg bara veit ekki hvenær!! Alveg yndislegt veður! Sólin skín í heiði og fuglarnir syngja Bítlalög. All you need is love! Eða ekki. Veðrið úti er vægast sagt ömulegt. Vægast sagt. Á ég að segja bara viðbjóðslegt?? Það er ekki hægt að skýra þetta með einhveju öðru en að segja bara að veðrið úti er viðbjóður! Und míns er að fara að skemmta sér í kvöld og það er spáð alveg crazzzy roki! 20 metra á sek eða e-ð. Ég er að spá í að biðja gamla manninn á heimilinu að skutla mér á ballið. Því ekki tek ég taxa. Það er svo dýrt! Heldur labba ég og fýk bara til Grindavíkur eða e-ð en að taka leigubíl!! En samt einn ljós punktur. Það er ekki snjór og það er ekki hríð. Ef svo væri þá þyrfti maður kannski að dusta snjóinn undan pilsinu áður en maður gæti farið að höstla! Búin að vaða snjó upp í nára og það væri kaaaalt! Síðan var e-ð bull í fréttablaðinu í morgunn um að það yrðu rauð jól í ár. Common það er bara 4. nóv og þessir vitleysingar eru strax farnir að hóta rauðum jólum. Hvað á það að þýða?? Segi bara eins og Bogómíl Font veðurfræðingar ljúga!!

Hversu óhepin er hægt að vera??! Ókei smá forsaga. Fór með stelpunum í bíó á Mýrina (Vægt til orða tekið frábær mynd!) og ætluðum í 8 bíó en það var uppselt þannig það var ákveðið að fara í bíó kl 10. Og allt í goðu með það. Fórum heim til Sunnu og fórum í matador. Okei núna fara hörmungarnar að byrja! Það er þannig í matador að þú verður að fara yfir byrjunareitinn til að geta fengið 2000 kall og það má ekki lenda á honum því þá færðu engan 2000 kall! Einfalt. En í stuttu máli sagt þá spiluðum við 2 hringi og ég lenti tvisvar á byrjunarreitnum!!! Og í annað skiptið þarfti ég að borga 2000 kall í e-n helvítis skatt!! Óheppinn?? Þetta er ekki hægt!!

Á móti sól í ölfushöllinni í kvöld eftir svona nokkra tíma eða bara um miðnættið. Og ég á von á alveg geðveiku stuði í kvöld. Og bara skilja baseball kylfurnar eftir heima og alla hnífa og öll leiðindi mæta bara með góða skapið. Menn fara ekki með baseball kylfur á djammið. Ég skil ekki svoleiðis fólk. En ætti ég að biðja hann elsku Þóri minn um að spila afmælissönginn fyrir Binnu?? Jebb hún á afmæli á morgunn konan. Verður 20! Sko búin að ná mér. haha. Vonandi að hún lesi ekki bloggið mitt fyrir ball. Ég veit ekki hvað hún mundi gera við mig ef ég myndi láta verða af þessu. Hún yrði ekki sátt!!

Jólalagasamkeppni rásar 2 að fara í gang. Ætti maður að búa til lag??

Lag dagsins: Hver einasti dagur by Á móti sól (Þetta lag er geðveikt. Það er akkúrat ekkert íslenskt við þetta!!)

Wednesday, November 01, 2006

Hey þetta er 300. færslan!! Pælið í því! Og nú er komin nóvember sem þýðir að nú er hægt að fara að segja að jólin séu í næsta mánuði!! gleði gleði

Saturday, October 28, 2006

Búin að vera í vörutalningu í allann dag og það kæmi mér alveg skemmtilega á óvart ef mig myndi ekki dreyma tölur gula og gula miða í nótt. Flúgandi tölustafir. Flúgandi gulir miðar. Okei einhver bara einhver efist um geðheilsu mína! Fljót! Núna! Strax!!

Fóstbræður. Þvílík snilld!! Spaugstofan er akkúrat ekkert fyndin í samanburði við Fóstbræður. Eins og ég segi þvílík snilld!!

Nenni ekki að blogga. Svoldið eftir mig. En ef þið eruð nýbyrjuð á vinnustað og ykkur langar til að kynnast vinnufélögum ykkar þá er vörutalning ekki málið. það er engin leið að tala saman á meðan verið er að telja. Allir eru bara 1...2...3...4....5...! Mætið bara og gerið ykkur að fífli í næsta staffa partýi drekkið ykkur blind full og skítið á ykkur. Þá muna allir definatly eftir ykkur!! Þetta var reyndar orðið svo slæmt í dag að hausinn á mér fór algjörlega í fokk og ég gat ekki talið. Sem það var ég búin að vera að telja stanslaust (nánast!) í 8 tíma! Það er kannski e-ð skrýtiðað e-ð gefi sig í hausnum á manni!!!

Og ég hef komist að því mér til mikillar skelfingar að hávaxið fólk stjórnar heiminum og ég er ekki að grínast!! Það miðast allt við þeirra þarfir og þá meina ég allt!! Hvað erum við konur á kvarta??!

laufey elsku krúttið mitt til hamingju með árin 20 og einmitt núna ertu örugglega að njóta allra guðaveigana sem þú keyptir er þú fórst í fyrsta sinn í ÁTVR á snekkjunni þinni sem er akkúrat núna einhvers staðar í Karíbahafinu. Ég er samt enþá að bíða eftir boðskortinu mínu!! P.S: ég er búin að vera 20 síðan í apríl og hef aldrei farið í ríkið!!

lag dagsins: Roxanne By Delana (by the way þetta er gjörsamlega geðveikt!!!)

Bíddu átti þetta ekki að vera stutt??!

Thursday, October 26, 2006

Stjórnmálafræði er síðasti tími fyrir vetrarfrí og það er verið að tala um þriskiptingu valds og allt það kjaftæði en hver er að nenna að pæla í því svona rúmum klukkutína fyrir vetrarfrí. L´ðanin er svona eins og þegar ég var að fara á konukvöldið og ég átti eftir að gera svo mikið áður en ég fór í bæinn. Sturtu og allt. En mig minnir að það hafi bara tekið um hálftíma að fara í sturtu klæða mig ákveða hvaða föt ég ætti að fara í mála mgi og svona. Segja svo að það taki konur langan tíma að mála sig og græja fyrir djamm!!!!!

Tuesday, October 24, 2006

Móðir hvar er barnið þitt svona seint um kvöld faðir hvar er yndið þitt þokann er svo köld!! Þetta lag er schnilld. Og bara flott á 060606 tónleikunum sem ég varð að kaupa mér! En ég held a' svona t+onleikar verði samt ekki endurteknir.

Kvennafrídagurinn í dag. Samt ekki búin að labba út og mótmæla það er bara svooooo andskoti kalt!! Og ég held að hitamælirinn í bílnum hjá mér sé e-ð mikið brenglaður. Hann sýnir 0 gráður þegar það er svona-20 gráður eða e-ð!! Og mér til mikilla vonbrigða þá er ekki séns að skrifa með vetlingana á höndunum það er ekki séns. ætlaði að reyna þaðí þýsku en nei það var ekki möguleiki!! Sem var slæmt því mér var kaaaaalt!! BRRRRRRRRRRRRRRRRR!

Friðrik Ómar er að fara aðgefa út plötu núna fyrir jolin (hey það eru 2 mánuðir til jóla!!!!!!) og það er kominn nýr singull sem heitir þessar dyr sem er dúett með honum ogur fallega Páli Óskar. Synd að þeir séu ekki fyrir konur. Er ekki hægt að setja lög sem banna það að fallegir karlmenn séu samkynhneigðir?? En lagið er alveg ógeðslega flott!! En nýja lagið með Sálinni og gospelkórnum. Vá!! Bara flott!! Ímyndið ykkur gospelkórinn taka byrjunnina á Ekkert breytir því með Sálinni og það án undirleiks!!

Thursday, October 19, 2006









Var að kaupa mér 06 06 06 í gær og vá hvað það hefur örugglega verið geðveikt að vera á tónleikunum en ekki vera bara heima að éta popp og e-ð! Vá hvað mig langaði að fara!






Fataskápurinn er kominn út í kuldann og mikið er ég feginn. En magnað samt hvað maður finnur þegar farið er að taka til. Þegar skápurinn var loksins var kominn út fann ég á gólfinu bækling sem á stóð Spurningar og svör um pilluna! Og hvar í óköpunum náði ég í þann ágæta bækling?? Örugglega í kynfræðslu eða e-ð. Alveg magnað maður!!

Airwavws er bara það heitasta sem er í gangi!

Commenta!!!! Ef það er einhver sem er að lesa þetta vinsamlega kommentið!! segið hvað ykkur finnst! Er æeg bara i ruglinu hérna eða hvað?? Og þið megið alveg segja að ég hafi ömulegan tónlistasmekk nema það er bannað að segja e-ð ljott um Bubba!

Lag dagsins: Er nauðsynlegt að skjóta þá?? by MX-21

Wednesday, October 18, 2006

Góðan dag! Ég var alveg ógeðslega dugleg í gær. Reif allt drasl og dót sem var í öllum mögulegum og ómögulegum skápum og skúffum sem eru í mínu litla sæta herbergi og þvílíkt drasl!! Díses Kræst. Jæja en ég auglýsi eftir náttúruverndarsinnum sem hugsanlega eru á móti því að fataskápurinn í herberginu mínu verður rifinn því hann er orðinn gamall og sumir myndu segja að hann væri antík en hann er fyrir löngu orðinn gagnslaus! Og hann verður rifinn (vonandi í dag!) og honum verður hent!! Óg ykkur að segja þá get ég ekki beðið!! En hvar í ósköpunum hef ég fengið allar þær bækur sem eru inni í herberginu mínu?? Mikið af þessu eru barnabækur eins og Ari lærir að synda sem var notuð til að kenna manni að lesa hér áður fyrr í old days. Síðan uppáhalds bókin mín þegar ég var 8 ára sem var Lion King!! O mæ god hvað ég elskaði hana!! Henti líka alveg helling af skólabókum sem er ekki hægt að selja. Hvað er það?? Maður fer með helling af bókum sem maður hefur engin not fyrir og ætlar að selja þær en nei í staðinn situr maur uppi með fullann skáp af bókum sem eru orðnar gamlar úreltar sem hætt er að nota og gera ekkert annað en að teppa skápapláss! Henti meira að segja einhverri bók sem ég var með í sál 103 (það eru 3 ár síðan!) sem var meira svona handrit af bók sem síðan kom. Var maður að vonast til að einn góðann dag myndi maður nota þetta handrit??! Díses kræst!!

Prison break byrjaði í gær! Og spennustigið var ekki minnkað á milli þáttaraða!! Sem voru pínu vonbrigði því ég héllt að það yrði aðeins minnkað svo maður myndi ekki missa það alveg eins og in last episode. En pælið í því ef það hefði ekki komið önnur sería og þetta hafi bara endað eins og síðasta sería!! Þeir hlupu bara út í myrkrið og maður hefði ekki fengið að vita hvað varð um þá! Þá hefði ég farið í mál!

Airwaves er að byrja í dag og svona eins og alltaf er ég ekki að fara á airwaves!

06 06 06 eru komnir út á cd og dvd og bara sem Bubba fan þá er það bara must að eignast þetta!

Monday, October 16, 2006

bara svona til að minna ykkur á það að það eru aðeins 10 dgar í vetrarfrí!!!! Gleði gleði. Sem þýðir bara ett í næstu viku þá byrja ég á herberginu mínu!! Ó mæ god. (Janice)

Kompás sýndi fram á það að það er alveg skelfilega auðvelt fyrir krakka í dag að ná í dóp. Tekur bara fokking 20 mín að fá dópið. Þetta er í alvöru auðveldara en að panta pizzu!!Þá er e-ð mikið að!!!!

Thursday, October 12, 2006

Það mætti halda að ég væri með íkea og svía á heilanum og kannski er það rétt. Get ekki dæmt um það. En alla vega það atvik sem varð til þess að ég er ekki mikið ikea fan er rosalegt. Eða kannski ekki neitt svakalegt en okei!

það er sunnudagur og þetta var á þeim tíma sem ég var alveg desperat í að finna mér fataskáp (og don't worry ég er búin að finna fataskáp og hann verður vonandi settur upp bara í næsta mánuði!) þannig það er farið í borg óttans til að finna fataskáp og fyrsti áfangastaður: IKEA! Allt í lagi. Ég labba inn í íkea (í Holtagörðum) ásamt gamla settinu. Allt í lagi að koma inn í andyrið en svo fór ég inn í búðina. Og þá fékk ég sjokk! Það eru engnir gluggar þarna heldur fullt af eldhúsinnréttingum rúmum sófum og svo ofan á allt annað þá var allt troðið af fólki þarna þungt loft (getur vel verð að ég hafi verið að skemmta mér kvöldið áður) og ég gékk innilokunarkennd!Mér leið alveg skelfilega illa. Og svo ofan á allt annað á var búðin ekki bara svona beint svona e-ð eins of rúmfatalagerinn en nei nei þetta var fokking hringur!!!Og ég labbaði fram hjá elhúsinnréttingu og alles með sennilega mestu innilokunarkennd sem ég hef á ævnni fengið!! Og það fyrsta sem ég sagði þegar ég kom út í bíl var ósköp einfalt: ÉG FER ALDREI AFTUR Í ÍKEA!!! En til að gleðja alla aðdáendur þá hef ég brotið þetta og farið í íkea. Og þá var ég að leita að fataskáp!!keypti ekki elsku litla fataskápinn minn í íkea heldur í búð í Garðabæ. Þannig að þarna kemur skýringin af hverju ég er ekki íkea manneskja!!

Pæling: Hvort eru 14 eða 15 dagar í vetrarfrí?? Hvort teljið þið með fimmtudaginn eftir 4 og segið að þá séuð þið komin í vetrarfrí á föstudeginum?? Þegar þið megið sofa út og allt það?? Nei bara pæling!

Er e-r game í að koma með mér á tóleika í laugadalshöll 1. des þegar Magni húsbandið Delana Storm og Toby munu troða upp?? Og ég lofa að koma með það á enginn sem ég þekki (eða man eftir í augnablikinu!) afmæli. Því þetta er once in a lifetime show! Fínt að fara á tónleika áður en maður sekkur sér í þýskar sagnir og algebru. Já fólk ég er að reyna að eyðileggja daginn með að minna ykkur á að það er orðið svoldið stutt í pró

Wednesday, October 11, 2006

Ó hvað það verður gaman fyrir tapsára íslendinga að fara og versla í nýju humongus íkea búðinni á morgunn með alla svíana flissandi í kringum sig. Vei gaman!! samt finnst mér þessi sigur þarna ekki sanngjarn við áttum að jafna!! Damm!

Jæja best að fara að sofa!
Áfram Ísland þó svo aðég verði að viðurkenna að ég er ekkert alltof bjartsýn á að það fari vel í kvöld. Og fyrir þá sem ekki vita þá er e´g að tala um landsleikinn í kvöld sem vð munum spila gegn svíum í kvöld. Það er bara þanng. Leikurinn á lau var nátttúrulega algjör hörmung þannig ég veit ekki einu sinni hvort mig langi til að horfa á leikinn. þó svo að Hermann Hreiðarson sé sætur og allt það þá er Sölvi Tryggvason í Ísland í dag svo miklu miklu sætari!! En finnst ykkur samt ekkert kaldhæðnislegt við það á morgunn þá á að opna huge ikea (og þá meina ég huge!!) búð upp í Garðabæ eða Hafnafirði (allt sami staðurinn eða næstum!) og það daginn eftir Ísland-Svíþjóð??Og meira að segja held ég að jólalandið verður opnað líka. þannig að ef það verður e-ð sænskt afgreiðslufólk í búðinni á morgunn og bið töpum þá munu svíarnir flissa af okkur íslendingunum sem erum betri i því að versla en að spila fótbolta. *dæs* Ég er svo merkilega lítil ikea mannseskj að það er ekki fyndið. Áfram rúmfatalagerinn!!!!

Tuesday, October 10, 2006

Var að koma af sýningunni Patrekur 1,5 sem boðið var upp á hérna í hinni háu menntastifnunn fsu og vá hvað það var gaman. Eða ég er búin að fara í ensku og svona. En alla vega var þetta ógeðslega fyndið og leikararnri svaðaleg krútt enda var Rúnar Freyr einn af þeimsem vor að leika. Þetta er sænskt og er þýtt á alveg snilldar háttaf fyrrum bleikt og blátt ritstjóranum Davíð Þór og eg er að segja ykkur það að þyðingin er snilld. Éger enþá hálf svona hlægjandi. hehehehehehe

Jæja best að fara að sinna blaðamanninm ísér og mæta á ritráðsfund:)

Friday, October 06, 2006

Það er föstudagur elskan og það er ekki laust að ég hafi komist að þeirri niður stöðu eftir konukvöldið að fallegir karlmenn geri mann ínu ónýtan daginn eftir!! Alla vega er þetta erfiðasti dagurinn það sem af er þessari önn þannig að það er easy að álykta sem svo. En allt um þetta inn á Ágústunum sem er bloggið sem ég held úti með snillingnm henni Ágústu Sverris! Endilega kíkið á þetta og kommentið!

Wednesday, October 04, 2006

Ég væri til í að vita það hvort þú hefðir einhverntíma séð rigninguna?? En ala vega þá fann ég alveg fyrir henni þegar ég hljóp út í bíl í morgunn. Og það var alveg huge mikil rigning. og eins og ég segi því miður þá ringdi ekki karlmönnum *dæs*! því ég er alveg búin að sjá það hvernig karlmanns rigning lítur út!! Jájá stundum hefur maður bara ekkert að gera!

Ég er gangandi aulýsind fyrir Zik zak!

Lag dagsins: It raining men by Weather girls

Monday, October 02, 2006

It's monday baby og eins og alltaf á mánudögum er ég búin að lesa stjórnarskrá Íslands!!!! Mannréttindabrot að láta mann lesa stjórnarskrána klukkann fokking hálf 8 á mánudagsmorgni!! Ekki beint það sem maður er að hugsa um. En samt er ein manneskja alveg að bjarga mér alveg big time í fél 303 (stjórnmálafræði!) og það er hún miss Sverrisdóttir. Og það sem við tölum um er svo langt frá því að vera tengd stjórnmalafræði að það ekki fyndið!! Delana og mani og Á móti sól á broadway hvernig í andskotanum tengist það kjördæmunum 6?? Jah maður spyr sig.

Talandi um Delönu og allt það fólk þá einmitt í stjórnmálafræði einmitt á fimmtudaginn þá var miss Sverrisdóttir búin að redda miðum á tónleikana á broadway fyrir okkur stelpurnar (já hún Ágústa er algjör snillingur!!) og ég var að sjálfsögðu sú fyrst til að segja feeeiiit já í að fara. Allt í lagi með þa. Síðan yfir kvöldverðinum með gamla fólkinu á fimm kemur í ljós að það á að halda upp á 75 ára afmæli afa míns og það á heimili mínu!! Sem þýddi það að ég komst ekki með á broadway!! Sem var svo langt frá því að vera sniðugt að það er ekki fyndið!! Og ég var EKKI sátt! E e-n veginn náði ég að sætta mig við það að komast ekki á broadway. En ég ER að fara á broadway (don't stop me now i'm having such a good time!) á konukvöld Zik Zak. Og hver var að redda miða á það?? Jú miss Sverrisdóttir. Sagði það að hún væri snillingur. En hvernig er það miss Sverrisdóttir verða engnir stripparar??

1 í aðalfundi hjá eldra fólki verður að Akureyri á morgunn þegar áheurnarpróf fyrir x-factor fara fram!!

lag dagsins: Hate me by Blue October

Thursday, September 28, 2006

Fallegasta blogg landsins. Herra Ísland eru farnir að blogga og minna okkur á að kjósa gelluna sem er í miss world þcí vorum svo geðveik þegar við vorum að kjósa Magna áfram og svo Unni Birnu í fyrra þannig af hverju ekki að koma gellunni í miss world áfram?? Ég veit ekkert hvað hún heitir en það er bara út af því að eg er ekki fyrir konur!

Hræddustu menn á Íslandi eru sennilega gæjarnir í kf nord þegar þeir fóru á Hraunið ða spla við fangana. Vá hvað mig langar til að sjá þennan þátt!! Af hhverju þekki é gengan sem er með sýn?? (sjónvarpsstöðna sko!). Spaugstofan var reyndar með blindur fær sýn og voru kærðir fyrir það...
Fallegasta blogg landsins. Herra Ísland eru farnir að blogga og minna okkur á að kjósa gelluna sem er í miss world þcí vorum svo geðveik þegar við vorum að kjósa Magna áfram og svo Unni Birnu í fyrra þannig af hverju ekki að koma gellunni í miss world áfram?? Ég veit ekkert hvað hún heitir en það er bara út af því að eg er ekki fyrir konur!

Hræddustu menn á Íslandi eru sennilega gæjarnir í kf nord þegar þeir fóru á Hraunið ða spla við fangana. Vá hvað mig langar til að sjá þennan þátt!! Af hhverju þekki é gengan sem er með sýn?? (sjónvarpsstöðna sko!). Spaugstofan var reyndar með blindur fær sýn og voru kærðir fyrir það...

Tuesday, September 26, 2006

Zygmarr alltaf góður! Einn besti bloggari á landinu! Meira að segja betri en ég!! Og þá er nú mikið sagt. En annars smá svona ritstífla sem er kannski bara mjög eðlilegt svona fyrir klukkan 8 á morgnana!!

Samt er engin til í road trip kannski til Akureyrar í næstu viku til að gera sig að fifli i xfactor?? Allir sem eru til hafi sambang við gulu línuna!!

Monday, September 25, 2006

Hildur Vala er að fara að gefa út plötu núna í byrjun október og guess what hver er upptökustjóri?? Jú Jón Ólafsson hvað annað??

Ég er sjúk. Sló inn leitarorðið jólavefir og fór inn á einn slíkan og komst að þvíað það er enn og snemmt að fara inn á svona jólavefi. Það er bara september enþá!!!!

Lag dagsins: Blame it on the sun by Emilíana Torríní

Sunday, September 24, 2006

Í dag eru akkúrat 3 mánuðir þangað til blessuð jólin koma og ekki seinna vænna að fara að updeita jólagjafalistann sinn svo hann verði nú örugglega tilbúin í tæka tíð. En ég er ekki sátt með að jól.is s ekki virk þannig að ég get ekki séð nákvæmlega hvað það eru margir dagar þangað til jólin koma. Ekki sátt!!

Tékkið á þessu ef ykkur langar til að vita allt um gosdrykki. Spes. Virkilega spes.

Thursday, September 21, 2006

Jæja best að fara að lúlla en er búin að vera á alnetinu alveg allt of lengi!

Órjúfanlegur hluti af haustinu er brunaæfing í skólanum. Ekki gott.

Tuesday, September 19, 2006

Góðan dag og allt það. Vonandi skemmtið ykkur vel! Ég er i sögu. Vei!!

Það er voða aulalegt að gleyma að skila spólum og því er ég just about að fara að segja að ég er auli því að ég tók spólur á lau og gleymdi að skila blessuðum spólunum. Það var svoldið sjokk að fatta það að spólurnar væru enþá inn í stofu. Enda var ég líka mjög upptekin þegar þetta fattaðist. Var á msn!! Og átti þar í very very spes umræðum við mrs Sverrisdóttur! Já og það sem var að ég fékk eiginlega meiri aulahroll yfir umræðuefni en því að hafa gleymt að skila spólunum. Enda er ég enþá með pínu aulahroll! shit

Er e-r game í Á móti sól Magna og kannski Delönu á broadway 30 sept??!! Þetta er sennilega með stærri böllum ársins þannig að...e-r game??

Ný síða með dúllunni honum Magna mínum. Hann heillaði mig alveg big time í kastljódsinu á sunnudaginn

Hugleikur Dagsson og Þorsteinn Guðmundsson eru meðal þeirra sem skrifa handrtið af áramótaskaupinu þetta árið. Og vitiði hvað?? Ég er farin að hlakka til!!

Sunday, September 17, 2006



Hann Magni okkar er kominn heim!! Og eðlilega þá er þjóðarstoltið alveg á fullu þessa stundina enda ekki skrýtið við það hann var að standa sig alveg svaðalega. Mín persónuleg skoðun er sú að þó að Unnur Birna hafi náð í öllu þessu miss world dæmi þá hafi Magni samt náð að gera mun stórkostlegri hluti en hún Unnur Birna okkar því að það er ekkert smá mál að vera að syngja fyrir menn eins og Tommy Lee og Jason Newsted. Það er einhvern vegin bara meirra afrek það sem Magni gerði. Og ég tek þetta bara sem dæmi af því að bæði hafa þau fengið konunglegar móttökur í Smára(lima)lindinni. Og ekki misskilja mig Unnur Birna stóð sig alveg eins og hetja í Miss World og var okkar ágæta landi til mikils sóma. Þannig að nú er Magni orðinn konungur Íslands og Unnru Birna drottning Íslands. Cooool stofnum konungsdæmi!!


Þessi færsla hefur einkennst af smá svona þjóðarrembingi. En athugið bara smá.

Lag dagsins: Fram á nótt by Á móti sól. (Þeir coveruðu það. En það er annars með bandinu Nýdönsk)

Thursday, September 14, 2006



Hehe ég er að fara í réttir á morgunn þar sem kindurnar verða í aðalhlutverki. Og munið kindur segja ekki MEE! heldur BEE! Hehe:)
Kvöldvaka í völd. Dr Mister and Mister Handsome spila. Textalega eru þeir mjög mjög umdeldir. Og coverið er ekki það fallegasta!! Og svo verður Helga Braga líka! Check it out!



Magni varð í öðru sæti í Rockstar í gærkvöldi! Og Lukas vann. Surprise surpr...nei kom manni svo sem ekki mikið á óvart að Lukas hefði unnið manni grunaði það alltaf. Þó innst inni þá vonaði ég að Magni myndi vinna þó svo að han mundi kannski ekki hafa gott af því að fara á tónleikaferð með Tommy Lee og þeim þarna köllum. Veit ekki hvort hún móðir mín myndi samþykkja hann sem tengdason. Alla vega myndu amma og afi (bæði pörin) fá hjartaáfall!

Best að fara að læra þolmynd í Þýsku. Jei!!!

Wednesday, September 13, 2006

HJÁLP!! Ég er með Tóta Tölvukall á heilanum! Ekki gott!

Skil ekki þennan Sugar Rush þátt sem er alltaf á undan niðurskurðarþættinum í Rockstar. Ég bara næ honum ekki.

En ég ætla að reyna að horfa á úrslitin í kvöld.

Fsu er 25 ára í dag. Og því klæðast allir gulu í dag vegna þess að gult fer mér ekki. Vá hvað þetta var stelpulegt!!!
Hæhæ landráðamaðurinn hér! Ég er landráðamaðurinn því að í staðinn fyrir að horfa á þjóðarstoltið hann Magna ákvað ég hreinlega að fara bara að sofa. Meira að segja mamma horfði á hann elsku Magna minn. Æ-i hann er svo mikið krútt! En okei ég ætla að kaupa mér ás byrgðir af magic til að geta lifað þaðaf að horfa á úrslititn. Því að ég á viðeitt mjög stórt vandamál að stríða. Eg ég leggst niður til að horfa á sjónvarpið þá nær nantekningalaust þa sofna ég alltaf!! Óþolandi!!S´ðan eru þessar augl+ysingar sem ég þoli engann veginnn!Urr!

Monday, September 11, 2006

ohhh! Var búinn að blogga heilan helling um óvissuferðina þar sem Ómar var að kenna okkur stelpunum að dansa við verulega vont europopp og það sænskt. Hun hedder Anna Anna hedder hun . Og þetta er asnalegt en svona er þetta þegar allt þurkast út!! En samt hef ég aldrei lagst eins lágt og á laugadagskvöldið! Jájá en það er ekki tengt neinum karlmönnum eða neitt þannig...! En ég veit ekki hort maur getur lagst e-ð lægra en að borga 1000 kall inn á Geirmund Valtýsson!!! Ég veit það ekki það er e-ð bogið við þetta það er e-ð rangt við að eyð 1000 kalli í að hlusta á geirmund Valtýsson. E-ð mjööög rangt!! Var ekki að fíla hann. Plús það að hann er ekki fallegur! Ekki að það skipti máli....en bara varð að koma þessu að.

Það var talað um það í Fréttablaðinu í gær að Bubbi myndi tala um e-r risvandamál í Örlagadeginum og það runnu á mig tvær grímur því að ég hafði engan áhuga á því hvort hann nær ´onum upp eða ekki því Bubbi á bara að vera gera það sem hann gerir best og það er að spila! En ég horfði á þáttinn í gær og vá hvað þetta var tekið úr samheng. Þetta var í sambandi við lag sem er á plötunni Ísem skrefa fjarlægð frá parafís sem heitir Get bara ekki sem fjallar um að hann gæti sofið hjá (en ég túlkaði bara að hann væri í rúst eftir skilnaðinn enda er ég svo saklaus) og þá kom þetta fyrir en það fylgdi því að þetta gæti komið fyrir hjá hverjum sem er. En það er víst e-r bók að koma!! Spennó spennó!

Lag dagsins: Chasing cars by Snow patrol (bara flott)

Friday, September 08, 2006

Haha! Fyrsta bloggið mitt á síðuna eftir að ég fékk fartölvu haha...!

Óvissuferð á morgunn. Haha! Og það með BYKO. Haha! Ég hlakka alveg ógeðslega til. veit að við verðum úti að gera e-ð sniðugt þannig...hvað gerist á morgunn??Haha

Er svona að ná mer eftir þennan svaðalega Big love þarna í gær og já hann er svaðalegur. Hitti Ómar vinnufélaga minn áðan og spurði hvort hann myndi vilja eiga alveg 3 konur. Hann svaraði alveg að bragði-einsog sannur karlmaður auðvitað helst sko 4 ég: 4?? Ómar:já 4 langar þig ekki að eiga 3 karla ekki segja mér að þér að þig langi ekki að eiga 3 karla! En ég get bara sagt það fyrir mig að mig langar ekkert í karla maður verður að sofa líka. Þetta má ekki vera svo svaðalegt...you know að maður getur ekki sofið! Þannig að þessi blessai Big love þáttur er búin að eyðileggja fyrir mér helgina. Haha!

Lag dagsins: It's raining men by the Weather girls

Thursday, September 07, 2006

Díses Kræst!!Ég var að horfa á þátt sem heitir Big love á stöð 2 áðam og ég segi bara eins og Janice í Friends ó mæ god!! Fyrir þa sem ekki vita þá er þetta um mann sem er mormóni og hann stundar fjölkvæni og á hann 3 konur! Og það eitt og sér er alveg feiki nóg! Alla vega var ég orðin hneyksluð eftir 2 mínótur. Og svo ofan á allt annað þá stundaði hann villt kynlíf með öllum þremur!! Díses kræst!! Síðan kemur upp hjá manni pælingin myndi maður virkilega vilja láta bjóða sér þaðað vera bara kona númer 2 eða 3??1 Meina common þetta er ekki allt í lagi!! Ég gæti ekki deilt manni með bestu vinkonu minni!! Jæja ég bara varð að benda ykkur á þessa mjög svo spes þætti því þetta er...jú spes!!!

Magmi komin áfram. Að sjálfsögðu. Hann er bara lang flottastur og svei mér þa að hann sé ekki bara pínu kyntákn!!GRRR!! Alltaf þarf ég að koma perraskapnum í sjálfri mér á framfæri en jæja...!

Lag dagsins:I will survive by Gloria Gaynor (Hún á afmæli í dag ætla samt ekki að syngja ég hringdi í hana og spurði hvort ég mætti syngja fyrir hana en hún vildi það alls ekki! Ég varð ekkert smá fúl!)

Kíkið á Ágústurnar

Wednesday, September 06, 2006

Okei ég veit út af e-u samninga dæmi má ekki segja hvað komu mörg atkvæði í síma kosningunni í nótt en hvað í ósköpunum komu mörg atkvæði?? Það komu helmingi fleiri atkvæði í nótt en í síðustu viku og ég bara verð að vita hvað það eru mörg atkvæði? 100000 150000 200000?? Ég veit að 200000 er kannski svoldið mikil geðveiki en hey erum við íslendingar svoldið geðveikir þegar kemur að e-u svona. Við getum staðið saman þegar við gerum það!! Okei ég legg til að eftir úrslita þáttinn verði öllum þessum leyndamála samningum um símakosninguna og við fáum endanlega úr því skorið hvað það voru mörg atkvæði alla veg núna í 2 síðustu skipti. Nei bara Hugmynd!

Ég lýsi eftir því ef e-r sem les þetta á lögin Plush með Stone Temole Pilots pg Dolpins cry með Live. Sumum finnst þeir verða eiga plastma geðveikan bíl og einkaþotu en mér bara finnst að ég verði að eiga þessi lög!! Fyrir mér eru þessi lög bara eins og einkaþotan hans Björgólfs eða e-ð álíka. Okei...kannski ekki sambærilegt en samt...!

Ligg heima með flensu. Og við erum að tala um það að þetta er búið að vera svo slæmt að ég hef ekki getað talað!!! Og í mínu tilfelli er það mjög slæmt!! Eiginlega mjög mjög slæmt! En váá þegar ég fer að pæla í því þá váá hvað ég talaði mikið þegar við selpurnar vorum með hitting á krúsinni á lau. Og það fór langt yfir 7000 orðin sem hellisbúinn talaði um!! Shiturinn!!

Mæli bara með Creep by Radiohead

Thursday, August 31, 2006

Heeeyy!! Ég er ekki sátt akkúrat núna!! Fór eftir skóla að taka bensín á ESSO og skutlaði Ágústu Sverris í vinnuna (Nóatún). Eins og þið vitið er langt frá ESSO út í Nóatún kannski svona mínóta eða e-ð. Okei. Um leið og Ágústa fer út úr bílnum þá heyri ég auglýsingu sem er á þá leið að íslenska þjóðin hafi stutt vel við bakið á Magna og því ætlaði Olís að veita Magna afslátt heilar 13 krónur á milli 15 og19!! Af hverju sagði mér engin frá þessu??! Hvers vegna er ég alltaf svona seinheppin??! Þið þarna auglýsingafók sem eru ekki að vinna vinnuna ykkar þið fáið ekki knús!! Eða kannski...er þetta ekki bara mér að kenna?? Átti ég ekki bara að vera að hlusta á útvarpið. En hvað um það.

Hvort fagna karlmenn eða konur (strákar og stelpur) því meira að það séu komin mánaðamót?? Ég held að vér konur fögnum því meira. Af hverju?? Jú FÖT!!!! Já sumar konur )þar á meðal ég)ganga hreinlega fyrir því að fá FÖT og það að það sæeu komin mánaðamót þýðir hreinlega FÖT og það mikið af þeim! Jebb vér konur erum frekar skrýtnar. En þér karlmennn eruð yndislegir!! Án ykkar væri heimurinn ekkert skemmtilegur. Alla vega fyrir okkur sem erum ekki fyrir konur!!
Magni. Magnað. Magnaður. Magnificent. Magni. Magnaður Magni. Magnað!! Já magni vann kosninguna í rockstar! Og hvað á maður að segja?? ihh...jú kannski Magnificent Magni. Ég er bara orðlaus. Og það er svo Magnað (ekki planað) að þegar þjóðin þarf að standa saman þá stendur hún saman. Og það líka svona rosalega! En síðan þegar maður fer að pæla í lögunum sem han er búinnn að vera að taka. Þvílík lög!! Heroes by David Bowie Dolphins cry by Live Creep með Radiohead og Plush by Stone Temple Pilots!! Þetta eru svoldið svaðaleg lög. Sérstaklega þegar maður er búin að vera svona fokkt up andlega alla vikuna!

Knús!:)

Wednesday, August 30, 2006

Hero

I, I will be king
And you, you will be queen
Though nothing will drive them away
We can beat them, just for one day
We can be Heroes, just for one day

And you, you can be mean
And I, I'll drink all the time
'Cause we're lovers, and that is a fact
Yes we're lovers, and that is that

Though nothing, will keep us together
We could steal time, just for one day
We can be Heroes, for ever and ever
What d'you say?

I, I wish you could swim
Like the dolphins, like dolphins can swim
Though nothing, nothing will keep us together
We can beat them, for ever and ever
Oh we can be Heroes, just for one day

I, I will be king
And you, you will be queen
Though nothing will drive them away
We can be Heroes, just for one day
We can be us, just for one day

I, I can remember (I remember)
Standing, by the wall (by the wall)
And the guns, shot above our heads (over our heads)
And we kissed, as though nothing could fall (nothing could fall)
And the shame, was on the other side
Oh we can beat them, for ever and ever
Then we could be Heroes, just for one day

We can be Heroes
We can be Heroes
We can be Heroes
Just for one day
We can be Heroes

We're nothing, and nothing will help us
Maybe we're lying, then you better not stay
But we could be safer, just for one day

Oh-oh-oh-ohh, oh-oh-oh-ohh, just for one day

Þessu lagi er +eg búin að spila þetta lag í klessu núna í gær og í dag. Égsegi bara eins og Magni Þetta er eitt flottasta lag sem samið hefur verið!!

Saturday, August 26, 2006

Jahúúúúú!! Það er komin vírusvörn í tölvuna og ég segi það að það var svo sannarlega komin tími til!

Er fólk ekki ready í Búbbana?? Ég er alveg að fíla Búbbana að ég get varla beðið eftir því að sjá þá í kvöld. Á ekki annars að varðveita krakkann í sjálfum sér??

Litli bróðir tók upp á því á fimmtudaginn að þrífa elsku sæta yarisinn minn (sem ekki var vanþörf á hóst!) og allt í lagi með það en síðan förum við í skólann og ég tek ekki eftir neinu. Ég kem heim í gat um hálf 10 í gærmorgunn og þá segir gamli maðurinn (pabbi) að mikið sé nú bíllinn minn hreinn ég: hreinn?? gamli maðurinn: já Brynjar þreif hann í gærkvöldi ég: er það?? Pabbi: já farðu út og skoðaðu bra bílinn. Og ég með það sma út og þá já og þá fyrst tók ég eftir því að elsku litli yarisinn hafði verið þrifinn!! Og það var búið að benda mér á það!! Og ég er búin að skammast mín alveg þvílíkt. Sem er ekki skrýtið þ´vi maður á að taka eftir því þegar það er búið ða gera e-ð fallegt fyrir mann!! Hvað næst??Mun ég ekki taka eftir því þegar maðurinn minn biður mín?? Vá þvílík eiginkona (tilvonandi)!!

Lagið Hate me með Blue October er gjörsamlega geðveikt bara til að láta ykkur vita afþví. Annars er flottara að segja by Blue October heldur en með Blue October

Lag dagsins er: Allt fyrir þig by Baggalútur og Björgvin Halldórsson

Friday, August 25, 2006

Bylgjan er að halda upp á 20 ára afmælið sittnúna um helgina og eru allir að rifja upp e-ð skemmtilegt. Og það er eitt sem ég verð að minnast á það eru Harry og Heimir sem ég veit ekki hvort þið munið eftir en ég man eftir vel eftir þeim Ég vil barta að Harry og Heimir verði gefnir út á disk!! þetta var bara snilldin einSíðan voru þeir að leita að eurovision laginu í spaugstofunnivar líka algjör snilld!

Fyrsta skólavikan er búinog þetta erbara búið að vera alveg svona ágætt bara. Og það sem meira er það er ekki búið að vera neitt svaðalega erfitt að vakna. En bíðið bar þaðá eftir að verða erfitt! Bíðið bara!

Tuesday, August 22, 2006

Sumarið er búið og þar sem þeta sumar er búið þá er míns búin í blogg sumar fríi og farin að sinna elsku litla strumpinum mínum aftur eftir að hafa verið hálf vanræktur í allt sumar!

Fyrstu merki um það að sumarið sé búið (jah fyrir utan rigninguna!) er að skólinn sé farin í gang aftur og svona. Ég mun útskrifast vonandi jólin 07 vonandi og þetta er með fyrirvara um það aðég muni falla í ensku og stærðfræði og svona. En ég ætla bara að reyna að njóta þessara anna sem ég á eftir en ég efa það ekki að það verði gaman á næstu 2 önnum því míns er víst i ritráði!! Pant tala við Davíð Þ'or!!! Veit ekki út af hverju en mig langar bara að tala við hann!! Veit ekki með deit eða e-ð svoleiðis. Ég færi frekar úit með Chippendales gæjunum!! Okei okei slökkviliðsbúningar eru svoldið sexý!!

En kennara pakkin á þessari önn er eftirfarandi: Þórunn Elva í fél 303
e-r MM í stæ (veit ekkert hver það er!) vonandi Erlingur í sögu (var að skipta í dag) vonandi Jón Özur í íslensku (var að skipta í dag) Pála í ensku og hannes í þýsku. Tek það fram að ég er ekki búin að læra stundaskrána mína þannig að ég gæti berið að gleyma e-m. En ef svo er þá vona ég að það vitni ekki á einkununum mínum um jólin!!

Með hvaða fræga einstaklingi langar ykkur að fara út að borða með??

Saturday, July 29, 2006

Jæja gott fólk þá er bara 6 dagar í verslunarmannahelgina! Díses hvað þetta er langt orð! En það er ekki verið á leiðinni til Eyja þar sem gleðin verður ein við völd. Ég verð bara í faðmi fjölskyldunnar eins og svo oft áður um þessa helgi verslunarmann þar sem allir eru í fríi nema verslunarmenn. Sem er fáránlegt

Magnús elsku dúllan mín til hamingju með það að vera orðin 20!! Ha þú náðir mér!!

Lag dagsins: Vertu hjá mér þessa nótt með Í svörtum fötum!

Wednesday, July 26, 2006

Sko ef ég væri foreldri þá væri ég með baranaverndanefnd á bakinu fyrir að hafa ekki sinnt barninu mínu í mánuð. Þannig líður mér akkúrat núna gagnvart elsku litla djammstrumpinum mínum!! Það vantar vírus vörn í tölvuna heima og það verður senilega ekki vírus vörn þar næstu vikuna eða e-ð og svo er míns búin að fara hringinn koma við hjá Laufeyjunni í Atlavík fór með henni á furðu fataball á Egilsstöðum þar sem þótti vera fínt að klæðast ógeðslega forljótum krumpugöllum!! Ég veit það ekki hvort þetta sé málið?? Krumpugallar voru inn hérna in the 80´s þar sem aðal pólitískudeilurnar voru um það hvort fólk fílaði Wham eða Duran Duran. George Mihael eða Simon Lebonn!! Svona eftir á að hyggja þá er George Michael betri singier en Simon Lebonn! En það var fínt +a Egilsstöðum svoldið öðruvísi en á Pakkh+úsinu þó svo að ég hafi verið all svaðalega slöpp ío djamminu allt þetta sumar. Hvað er að mér?? Ég er kona og ég græt!

Alla vega er magni íslendingur ársins (sá hann að vísu ekki í nótt en thank god fyrir endursýningar) sem er að gera svaðalega hluti í rokkstar supernova og mér persónulega fanst hann taka stone temple pilots lagið Plush alveg geðveikislega í síðustu viku!!Enda er þetta alveg svaðalega flott lag!!

Lag dagsinsÞPlush með Stone Templ Pilots

Wednesday, June 21, 2006

Ég hef staðið við gluggann,
heyrt hann tala um komandi harðæri, nístandi él.
Aldrei fyrr séð hann svo hryggan stara.
Þegar þú kvaddir hvað ég skyldi hann vel.

Sumarið er farið, það fraus í hylnum.
Eins og hvítt lín kom snjórinn í nótt.
Þrestirnir dansa á ísuðum línum
en hér er allt stillt og rótt.

Eldurinn í arninum með seiðandi skugga,
spyr mig: Hvar er hún í nótt
sem var vön að halda um höfuð þitt og rugga
þér blítt þar til allt var hljótt?
Og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki svarað því.

Ég hef staðið við gluggann,
heyrt hann tala, spurt hef ég hann:
Sér hann þig þar sem þú ferð?
Þakinn rósum, kaldur - vill ekki svara
hvort ást til mín í hjartanu þú berð.

Ég hef staðið við gluggann,
séð hann stara á norðanvindinn,
út í fjúkinu leika sér.
Stundum heyri ég hlátur í gólffjölum marra,
hjartað tekur en það er ekkert hér.

Eldurinn í arninum

Geðveikur texti! Geðveikur flutningur á laginu á tónleikunum þar sem allur sársaukinn sem kemur fram! Svona á að gera þetta!!

Monday, June 19, 2006

Áfram stelpur
Lag: Gunnar Edander
Íslenskur t exti: Dagný Kristjánsdóttir og Kristján Jónsson


Í augsýn er nú frelsi,
og fyrr það mátti vera,
ný fylkja konur liði
og frelsismerki bera.
Stundin er runnin upp.
Tökumst allar hönd í hönd
og höldum fast á málum
þó ýmsir vilji aftur á bak
en aðrir standa í stað,
tökum við aldrei undir það.
En þori ég vil ég get ég?
Já ég þori, get og vil.
En þori ég vil ég get ég?
Já ég þori get og vil.

Og seinna börnin segja:
sko mömmu, hún hreinsaði til.
Já seinna börnin segja:
þetta er einmitt sú veröld sem ég vil.
(Viðlag)

Áfram stelpur standa á fætur
slítum allar gamlar rætur
þúsund ára kvennakúgunar.
Ef einstaklingurinn er virkur
verður fjöldinn okkar styrkur
og við gerum breytingar.
Atkvæði eigum við í hrönnum
komum pólitíkinni í lag
sköpum jafnrétti og bræðralag.

Áfram stelpur, hér er höndin
hnýtum saman vinaböndin
verum ekki deigar dansinn í.
Byggjum nýjan heim með höndum
hraustra kvenna í öllum löndum
látum enga linku vera í því.
Börnin eignast alla okkar reynslu,
sýnum með eigin einingu,
aflið í fjöldasamstöðu.

Stelpur horfið ögn til baka
á allt sem hefur konur þjakað
stelpur horfið bálreiðar um öxl.
Ef baráttu að baki áttu
berðu höfuð hátt og láttu
efann hverfa 'unnist hefur margt.
Þó er mörgu ekki svarað enn:
því ekki er jafnréttið mikið í raun,
hvenær verða allir menn taldir menn
með sömu störf og líka sömu laun?

Til hamingju með daginn konur! Er það ekki?? Samt sem áður verð ég að vera totally honest og segja að þetta lag er alveg ofboðslega vont!! Eins og ég sagði totally honest!!

Og:
hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Ágústa Sverris
Hún á afmæli í dag!
Til hamngju með daginn stelpa! Geng í bleiku bara þér til heiðurzzz! Og mundu ef þú tekur upp á því að gifta þig þá máttu ekki drekka kampavín í brúðkaupinu þínu!! Spes

Lag dagsins: Talað við Gluggan með Bubba (ohh hvað það var geðveit á tónleikunum!!)

Sunday, June 18, 2006

Vitið þið að ég er hálf slegin! Fór og keupti svona HM borgara í Nóatúni áðanog allt í lagi með það. Komin hálf leikur (þá voru frakkar yfir!) og komin tími til að grilla sveitan burger. En svo kom það í ljós að Hm borgaranir voru svona líka illa myglaðir!! Og lyktin var ekki skemmtileg!! Djöfulsins ógeð!!En þetta er í æagi við fórum og fengum nýja borgara sem eru ekki myglaðir en þetta var ógeðslegt! veit ekki hvort ég eigi að mæla með HM borgurum en ég mæli hiklaust með Þorsteini J! Grrr

Heyrðu allir í bleiku á morgunn! Ágústa Sverris á afmæli!! Og pælið í því að uppáhalds liturinn hennar er bleikur! Sniðugt

Lag dagsins Svört sól með Sóldögg

Grilllyktin svífur yfir öllu! Og jú allir að fara að horfa á Þorstein J í 4 4 2 á sýn núna!

Thursday, June 15, 2006

Frekar löt e-ð og á mörkunum að ég nenni að blogga en ég verð að koma því á framfæri að 17 júní prógrammið hér í Hnakkville er vægast sagt slappt! Hvað er í gangi??Hefur þettafólk engan metnað?? Hvað með að halda ærlega upp á daginn með e-u geðveiku. En nei höfum bara e-ð frekar ömulegt svo við tryggjum nú að allir verði örugglega heima að horfa á fótbolta!! Slakt.

Bara það eitt að Eiður Smári hafi skrifað undir hjá barcelona tryggir honum titilinn íþróttamaður ársins 206 þó svo að hann spili ekkert! Samt örugglega ekkert leiðinlegt að fara í sturtu með Ronaldiniho!! Það er senilega alls ekki leiðinlegt a fara +i sturtu með brasilíska landsliðinu!!

Komin með ógeð á rigningu!! Fer nett í skapið á mér!!

Tuesday, June 13, 2006

Afsakið letina en það er bara þannig að þegar þetta yndislega sumrar gengur í garð er maður ekki mikið að hugsa um það að blogga heldur ume-ð allt annað eins og fótbolta og öll hönkin sem hlaupa um í Þýskalandi með bolta á undan sér eru að gera kynþurfi húsmæður alveg crazy! Hmm þetta með að vera kynþurfi passaði bara svo vel inn í!!

Já svo er ég að vinna með bassaleikaranum úr Á móti sól og ef sá maður er ekki snillingur þá veit ég ekki hvað! Hann er eitt af þessum eintökum af karlkyninu sem er algjörlega æðislegur. Kemst alveg í hóp með Magnúsi og Heimi!! Ef allir væru eins og þeir þá væru engin vandamál. +Ég er samt ekki að segja það að vér konur séum engin vandamál því vér erum alveg hellings vandamál! Við erum svo grimmar og meiðum bara á annan hátt því orð geta meitt stundum meira en allt annað¨!

Held að ég sé að fara að tapa HM veðmálinu í vinnuni alveg big time!! Og er sennilega að fara að skulda bjór í fyrsta sinn á ævinni. Ég er samt að spá í að vera smá kvikindi (talandi um það hvað konur eru grimmar) og velja e-n ógeðslega vondan bjór og mér vantar hugmyndir. Faxe?? Common æég hef ekkert vit á þessu þar sem ég er ekki vön því að drekka áfengi þannig að þið verðið að gefa mér e-r hint. Svo er annar möguleiki. Að ég vinni allann helvítis bjórinn og hvað þá?? Tek það fram aðég tel það ekki líklegt!! hvaða vit hef ég á fótbolta??!

Tuesday, June 06, 2006

06 06 06 er runninn upp bjartur og fagur (það er ekki e-r haevy sól úti sko!) en í hugum okkar Bubba aðdáenda er mikil sól í hugum okkar. 6 júni er merkisdagur í íslenskri tónlistarsögu vegna þess að þann dag fæddist afkastamesti tónlistarmaður íslandssögunnar sjálfur Bubbi Morthens fyrir akkúrat 50 árum. Og æeg trúi því að 6 júní 2006 (06 06 06) verði merkilegur vegna þess að e-r stærstu tónleikar íslenskar tónlistarsögu verða í kvöld þegar Bubbi heldur upp á 50 ára afmælið-og allt í benni stöð 2!!! Þvílík snilld!! Vá hvað ég hlakka til!! Ég hlakka svo til að ég er að spá í að mætra í vinnuna í míní pilsi á pinna hælum og málup eins og Mikki mús!!! Nei bara smá flipp í gangi!

Listi yfir 10 lög sem eiga sennilega eftir að heyrast í Höllinni í kvöld!:

Afgan
Hirósima
Blindsker
Fjöllin hafa vakað
Mýrdalssandur
Móðir
Kyrlátt kvöld við fjörðinn
Rómeó og Júlía
Leyndarmál frægðarinnar
Grafir og bein

Lag dagsin: afmælissöngurinn konginum til heiðurs og stúlkansem starir á hafið með Bubba sjálfum!

Innilega til hamingju með daginn Bubbi njóttu hans í botn!!

Ohh ég hlakka svo til!!!

Saturday, June 03, 2006

Jæja gott fólk it's bloggtime!!

En ég veit ekki hversu mikið ég get bloggað þó svo að það hafi alveg hellingur gerst í mínu lífi og það allt vegna ritstíflu!! Pæliði í því hvað það er ekki cool að vera með ritstíflu en alltí lagi!!

Vinna vinna sópa týna rusl og svo of cource skoða strákana! Hvað annað?? Ef maður notar ekki tækifærið þegar karlmenn á vinnustaðnum er í yfirgnæfandi þá er e-ð stórkostæegt að!! En þetta er mikið til þannig að þeir eru of ungir of gamlir (og ekkert sérlega aðlaðandi!!) eða giftir!! Er ekki hægt að gera æí því að þeir verði bara svona 20-25 á lausu og aðlaðandi?? Og líka barnlausir bara til að hefja sambandið með alveg hreint borð?? Nei bara smá svona pæling. Síðan er e-r svaðaleg grillveisla í e-i timburskemmu í bænum og þá fær að sjá svona megnið af gæjunum sem vinna í BYKO og vonandi verður það ekkert slor!

Það fæddist alveg brilljant hugmynd í vinnunni í gær! Ég er alveg svaðalega skotin í henni. Og hugmyndin er sú að ég fari kannski með Ómari (vinnufélaga!) á þjóðhátíð!!!!!!! How sexý is that!!! Þá yrði farið á sunnudeginu sem mér eldri og reyndari menn í þjóðhátíðarfræðunum segja sé lang skemmtilegasti dagurinn!! Og ef það gerist að ég færi á þjóðhátíð þá rætist minn æðsti draumur síðan ég var 10 ára!! Þæliði í því þegar ég var 10 ára þá var minn æðsti draumur að fara á þjóðhátíð!! Og sá draumur hefur verið sá stærsti alveg síðan þá! Tek það fram að ég var ekki eðlilegur krakki!!!!

Bubbu live á stöð 2 06 06 06!! Das Kapital EGÓ Utangarðsmenn GCD MX21 5000 manns í höllinni geðveikt stemning!! Ég hefði heldur viljað vera á staðnum því a' stemningin verður geðveik!!

Lag dagsins: Grafir og bein með Bubba!!

Tuesday, May 30, 2006

Jæja. Hvað ætlar fólki að gera að kvöldi þess merka dag 06 06 06?? Alla vega er stöð 2 algjörlega búin að rástafa því kvöldi fyrir mig því að stöð 2 (snillingar!) ætla að sýna beint frá fimmtugsafmæli Bubba sem verður í Höllinni þann 06 06 06!! Ef þetta er ekki snilld þá veit ég ekki hvað er snilld!! Eins og ég var búin ð gráta mig í svefn yfir þvi að fá ekki að fara á þessa svaðalegu tónleika þá er ég alveg ofboðslega glöð þegar ég heyrði að consertinn yrði á stöð 2 og það live. Þú þarna sem fékkst þetta í gegn þér er boðið í 30 afmælið mitt!!

Hvernig í andskotanum fór ég að þ´viað snúa mig svona skelfilega á vinstri fætinum?? Ég bara spyr??

Thursday, May 25, 2006

FYRIRGEFÐU

Hei! Veistu, að þú ert fangi fortíðar
og innikróuð heiftin býr í dökku augunum.
Í stríði er friðurinn svo fjarlægur.
Brenndu ekki brýrnar sem að baki eru.
Í minningunni sárin beru
grassera í hefndarþorstanum.

Já, fyrirgefðu þó að svíði.
Fyrirgefðu af heilum hug,
og lífið andar ef þú brýtur þetta blað.
Já, fyrirgefðu gjörðir gráar.
Fyrirgefðu orðin sár
því hefndin verður varla sætari en það.

Kalt hjarta, já, slepptu af því takinu.
Í birtunni er stóri magnarinn að fylgjast með.
Þeir hverfa, senuþjófar sannleikans.
Því ef við viljum elska, verðum við að læra að fyrirgefa og fórnir færa.
Taktu af skarið, settu fram þitt peð.

Þetta er textinn við nýja lagið hans Gumma Jóns úr sálinni og heitir lagið einfaldlega Fyrirgefðu. Og nú spyr ég er hægt að fyrirgefa allt?? Smá svona pæling.

Horfði á Ungfrú ísland í gær. Ekki beint gaman að horfa á 20 stelpur að keppa í því hver er sætust. En það var eitt sem bjargaði þessu og ég veit að það er alls ekki fallegt að hlægja af óförum annara en ég viðurkenni það alveg að ég sprakk úr hlátri þegar Unnur Birna datt á sviðinu!!!! Æ æ hvað þetta var neyðarlegt!!Pæliði í því ef þetta hefði verið ef hún hefði verið að krína miss world!! Veit ekki hversu happu þessi Julia eigandi keppninar hefði verið þá!! En vonum að þetta gerist ekki egar stelpan krínir nýja miss world.

Wednesday, May 24, 2006

Góða kvöldið og gleðilegt sumar!! Eða er sumarið komið?? Who knows!! Eða verður 10 stiga frost um hvítasunnuna þegar ég var að spá í að fara í útilegu??

Kosningarnar á lau og vá hvað ég hlakka til þegar þær verða búnar!!! Allur ruslpósturinn sem fylgir þessu!! Hvað í andskotanum kostar þetta?? Er itta bara ég eða er engin að pæla í hvað þetta kostar??Þetta eru alveg humongus upphæðir!! Og allir að senda manni svona póatkort og biðja mann um að kjósa sig grenjandi og svona!! Piiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiirrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr!! Á sunnudaginn verður þetta búið!! yes!!

Ég er að missa mig yfir næýja laginu frá strákunum í Á móti sól sem heitir Hvert sem ég fer!! Þetta er bara ofsalega fallegt lag og bar gott band. Alla veg var ég mjög sátt við þá á Pakkhúsinu síðasta fimmtudag. Og Magni gegtur tekið Dolly Parton!! Kom mér alla vega skemtilega á óvart. Enda er Magni alevg fanta singer. Og Beggi í Sóldögg og matti í Pöpunum. Sem er alls ekki slæmur singer!!

Var í bænum í gær. Gera hvað?? Nú auðvitað að eyða peningum! Hvað annað?? Var að kaupa mér fataskápog ný gleraugu. Gyllt og allt. Verð alveg svaðaleg gella!!

Lag dagsins: Hvar sem ég er með Á móti sól!!

Saturday, May 20, 2006

Til hamingju Finnland!! Geðveeeeikt!! Finnar unnu eurovision áðan með þessum krúttlegu skrímslun sínum og laginu Hard rock halleluja sem er virkilega cool lag!! Þannig að það er ekki leiðinlegt að vera á götum Helsingi í nótt þar sem þeirra Páll Óskar er sennilega að spila finnska lagið alveg eins og mother fucker. En samt sem áður fær enginn ógeð af laginu þar sem þeir voru að vinna eurovision fyrir nokkrum klukkutímum og þetta verður sungið á öllum festivölum sem finnar verða á ísumar. Og svo verður ekki leiðinelgt í Helsingi að ári!!!!

Lag dagsins er auðvitað hard Rock hallelúja

Og svi var Simmi að standa sig eins og hetja. Hann var að missa sig yfir gellunni frá úkraínu en hann bjargaði alveg stigagjöfinni!! hann aftur í Helsingi að ári!!

Monday, May 15, 2006

Jibbí ég er b+uin að átta mig á því að ég á ekki ipod heldur mp3 og það tók sinn tíma að fata það!! Alla vega nokkrar vikur!!

En ég fullyrði það að í fyrsta skipti í sögu timburskemmu BYKO hefur starfsmaður brotið nögl og það gerði ég í dag. Svo snilldarlega! Eg er ekki að kaup aþað að strákarnir séu mikið með e-r svaðalegar gervineglur. Nema þeir kannski klæði sig í kvennmannsföt þegar enginn veit?? Who knows En það er ekki gott a brjóta nögl og vera svo með hana enþa hangandi á pottanum á sér!! það er ekki gott. En beauty is pain!

Lag dagsins: heaven með Jónsa
(eruði búin að fatta munstrið með lag dagsins??!!)

Sunday, May 14, 2006

Er Fólk ekki komið í smá svona eurovision stöð þó svo að sumum finnist Sylvía vera að skíta big time upp á bak?? Alla vega skeit hún upp a bak þegar hún mætti ekki á essó daginn áður en hún fór út. Sem var svoldið mikill skandal!! Enn ég var að kaupa mér geisladisk í gær (sem er svo sem ekkert nýtt!) sem heitir Til hamingju Ísland -í 20 ár í eurovison. Þetta er tvöfaldur sem hefur að geyma öll íslensku eurovision lögin á tveinur diskum. Sem er svoldið spes. Því á disk 2 eru öll gömlu góðu lögin eins og gleðibankinn Nína og Nætur öll á ensku!! +Eg meina Nína á ensku er ekki að virka fyri minn smekk. Hvað þá Gleðibankinn??! Nei takk. En þessi cd er möst fyrir alla í eurovision partýið um næstu helgi!! Og svo auðvitað er skyldumæting á Pakkhúsið á fimmtudaginn þar sem ÁMS drengirnir ætla að spila berir að ofan (hopefully!!) og þá verður Sylvía kannski komin áfram. Ég hef ekkienþá náð sambandi við Þórhall miðil um það hvernig þett fer allt saman!!

það kom víst eurovision spyrlinum á óvart hvað það eru margir hommar saman komnir í Aþenu þessa dagana. En hanner samt fyndinn!!

Þá er komin tími á lag dagsins þó svo að þaðer komið skuggalega nálægt miðnætti: Minn hinsti dans með Páli Óskari!

Saturday, May 13, 2006

Jæja Gott Fólk! Ég veit svo sem ekki hvað ég á að segja annað en að ég er búin í prófum og fæ að vita það á miðvikudaginnhvort ég hafi ná öllu fallið í öllu náð e-u eða fallið í e-u eða...held að það séu ekki fleiri möguleikar í stöðunni

Byrjuð að vinna og það er fínt. Allt skárra en að ver án atvinnu. Láttu mig þekkkja það! En alla vega þá hef ég eytt 10 klukkustundum af þessari viku í það að tína rusl við BYKO og þetta er þaðsem ég mun gera íallt sumar. Þannig spurningin er hvað ég mun gefa þessu marga daga þar til að ég fæ ógeð af rusli!!Neinei þetta er fínt!! En samt kemur manni það alltaf á óvart hvar maður getur fengið harðsperrur því í sm, stendur er ég með harðsperrur í bakinu (sem er alveg nýtt fyrir mér hélt að það væri ekki hægt!) lærunum og kálfunum. En sennilega asnalegasti staður sém ég hef fengið harðsperrur á er nárinn!! Var á hestbaki þegar ég var svona 15 (það eru að verða komin 5 ár síðan!!)og var á hestbaki í e-a nokkra tíma og var allt voða gaman...þar til daginn eftir!! Einkennilegt hvað það verður alltaf gaman þar til daginn eftir. En alla vega var ég með harðsperrur frá helvíti daginn eftir enda eru harðsperrur svona almennt frá helvíti!!!

Lag dagsins: Nei eða Já með' stjórninni!!

Monday, May 08, 2006

En dagurinn í dag er búin að vera algjör snilld veðurfarslega séð. En aftur á móti er það ekki snilld að vera með það á bakvið eyrun að maður á vera að læra óreglulegar sagnir á þýsku!! 20° hiti og þýskar sagnir fara alls ekki saman!! Hvernig datt skólastjórnendum það að setja þýsku prófið á 11 maí?? Ég meina okei þeir eru kannski ekki svona veðurfræðingar eða e-ð en hey það er bara bannað að hafa þýsku próf eftir 6 maí!!!

Shit hvað ég er komin á þörfina...öhh djammþörfina á ég við! (slæmt ef menn eru að halda e-ð annað!) Þannig að ég býst fastlega við að míns verði bara í ruglinu á Pakkhúsinu (once again) á fös eða lau ekki alveg ákveðið en markmiðið er að reyna að komast inn á suðurland.net. þegar maður er komin þangað þá fyrst er maður celeb!!

Byrja að vinna á fimmtudaginn og ég heimta að allir karlkynsvinnufélagar mínir (fyrir utan pabba og litla bróðir!!) verði berir að ofan!! Pælið í því pabbi er yfirmaður minn!!

Lag dagsins er tvímælalaust paradise by the dashboard light með Pöpunum!!

Friday, May 05, 2006

Ég er í geðveiku Bubba stuði enda er bara mánuður í að hann verður 50 ára. Úff! Og maðurinn hefur bara aldrei veri svalari!! Úff!! Vona að ég verði svona úbber dúbber cool þegar ég verð 50!!!

Bubba helgi á Nýbylgjunni alla helgina. Eini gallinn að ég er ekki með diggitalið þannig að ég verð bara tölvu nörd og Bubba fan frá helvíti alla helgina!!

Komin með 35 lög inn á mp3 spilarann sem komst í lag í dag á e-n óskiljanlegan hátt og þar af eru 34 Bubba lög!!!!

lag dagsins Agnes og Friðrik með Bubba!!!
Jæja...!

Reykjavík Rocks er helgina 29 júní-1 júlí og svo er e-r sóarolíu musick festival 2-4 júlí þar sem meðal annars Supergrass spilar!! Reykjavík er svo inn þessa dagana að það er ekki fyndið!!!

Síðan er Bubbi að fara að halda svaðalega tónleika o6 o6 o6 eða á afmælisdaginn sinn en þar munu Egó Utangarðsmenn Das Kapital MX21 og GCD spila. Svaðalegt?? Frekiar!!!

Sunday, April 30, 2006

67 lög komin inn á mp3-inn
Jæja gott fólk þá er ammæli nr 2 búið og ekki seinna vænna en að fara að telja upp allt þaðsem mér tvítugri manneskjunni var gefið. En here it is (þar er að segja ef ég man það hvað ég fékk í ammælisgjöf!)

mp3
lopapeysu
hálsmen og eyrnalokka
úr
Paba á balli (eða geisladisk sem sagt. Þó það hefðiekki verið leiðinlegt að hafa bara papa ball bara úti í garði!!)
Wedding crashers (dvd)
Svona dót til að setja í baðið svon dekur e-ð
kerti
armband
bol
Svona nú HELD ég að þetta sé allt komið. Ef ekki þá bara bæti ég því bara inn á listann! Hvort er þetta aldurinn eða gúbbífiskaminnið?? Vonandi ekki aldurinn!!

gamla settið gáfu mér mp3 (sem kom mér svoldið á óvart) og ég sit hérna fyrir framan tölvina núna með mp3-inn og er að hlusta á Jamaraqua (Magnús HJÁLP!!!) og er búin að vera að henda öllu draslinu sem ég á í tölvunni nn á hannog er núna komin með 44 lög af svona...hvað haldið að ég viti hvað mp3-inn minn séu mörg mega bæt!! Eða var það gígabæt?? skiptir svo sem ekki öllu máli!

lag dagsins er Strákarnir á borginni með Pöpunum!!!

Auka popppunktur í kvöld á Skjá einum þar sem þemað verður Manchester en þetta er alltí tilefni að Manchester tónleikunum um næstu helgi!!

Thursday, April 27, 2006

Lag dagsins er að sjálfsögðu afmælissöngurinn oglagið Crazy með Gnarls Barkley og það lag er bara svalt!!!!!!!!!!!

Tuesday, April 25, 2006

Shitturinn!! Ég er að gera verkefni um menningarfyrirbærið fótbolta í sögu flutningur á fimmtudaginn (afmælisdaginn!)ég er með miklum fótboltaáhugamanni um fótbolta í hóp og við vitum ekki hvað við eigum að gera. Ég ætlaði að taka samskipti kynjanna og fótbolta og e-a fótboltasöngva en bara þetta er ekki að ganga upp!!! Og fótboltaáhugamaðurinn veit ekki hvað hann á að taka!!! Það eru tveir dagar í itta og ég veit ekki hvernig þetta endar!! Pæliði í því að vera í hóp með gæja sem er að æfa með Björgólfi Takefúsa og við erum bæði með ritstíflu dauðans!!! Þetta er ekki sniðugt!!! Var að skila smásögu í ísl skapandi skrif og það er svona ritstíflu e-ð. Þetta er óþolandi!! ARG

Muniði þegar þið áttuð ammæli þegar þið voruð lítil og alltaf þegar þið vöknuðuð á ammælisdaginn þá voru alltaf það fyrsta sem þíð fenguð var pakki. Svo varð maður gelgja og þá hætti maður að fá pakka á morgnan og kannski var þetta algjörlega dagur án ammælisgjafa!! Skrýtið. Mig langar að fá svona nett nostalgíu kast á fimm af því að ég er nú að verða 20 eða að detta á þrítugsaldurinn og fá pakka þegar ég vakna! Sennilega ekki ipod frá pabba það er eignlega alveg bókað!!

Jet black Joe diskurinn er að koma á fös og heitir hann full circle! Það er forglustun núna á hann inn á tónlist,is. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst umm hann enþá. Ég er e-ð mikið að reyna að hugsa um fótbolta seme r eins og ég sagði áðan ekki að ganga upp!!!

Lag dagsins er með Jet black Joe og heitir Full circle!!!!

Sunday, April 23, 2006

Hrikalegur Kompás

Horfði á hinn magnaða þátt Kompás áðan og ég get eiginlega sagt það að ég var með algjöran viðbjóð! Það var verið að fjalla um læknadópog talað við par sem er háð læknadópinu Contalgíni. það var talað við þau og aðra konu sem og meðal annars sýnt þegar hún var að sprauta sig og ég hef aldrei á ævinni verið að horfa á sjónvarps þátt og verið bara með hroll!! Þetta var bara ískaldur raunveruleikinn það er ekki hægt að feika svona dæmi! Þetta var hrikalegt!! Og ég segi það en og aftur að Jóhannes kr Kristjánsson ritstjóri Kompáss er snillingur! Hann er að gera ótrúlega hluti sem aldrei hafa áður verið gerðir í sjónvarpi á Íslandi áður. Og það er ekki verið að fegra neitt íslensku þjóðinni sem hefur verið ansi duglegt í gegnum tíðina að afneita ýmsum hlutum sem eru í kringum okkur eru sýndir hlutir sem eru raunverulegir og ekki er hægt að feika! Það var hræðilegt að horfa á þetta! Hann var svo einlegur og sagði að eini tilgangur hans með því að koma svona fram í sjónvarpinu var að reyna að koma í veg fyrir að unglingar myndu lenda í þessu sma og þau. Í þessu helvíti sem þau eru föst í. Maður vorkenndi þeim. Hún móðir mín sagði að hún væri heppinn að hennar börn væru ekki í svona rugli því þessi dóp heimur er svo viðbjóðslegur og kannski viðbjóðslegri en maður heldur. Æ-i þessi orð eru frekar fátækleg e-ð!!

Þessi færsla er hluti af lokaverkefninu í fjö 213!!

p.s. held að foreldrar mínir hafi farið í smá svona afmælisgjafaleiðangur í Borg óttabs í dag. Alla vega veit ég ekki´+i hvaða búðir þau fóru og ég þori ekki að spyrja. Veit ekki hvort pabbi sé maðuirnn sem gefur með ipod. Hann bullar e-ð um að ipo der stórhættulegur!! Kjaftæði. Ipod er bara stórsniðugur

Lag dagsins loosing every day með Dikta!! Bara flott
Gleðilegt sumar og allt það þó að maður geti ekki legið hálf nakinn með kokteil í pottinum-enþá!

Klukkan er ekki orðin hálf níu á sunnudagssmorgni og ég sit fyrir framan tölvunna og er að blogga og nei ég á ekki í neinum vandræðum með tölvunotkun mína heldurn er ég að fara að skrifa 400-500 orða smásögu með öllu tilheyrandi. Og nei ég er ekki að semja fyrir sjálfa mig þetta er fyrir skólann og þannig musst!!Ég er alveg tóm kannski ekki skrýtið þar sem klukkan er BARA að verða hálf níu á sunnudagsmorgni.

En já partýið (ammælið) var með kjúlla síder og öllu tilheyrandi-nema áfengi-og svo jú alveg glás af skemmtilgu fólki. Við vorum bara sjö þannig að þetta var fámennt en alveg afskaplega góðmennt! En þetta vara bara 1 í amæli því ium næstu helgi verða amma og afi ammaog afi...sem sagt kökur og læti! Hefði samt alveg verið til í að halda það í dag en maður verður að vera komin á þrítugsaldurinn sem er ekki fyrr en á fimmtudaginn svo ég taki það skýrt fram!!

Wednesday, April 19, 2006

Í nótt

Texti: Valgarður Guðjónsson, Steinþór Stefánsson

Í nótt.
Ég ætla að ríða að þér í nótt.
Útilokum allt og ríðum burt í nótt.

Í kvöld.
Ég man ég hitti þig á balli
og brjóstin þín störðu á mig pínulítið rangeygð.

Og ég.
Ég ætla að dúndra þér í hvelli.
En greyið mitt þeigiðu.
Mér leiðist svona speki.

Hey þú.
Æ, farðu að koma þér í burtu.
Þú ert ömurleg svona útjöskuð.
Mér fer að verða flökurt.


Í nótt.
Ég var að ríða þér í nótt.
Við skildum allt eftir og við riðum burt í nótt

Þetta lag heyrðist í mydinnni Rokk í Reyjkavík og er með fyrstu pönk bandinu á Íslandi sen voru Fræbbblanir (jamm með 3 b-um!) og ef mig mis mynnir ekki þá las ég það í biblíunni (eru ekki allir í stuði eftir gr Gunna!!) að í fyrsta skipti sem þeir performeruðu var í Kópavogsbíói!!!

Saturday, April 15, 2006

Þessi færsla er ekki hluti af lokaverkefninu í fjö 213-enda á 101 Reykjavík fátt sameiginlegt með fjö 213!!

En allt í lagi!! Ég er samt búin að finna minn uppáhalds dyravörð og það er dyravörðurinn á Dubliners! Mér finnst itta svo spes. Þegar við (ég Laufey Beta og Arnór) komun að Dubliners í gær og ætluðum að kíkja þangað inn þá var okkur tjáð það að það væri 23 ára aldurstakmark inn á Dubliners en samt hefði verið allt í lagi að fara inn á staðinn ef við hefðum verið orðin 20 (Arnór að verða 22!)!! Halló!! Annað hvort er 23 ára aldurstakmark inn á staðinn eða 20 ekki 23 ára aldurtakmark en ef þú ert orðinn 20 þá kemdtu inn. Annað hvort allt eða ekkert!! Svo einfalt er það. Við reyndar fórum ekki neins staðar inn en reyndum að fara inn á celtic cross 11 Grand Rokk og Glaumbar! Við löbbuðum fram hjá Gauknum á leiðinni á Glaumbar og sáum þar hvar e-r strákur reyndi að hrækja á engilinn Pál Rósinkranz (það er e-ð svo englalegt við hann) sem er bara skandall enda er Palli bara bestasti singerinn á klakanum!! En þetta var samt voða voða gaman! Og nú á ég mér þann einn draum æðsta á komast á FEITT sálarball á Nasa!!!!

Party hjá kjellingunni (mér!) um næstu helgi þar sem ég ætla að fagna ásamt góðum vinum því að það eru 20 ár síðan ég kom í þennan heim sem fyrir 20 árum var fullur af fólki sem var með sítt að aftan og hlustaði annað hvort á Duran Durab eða Wham! en í dag er heimurinn furllur af fólki sem...æ-i það er ekki hægt að skilgreina það sem er í gangi bæði í tónlist og tísku eins og var þá það er bara allt e-n veginn allt í gangi rapp teckno (úts úts úts!) rokk og svona lið eins og ég sem dýrkum bönd eins og Coldplay út að lífinu!

En á morgunn þá mun ég sennilega týna mér í páskeggjum og súkkulaði og svona...geeeeðveikt!!!!

Friday, April 14, 2006

Föstudagurinn laaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaangi og ég er hjá Laufeyju og we are going out and túttind e-ð! Ég nenni ekki að hanga heima og grenja þannig að það er apurning hvort maður endi á jamminu í borg óttans en ahh ég gleymdi kúbeininu heima!

Spá í að halda upp á það að ég sé að verða 20 jahre alt (ohh svo góð í þýsku!!) og er að spá í að halda alveg svaðalegt partý með strippara og öllu...er það ekki?? Og hann mun líta alveg eins út og sá sem strippaði í gæsapartýinu hjá Pheaby í friends (ekki rétt skrífað en allt í lagi)

Thursday, April 13, 2006

Uppáhaldsmálshátturinn minn er Sjaldan fellur Bubbi langt frá Eiríki!!! Snilld!!

Rúv er að fara að sýna Gargandi snilld núna á 2 í páskum sem hefur fengið að ég held bara ágætis dóma!! Annars mæli ég með því að fólk stilli inn á Rás 2 kl 16:10 á pásadag með páskaeggið og gos í glasi og fólk að ná sér eftir ÁMS (vá hvað ég hlakka til!!) og hlusti á upptöku á War of the worlds með sinfóníunni og fleirum!! Vá hvað ég ætla að hlusta!!!

Konan hans Snorra idol er frænka mín og það náskyld mér (þekki hana ekki neitt!). Já mamma var að segja mér frá þessu áðan. Pæliði í því!!! Frænka min sefur hjá idol stjörnu!! Pæliði í því!!! Hún var á forsíðunni á dv fyrir mörgum árum þar sem að hún var 18 ára 3 barna móðir. Það er svoldið mikið en allt í lagi. Eg get ekki séð mig fyrir mér 18 ára 3 barna móður en okei!!

Wednesday, April 12, 2006

"Litla sæta Ísland"

Það sem gerist annars staðar á ekki að geta gerst á Íslandi þvi við erum svo sæt og góð! Heróín er komið til landsins e-ð sem ekki hefur verið á götum á Íslandi áður hóruhús er rekið í Borg óttans mannrán eru framin oftar en áður menn fara með kúbein á djammið og önnur vopn bara til að verja sig 17% barna verða fyrir kynferðislegu ofbeldi og það á Íslandi heimilisofbeldi verður grófara menn eru að setja e-ð ógeð útí drykki hjá stelpum dópið á víst að vera út um allt...já þetta eru staðreyndir um "litla sæta Ísland"-hversu lítið og saklaust er land þar sem maður þorir varla á djammið því maður er hræddur um að e-r ráðist á mann með kúbeini! HALLÓ með kúbeini!! Þetta er e-ð sem ég næ ekki að þurfa að taka með sér hnífa baseball kylfur kúbein og bara af því að þú ætlar að berja mann og annann!!! Ég vanalega set bara sálina á og make-upið og þá er það komið!! Vá hvað maður getur orðið reiður þegar maður setur þetta upp svona og sér þetta á þennan hátt. Og svo dómskerfið...er skrítið að maður treystir ekki dómskerfinu þegar þú færð mun lengri dóm fyrir að stela frá ríkinu en að misnota og skemma lítið barn?? þegar þú getur bara rölt niður og skorið mann á háls og fengið lægri dóm en maður sem svíkur undan skatti þegar peningar eru metnir verðmætari en MANNSLÍF!!!!!!!! Þá hugsar maður sig um tvisvr áður en maður hættir sér út í dómskerfi þar sem maður situr illa barin fyrir framan dómara sem metur líf manns minna virði en helvítis 1000 kall!!! Og svo er verði að reyna að troða því inn í hausinn manni að það sé ekkert verðmætara en mannslíf! Je right! Amma og afi eru geymd á elliheimilum við aðstæður sem eru okkar ríku þjóð til skammar ég meina frekar myndi ég leyfa afa mínum og ömmu búa í herberginu mínu sem er ekki atórt en að hafa þau á Hrafnistu þar sem þaðer ekki einu sinni víst að þau fengju að vera saman svona síðustu árin. Og svo ekki hægt að borga þeim sem vinna við að annast afa og ömmu almennileg laun!!! Og ég meina það er allt brjálað núna eðlilega vegna þess og svo koma þessir "blessuðu" stjórnmálamenn og segja að þeir beri enga ábyrgð!!! Svona er litla sæta Ísland í dag!!!

Þessi færsla er hluti af lokaverkefninu í fjö213!!

ÁMS í ölfushöllinni á lau! Skyldi maður ná se+r +i e-n hestakall??!!!