Wednesday, February 22, 2006

Monday, February 20, 2006

Er þetta að gefa sanna mynd af þvi hvernig kosningin fór í eurovision á lau?? Nei mér finnst að þeir verði að segja manni skiptinguna þarna á milli!

Saturday, February 18, 2006

Jæja!! Er ekki en búin að ná mér eftir idolið í gærkvöldi og má eiginlega segja að ég hafi fengið vægt sjokk þegar ég sá hvaða söngvarar voru þeir 3 meðstu og ég segi bara íslenska þjóð: HVAÐ ER Í GANGI??!! Ég get ekki verið sátt við það að Nana Ragnheiður Sara og Elfa skuli hafa verið neðstar og að Elfa hafi dottið út! Ætlar Austurland að sjá til þess að Eiríkur verði í topp 3?? Það eru mun betri söngvara en hann og hann á að vera dottinn úr keppni en á gott bakland enda kemru hann frá Neskaupsstað. Þannig að hreppapólitík er að eyðileggja idolið. meina ef maður á að gera mann að tauga sjúklingi endanlega þá bara gjöriði svo vel. Meina það er erfitt að horfa á atkvæðagreiðsluna því maður veit aldfrei hverju þjóðin taki uppá!! Pæliði í því.

Jæja þá er að reyna að raða sér saman andlega eftir áfallið í gærkvöldi fyrir eurovision. Er bara hrædd um að íslendingar detti alveg á höfuðið og sendi þennan á fjólubláu skyrtunni. Þá stend ég við það að ég verð grænlenskur ríkisborgari. Og ég er ekkert að djóka með þetta!!

Til hamingju Ísland að ég fæddist hér ég er Sylvía Nótt og þið haldið með mér!!

Kátu dagarnir og Flóafár eru í næstu viku. Reyndar misskildi ég nafnið á liðinu mínu í Flóafárinu alveg big time!!

Wednesday, February 15, 2006

Pabbi þinn er ekki pabbi þinn en pabbi þinn veit það ekki!! Eða your daddy ain't your daddy but your daddy don't know!! Bein þýðing úr hinu frábæra Madness lagi Shame and skandal. Það er alveg nóg að þeim svo sem.

Nýjar fréttir af Bachelor parinu voru í virtasta fjölmiðli landsins í dag eða Séð og heyrt. Og þær fréttir eru þannig að þau eru hætt saman. Undir venjulegum kringumstæðum hefði maður orðið svoldið sorry bara fyrir þeirra hönd en e-a hluta vegna þá hreinlega missti ég mig úr hlátri. Meina var virkilega e-r sem lifði í þeim draumaheimi að eftir svona 50 ár þá yrðu þau í sjónvarpsþætti um það hverjir voru þeir eða e-ð komin með alveg 7 börn 2 hunda og ættu sumarbústað undir Eyjafjöllum??!! Ég meina hinir ofur rómantísku Bandaríkjamenn hafa ekki en náð að búa til hið fullkomna Bachelor par og því ættu íslendingar e-ð að geta búið til hið fullkomna Bachelor par þegar date menningin á Íslandi er svoldið svona eins og lýst var í Veggfóðri (bíómyndinni sko!) svona RBB dæmi e-ð??? Jenný hefur þá bara verið eins og sumar í gær á velentínusardaginn enginn blóm og ekkert konfekt. Það er ekkert rettlæti til í þessum heimi!

Mér líður svoldið svona eins og winnner þessa stundina eftir að ég feisaði Magnús og Hjalta í dag. Sem er svoldið stórt móment fyrir manneskju sem hefur látið ömmu sína feisa sig!!

Tuesday, February 14, 2006

Wednesday, February 08, 2006

Jæja! Í alveg það rúma ár sem ég hef verið í sál hjá Árna Blandon þá er ég viss um að sá allra leiðinlegasti tími sem kenndur hefur verið við fsu ever var í morgunn! Já ég er að taka alveg big time upp í mig ég veit það! En ég get svo svarið það að þetta sló alveg út dönsku hérna í gamla daga! (Ohh hvað maður er gamall þegar maður segir þetta svona!!) Allt í lagi nánast allur tíminn fór í að tala um mann sem var háður kókaíni og hét Sigmund Fraud. Já þessi gæi var bara fokking dópisti og kenningarnar eftir því. Hann setti meðal annars fram þá kenningu að stelpur öfundi stráka af því að vera með völsa (asnalegt orð yfir typpi! Svo er líka hægt að deila um það hvort tippi sé með venjulegu i-i eða með y-i.Nei bara hugmynd!!). Verð að segja það að aldrei hef ég pælt í því hvort það sé betra að vera með pulsu eða pulsubrauð (ohh smekklaega orðað!) ég hef alla vega ekki öfundað til að mynda Magnús af því að vera með völsa (get ekki vanist þessu sýnir bara að maðurinn var á e-u stór undarlegu!! Síðan allt þetta ödupusarkjaftæði!! Þétta var BARA leiðinlegt og mæli á engan hátt með þessu. Síðan er smá svona lögreglumál. Að vera í sál kl hálf 2 á föstudegi!! Sem er algjörlega off. Væri betra að eyða tímanum á lélegum karóki bar að syngja Like a virgin!! It´s true

Lýsi hér með formlega eftir textanum við Til hamingju Ísland með Sylvíu sem er ekki en þá komin í leitirnar. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Já í síma 118

Það er flottara að skrifa typpi með y-i:)

Monday, February 06, 2006

Finn ekki texatann við hið frábæra lag sem Sylvía Nótt flutti svo snilldarlega í eurovision á lau! Vá hvað það var flott!! Ég verð bara að viðurkenna það að ég veit ekki alveg hvað þessi Kritján Hreinsson (sem by the way mjög góður í að semja texta) er svona mikið í því að reyna að fá lagið út úr keppnini. Eða öllu held ég skil það ekki.Ég get ekki trúað því að jafn fær lagasmiður og Þorvaldur Bjarni færi e-ð að setja lagið á netið. Síðan kom fram í Kastljósinu áðan að það voru víst e-r önnur lög sem fóru á netið sum voru of löng breytt textum og sumum ekki skila' inn á réttum tíma.Vitiði það að þetta er bara fáranlegt þannig að þetta er hætt að vera fyndið. Halló það voru aðeins 2 af 8 góð á lau þú veist ekki einu sinni helmingurinn. Þetta er orðið nú þegar bara partý lag ársins þannig! Ég held að málið sé bara að Kristján Hreinsson er hræddur um að komast ekki í partý á Akrapólishæð ég held að það sé málið fyrst hann lætur svona. Meina hann á nú 3 texta already í lokakeppnini! Æ-i spes. En bara áfram Sylvía Nótt þó svo að ég geti ekki horft á þættina!!

Saturday, February 04, 2006

Idolið í gær var geðveikt. Gjörsamlega geðveikt. Simmi Ingó og svo Páll Óskar sem fór alveg á ostum mest þó kotasælu (ehhh já!!) En mín skoðun á Simma að hann sé flottur það hefur ekkert breyst eftir gær kvöldið. Það var skotið fast á Palla með þetta bakdyra dæmi allt saman. En það er einn maður sem ég er ekki sátt við og það er Svavar Örn! Hann var að taka viðtal við mömmu Nönu og ég og fólkið sem ég var með sátum bara 2 sætaröðum fyrir ofanhana. Nei nei þá kom Svavar Örn og eiginlega hálf réðst á mig og samtal okkar var e-n vegin svona:

Svavar: halló
Míns: halló
Svavar: Veistu e-ð um hippatímabilið??
Míns: nei (ég gerði heilt verkefni um hippaseasonið í sag 203!!!)
Svavar: fílaru tónlistaina
Míns: já
Svarvar: með hverjum helduru??
M'Ins Nönu

Svona hljóðiaði það! Vona að þetta verði klippt út eða allavega að selfussingar sjái þetta!!!

Wednesday, February 01, 2006

I'm thinking about my doorbell when you gonna ring it when you gonna ring it!!! Sennilega e-ð mest cool lag sem er í gangi þessa dagana. Ein spurning hvort eru/voru þau systkini /hjón??? Nei bara svona pæling:)

STÓRA eurovision málið-æ-i þetta árlega. En nú er það spurning hvort drottningin sylvía nótt verði með á lau vegna þess að lagið lak á netið. Allir víst crazy í eurovision nefndinni neyðarfundur og allt!! Spes. Það var víst búið að fá Selmu til að sjá um dansinn og svona. Kannski ef maður er með hellings fantasíur þá vonar maður að Sylvía verði með nakta karlmenn á sviðinu og fokki þessu big time upp! Ég vil að þessi nefnd endurskoði þessa kynna e-ð þá sérstaklega Garðar Cortez. Meina hvað er það??Hann er allur svo stífur e-ð og hreinlega asnalegur! Hann er alla vega enginn Simmi (grr!). Þessir kynnar eru alla vega ekki að gera sig!!

Talandi um Simma (grr!) þá er míns að fara á Idol á fös!! Og djö.... sem ég hlakka til!! Er samt að fara að svíkjast aðeins um því ég verð ekki í stuðningsliði Hnakkvillinga við að styðja Ingó sem by the way er performer af guðs náð. Neibb ég er að fara með Eggerti (stóra bróður) og Hörpu konunni hans því að frænka hennar er að keppa en það er Nana sem er hinn performerinn í kepnini!!

Pabbi á afmæli í dag!!