Wednesday, February 01, 2006

I'm thinking about my doorbell when you gonna ring it when you gonna ring it!!! Sennilega e-ð mest cool lag sem er í gangi þessa dagana. Ein spurning hvort eru/voru þau systkini /hjón??? Nei bara svona pæling:)

STÓRA eurovision málið-æ-i þetta árlega. En nú er það spurning hvort drottningin sylvía nótt verði með á lau vegna þess að lagið lak á netið. Allir víst crazy í eurovision nefndinni neyðarfundur og allt!! Spes. Það var víst búið að fá Selmu til að sjá um dansinn og svona. Kannski ef maður er með hellings fantasíur þá vonar maður að Sylvía verði með nakta karlmenn á sviðinu og fokki þessu big time upp! Ég vil að þessi nefnd endurskoði þessa kynna e-ð þá sérstaklega Garðar Cortez. Meina hvað er það??Hann er allur svo stífur e-ð og hreinlega asnalegur! Hann er alla vega enginn Simmi (grr!). Þessir kynnar eru alla vega ekki að gera sig!!

Talandi um Simma (grr!) þá er míns að fara á Idol á fös!! Og djö.... sem ég hlakka til!! Er samt að fara að svíkjast aðeins um því ég verð ekki í stuðningsliði Hnakkvillinga við að styðja Ingó sem by the way er performer af guðs náð. Neibb ég er að fara með Eggerti (stóra bróður) og Hörpu konunni hans því að frænka hennar er að keppa en það er Nana sem er hinn performerinn í kepnini!!

Pabbi á afmæli í dag!!

No comments: