Wednesday, February 08, 2006

Jæja! Í alveg það rúma ár sem ég hef verið í sál hjá Árna Blandon þá er ég viss um að sá allra leiðinlegasti tími sem kenndur hefur verið við fsu ever var í morgunn! Já ég er að taka alveg big time upp í mig ég veit það! En ég get svo svarið það að þetta sló alveg út dönsku hérna í gamla daga! (Ohh hvað maður er gamall þegar maður segir þetta svona!!) Allt í lagi nánast allur tíminn fór í að tala um mann sem var háður kókaíni og hét Sigmund Fraud. Já þessi gæi var bara fokking dópisti og kenningarnar eftir því. Hann setti meðal annars fram þá kenningu að stelpur öfundi stráka af því að vera með völsa (asnalegt orð yfir typpi! Svo er líka hægt að deila um það hvort tippi sé með venjulegu i-i eða með y-i.Nei bara hugmynd!!). Verð að segja það að aldrei hef ég pælt í því hvort það sé betra að vera með pulsu eða pulsubrauð (ohh smekklaega orðað!) ég hef alla vega ekki öfundað til að mynda Magnús af því að vera með völsa (get ekki vanist þessu sýnir bara að maðurinn var á e-u stór undarlegu!! Síðan allt þetta ödupusarkjaftæði!! Þétta var BARA leiðinlegt og mæli á engan hátt með þessu. Síðan er smá svona lögreglumál. Að vera í sál kl hálf 2 á föstudegi!! Sem er algjörlega off. Væri betra að eyða tímanum á lélegum karóki bar að syngja Like a virgin!! It´s true

Lýsi hér með formlega eftir textanum við Til hamingju Ísland með Sylvíu sem er ekki en þá komin í leitirnar. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Já í síma 118

Það er flottara að skrifa typpi með y-i:)

No comments: