Wednesday, February 15, 2006

Pabbi þinn er ekki pabbi þinn en pabbi þinn veit það ekki!! Eða your daddy ain't your daddy but your daddy don't know!! Bein þýðing úr hinu frábæra Madness lagi Shame and skandal. Það er alveg nóg að þeim svo sem.

Nýjar fréttir af Bachelor parinu voru í virtasta fjölmiðli landsins í dag eða Séð og heyrt. Og þær fréttir eru þannig að þau eru hætt saman. Undir venjulegum kringumstæðum hefði maður orðið svoldið sorry bara fyrir þeirra hönd en e-a hluta vegna þá hreinlega missti ég mig úr hlátri. Meina var virkilega e-r sem lifði í þeim draumaheimi að eftir svona 50 ár þá yrðu þau í sjónvarpsþætti um það hverjir voru þeir eða e-ð komin með alveg 7 börn 2 hunda og ættu sumarbústað undir Eyjafjöllum??!! Ég meina hinir ofur rómantísku Bandaríkjamenn hafa ekki en náð að búa til hið fullkomna Bachelor par og því ættu íslendingar e-ð að geta búið til hið fullkomna Bachelor par þegar date menningin á Íslandi er svoldið svona eins og lýst var í Veggfóðri (bíómyndinni sko!) svona RBB dæmi e-ð??? Jenný hefur þá bara verið eins og sumar í gær á velentínusardaginn enginn blóm og ekkert konfekt. Það er ekkert rettlæti til í þessum heimi!

Mér líður svoldið svona eins og winnner þessa stundina eftir að ég feisaði Magnús og Hjalta í dag. Sem er svoldið stórt móment fyrir manneskju sem hefur látið ömmu sína feisa sig!!

No comments: