Komst að því í gærkvöldi að foreldrar mínir hafa verið saman í um 30 ár núna um þessar mundir. Pælið í því! Það er aðeins lengra en mitt leng...hmm eigum við nokkuð að fara út í það??!
Það kostaði 1000 kall að fara á Monkís á Pakkhúsinu í gær og ég verð að segja fyrir mittleyti að ég var að borga fyrir algjör vonbrigði! Þetta var hörmung ekkert gaman þekkti engann...nema jú gamlan kennara kannski en ég hafði enga löngun til að tala við hann! Lenti aðeins inn í smá BYKO partýi á kosningaskrifstou Eyþórs Arnalds (gamla Kaffibarnum snökt) og það var fínt fyri kannski utan 50 cent sem var ekki að gera góða hluti. Páll Óskar er mikið betri og sætari en 50 cent (ohh synd að hann sé hommi!)!
Talandi um Eyþór Arnalds þá var hann í Það var lagið á samt stórrakaranum Kjartani Björnssyni og ég get svo svarið það að þetta var sennilega e-r leiðinlegasti þáttur af það var lagið!! Þetta var e-r svona eld gömul íslenkt fylliríis lög það vantaði allt bítl í þáttinn: Fyrir mína parta þá virkar 8 days a week mikið betur en Þ'u komst í hlaðið á hvítum hesti.
Sylvía Nótt! Hún er hins vegar mjög skemmtileg!! Mæli með myndbandinu sem er bara flott!! Veðbankar eru að segja að við vinnum ekki en það skiptirengu máli. Þeaair sömu veðbankar sögðu að Selma myndi vinna í fyrra en það fór bara eins og þaðfór . Það veðbankar hvað??
2 comments:
Já..segi það sama.. veðbankar hvað?? Það eru líka sko tæpir 2 mánuðir þangað til keppnin verður, og það á eftir að taka svo margt með í dæmið...t.d. heila showið og outfittin..sem verður btw flottast hjá okkur.. :) sí jú í þýsku á morgun.
akkúrat sem ég er að segja:) myndbandið var bara geðveikt:)
Post a Comment