MR-ingar dottnir úr Gettu betur. Er hægt að fara að tala um fyrrum stórveldi í þessu sambandi?? Meina þeir unnu þetta í alvegg 100 ár eða e-ð þannig að það var alveg komin tími á þá strákana. En FSU mun að sjálfsögðu taka verzlinga í sparigatið í næstu viku. Vona að þetta verði svona alvöru!
Sá strumpur sem kenndur er við djamm á afmæli í dag nánar tiltekið 2 ára sem er bara nokkuð gott að ég held. Ég á 2 ára blogg afmæli í dag sem er ekki slæmt.Fór á subway í dag svona í tilefni dagsins. Og er að spá í að vippa mér í heita pottinn svona í tilefni dagsins!! Það er stjörnubjart þannig að ég auglýsi bara eftir karlmanni til að koma með mér í pottinn. Æ-i þetta er ekki að virka þar sem ég er bara alveg að fara í pottinn þannig strákar...sorry. En þetta er BARA gott!!
Þakka fyrir að ég hafi ekki verið verslunar eigandi í gær á öskudaginn (eða á bjórdaginn fer eftir þvi hvernig fólk lítur á það!) þar sem Til hamingju Ísland hljómaði svona trilljón sinnum. Einu sinni var talað um að Gamli Nói hefði verið faraldur þar sem búða fólk heyrði hann svona triljón skrilljon sinnum á dag þegar við ormarnir komum og sungum fyrir nasmmi í gamla daga. Nei bara til að búða fólk fái ekki viðbjóð á Sylvíu Nótt fyrir 18. maí. Jamm 18. maí er dagurinn!!
Það flotasta sem er í spilun á útvarpsstöðvunum í dag er lagið Clown með Ampop og gamla góða U2 lagið One þar sem Bono og co fá Mary J Blige með sér og það er flott!!
Best að fara að skella sér í heita pottinn!!
2 comments:
Nýtt og ferskt útlit bara
danke schön:)
Post a Comment