Friday, March 24, 2006

Violent Femmes gefa út Live in Iceland


Hljómsveitin Violent Femmes heldur upp á 25 ára afmæli sitt í ár og af því tilefni ætla þeir að senda frá sér tónleikadisk. Það merkilega er að tónleikarnir sem um ræðir voru teknir upp af Rás 2 hér heima á Íslandi.

Platan mun einfaldlega heita "Live in Iceland" og er hún væntanleg í verslanir á næstu vikum. Tónleikar Violent Femmes fóru fram á Broadway árið 2004 og voru vel sóttir. Stemningin var frábær og tróðu Matthías Hemstock, Óskar Guðjónsson og fleiri á svið með sveitinni.

Femmes voru svo ánægðir með tónleikana og upptökurnar á þeim að nú er þessi plata, "Live in Iceland", svo gott sem klár. Við munum að sjálfssögðu flytja ykkur frekari fréttir af málinu um leið og þær berast.

Auk þess að gefa út umrædda plötu ætla Violent Femmes að fagna 25 ára afmæli sínu með útgáfu á heimildarmynd um hljómsveitina sem nú er í fullri vinnslu.


Þetta er snilld!!

No comments: