Þessi færsla er ekki hluti af lokaverkefninu í fjö 213-enda á 101 Reykjavík fátt sameiginlegt með fjö 213!!
En allt í lagi!! Ég er samt búin að finna minn uppáhalds dyravörð og það er dyravörðurinn á Dubliners! Mér finnst itta svo spes. Þegar við (ég Laufey Beta og Arnór) komun að Dubliners í gær og ætluðum að kíkja þangað inn þá var okkur tjáð það að það væri 23 ára aldurstakmark inn á Dubliners en samt hefði verið allt í lagi að fara inn á staðinn ef við hefðum verið orðin 20 (Arnór að verða 22!)!! Halló!! Annað hvort er 23 ára aldurstakmark inn á staðinn eða 20 ekki 23 ára aldurtakmark en ef þú ert orðinn 20 þá kemdtu inn. Annað hvort allt eða ekkert!! Svo einfalt er það. Við reyndar fórum ekki neins staðar inn en reyndum að fara inn á celtic cross 11 Grand Rokk og Glaumbar! Við löbbuðum fram hjá Gauknum á leiðinni á Glaumbar og sáum þar hvar e-r strákur reyndi að hrækja á engilinn Pál Rósinkranz (það er e-ð svo englalegt við hann) sem er bara skandall enda er Palli bara bestasti singerinn á klakanum!! En þetta var samt voða voða gaman! Og nú á ég mér þann einn draum æðsta á komast á FEITT sálarball á Nasa!!!!
Party hjá kjellingunni (mér!) um næstu helgi þar sem ég ætla að fagna ásamt góðum vinum því að það eru 20 ár síðan ég kom í þennan heim sem fyrir 20 árum var fullur af fólki sem var með sítt að aftan og hlustaði annað hvort á Duran Durab eða Wham! en í dag er heimurinn furllur af fólki sem...æ-i það er ekki hægt að skilgreina það sem er í gangi bæði í tónlist og tísku eins og var þá það er bara allt e-n veginn allt í gangi rapp teckno (úts úts úts!) rokk og svona lið eins og ég sem dýrkum bönd eins og Coldplay út að lífinu!
En á morgunn þá mun ég sennilega týna mér í páskeggjum og súkkulaði og svona...geeeeðveikt!!!!
1 comment:
Hæ hæ og gleðilega páska. Vá, bara alveg að verða tvítug. Ég þarf að bíða alveg þangað til í sumar til að verða átján :(
Jamm...sí jú í þýsku am Mittwoch. (jei, þetta er met, náði að skrifa þessa stuttu setningu á 3 tungumálum..hehe)
Post a Comment