Sunday, April 23, 2006

Hrikalegur Kompás

Horfði á hinn magnaða þátt Kompás áðan og ég get eiginlega sagt það að ég var með algjöran viðbjóð! Það var verið að fjalla um læknadópog talað við par sem er háð læknadópinu Contalgíni. það var talað við þau og aðra konu sem og meðal annars sýnt þegar hún var að sprauta sig og ég hef aldrei á ævinni verið að horfa á sjónvarps þátt og verið bara með hroll!! Þetta var bara ískaldur raunveruleikinn það er ekki hægt að feika svona dæmi! Þetta var hrikalegt!! Og ég segi það en og aftur að Jóhannes kr Kristjánsson ritstjóri Kompáss er snillingur! Hann er að gera ótrúlega hluti sem aldrei hafa áður verið gerðir í sjónvarpi á Íslandi áður. Og það er ekki verið að fegra neitt íslensku þjóðinni sem hefur verið ansi duglegt í gegnum tíðina að afneita ýmsum hlutum sem eru í kringum okkur eru sýndir hlutir sem eru raunverulegir og ekki er hægt að feika! Það var hræðilegt að horfa á þetta! Hann var svo einlegur og sagði að eini tilgangur hans með því að koma svona fram í sjónvarpinu var að reyna að koma í veg fyrir að unglingar myndu lenda í þessu sma og þau. Í þessu helvíti sem þau eru föst í. Maður vorkenndi þeim. Hún móðir mín sagði að hún væri heppinn að hennar börn væru ekki í svona rugli því þessi dóp heimur er svo viðbjóðslegur og kannski viðbjóðslegri en maður heldur. Æ-i þessi orð eru frekar fátækleg e-ð!!

Þessi færsla er hluti af lokaverkefninu í fjö 213!!

p.s. held að foreldrar mínir hafi farið í smá svona afmælisgjafaleiðangur í Borg óttabs í dag. Alla vega veit ég ekki´+i hvaða búðir þau fóru og ég þori ekki að spyrja. Veit ekki hvort pabbi sé maðuirnn sem gefur með ipod. Hann bullar e-ð um að ipo der stórhættulegur!! Kjaftæði. Ipod er bara stórsniðugur

Lag dagsins loosing every day með Dikta!! Bara flott

No comments: